Morgunblaðið - 05.02.2010, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 05.02.2010, Blaðsíða 31
Menning 31FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2010 Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is LAB LOKI frumsýnir í Hafnarfjarð- arleikhúsinu á laugardaginn leikritið Ufsagrýlur eftir Sjón í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar, en í verkinu er fjallað um atburði sem anda okkar eru nær, enda segist Sjón sækja inn- blástur í uppákomuna miklu haustið 2008. „Rúnar hafði samband við mig þá um haustið og bað mig um að skrifa verk fyrir Lab Loka sem myndi ein- mitt fjalla um það sem þá var að ger- ast í þjóðfélaginu. Mér leist strax vel á það, enda vil ég hafa nýja áskorun í hverju verki og er einmitt ekki þekkt- ur fyrir að skrifa samfélagsleg verk, og svo fór ég heim og skrifaði handrit upp á 81 blaðsíðu sem þau hafa sam- viskusamlega fylgt. Þetta hefur verið mjög skemmtileg og gefandi vinna, mig hefur lengi langað til að vinna með Rúnari, enda er hann helsti tilraunamaður í leik- húsi hér á landi. Ég heillaðist mjög af sýningunni Steinar í djúpinu og hugsaði með mér þegar ég horfði á hana að það væri öf- undsverður höfundur sem fengi að setja efnið sitt í hendurnar á Rúnari og svo vildi svo til að ég varð sá höf- undur.“ Í kynningu á Ufsagrýlum segir að verkið taki á málefnum líðandi stund- ar „með aðferðum gróteskunnar og karnivalsins“ og Sjón tekur undir það. „Absúrleikhúsið er í næsta ná- grenni við súrrealismann og ég hef alltaf haft gaman af því, enda gefur fátt eins skarpar myndir af veru- leikanum. Ég hef líka verið hrifinn af leikhúsi grimmdarinnar og öfganna og það má líka sjá í þessu verki; það má eiginlega lýsa því sem hyllingu öfga og hryllings, enda lifum við á þannig tímum að það er það tungu- mál sem er manni næst. Við Rúnar dáum líka báðir Alfred Jarry sem skrifaði Bubba kóng, en fyrsta orð þess verks er einmitt „skítr“ eða „merdre“. Í þessari sýn- ingu er sá þráður tekinn upp líka og það er því dálítill „skítr“ í sýningunni hjá okkur.“ Að sögn Sjón gerist verkið í heimi þar sem tiltekinn hluti þjóðfélagsþeg- anna hefur komið sjálfum sér og öðr- um í hryllilega stöðu sem verið er að gera upp og að því leyti sé verki í raun tímalaust; það geti átt við hvar sem er þar sem samfélag klofni, þar sem það verði trúnaðarbrestur milli þegnanna. „Hér er það er þjóðin sjálf sem er klofin og upplifir það að ákveðnir aðilar hafi markvisst unnið án tillits til hagsmuna hinna.“ Að þessu sögðu vill Sjón ekki segja of mikið frá verkinu, segir að fólk verði sjálft að fara á sýninguna til að sjá niðurstöðu uppgjörsins. „Ég held að allt leikhús sé skemmt- un á sinn hátt og það er fullt í þessari sýningu til að hrífast af og skemmta sér yfir,“ segir Sjón og þegar rifjaður er upp skelmishátturinn sem hann sýndi í síðasta leikverki sínu, Tómri ást, segir hann að ekki skorti gam- ansemi í verkinu þó að viðfangsefnið sé háavarlegt. „Þetta er fyrst og fremst kolsvört kómedía, húmor eins og hann gerist svartastur, enda eins og Freud sagði: Sumir hlutir eru svo alvarlegir að það er ekki hægt annað en gera grín að þeim.“ Hylling öfga og hryllings Skítr Frá uppfærslu Lab Loka í Hafnarfjarðarleikhúsinu á Ufsagrýlum eftir Sjón og Rúnar Guðbrandsson. Með helstu hlutverk fara Aðalbjörg Þóra Árna- dóttir, Árni Pétur Guðjónsson, Birna Hafstein, Erling Jóhannesson, Hjálmar Hjálmarsson og Orri Huginn Ágústsson. Gróteskt Leikmynd er eftir Móeiði Helgadóttur, búninga gerði Myrra Leifsdóttir, gervi Ásta Hafþórsdóttir og lýsingu Garðar Borgþórsson.  Ufsagrýlur taka á málefnum líðandi stundar með aðferðum gróteskunnar og karnivalsins  Innblástur sóttur í uppákomuna miklu haustið 2008 TÓNLISTARFÉLAG Ak- ureyrar heldur hádegistón- leika í dag í tónleikaröðinni Föstudagsfreistingar. Þar leikur Ásdís Arnardóttir á selló, Petrea Óskarsdóttir á þverflautu og Þórarinn Stef- ánsson á píanó. Þau munu flytja verkin Pavane vegna dauða spænskrar prinsessu eftir Maurice Ravel, Allegro Appassionato, op. 43 eftir Ca- mille Saint-Saëns, Fantaisie eftir Philippe Gau- bert og Pavane, op. 50 eftir Gabriel Fauré. Tónleikarnir hefjast í Ketilhúsinu kl. 12.15, að- gangseyrir er 2000 kr. og er súpa innifalin. Tónlist Föstudagsfreisting í Ketilhúsinu Þórarinn Stefánsson TVÆR sýningar verða opnaðar í Listasafni ASÍ við Freyjugötu á morgun, laugardag, kl. 15. Í Ásmundarsal og Gryfju er sýning Guðrúnar Gunn- arsdóttur, Að muna sinn fífil fegurri. Horft er á fíflana frá ýmsum sjónarhornum og unnið með ýmiss konar tækni í marg- vísleg efni. Í Arinstofunni er sýning Guðmundar Ingólfs- sonar, Heimild um horfinn tíma. Þar sýnir Guðmundur syrpu af myndum af rýmum sem hann hefur myndað frá árinu 1993. Sýningin er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13:00-17:00. Sjá nánar á : www.listasafnasi.is Myndlist Að muna sinn fífil fegurri í ASÍ Guðrún Gunnarsdóttir ÁRLEG Safnanótt fer fram 12. febrúar næstkomandi. Verður þetta stærsta Safnanóttin til þessa með þátttöku ríflega þrjátíu safna víðsvegar á höf- uðborgarsvæðinu. Hátíðin teygir sig allt vestur frá Nes- stofu á Seltjarnarnesi suður til Hafnarfjarðar og norður til Gljúfrasteins í Mosfellsdal. Safnanótt hefst með Kær- leikum á Austurvelli þar sem ýmsar þjóðþekktar persónur mæta og flytja kærleiksríkan boðskap. Sérstakur safnanæturstrætó mun aka á milli safn- anna. Hægt er að nálgast dagskrá Safnanætur á www.safnanott.is. Söfn Safnanótt fer fram 12. febrúar Gljúfrasteinn EINN kunnasti bronsskúlptúr sviss- neska myndlistarmannsins Alberto Giacomettis (1901-1966) seldist fyrir metfé á uppboði hjá Sotheby’s í Lond- on í fyrradag. Óþekktur kaupandi bauð 92,5 millj- ónir dala, eða 104,3 milljónir með gjöldum, í verkið „Gangandi maður I“. Það eru um 13,2 milljarðar króna, hæsta verð sem hefur verið greitt fyrir listaverk á uppboði. Fyrra metið átti sá sem tryggði sér málverk sem Picasso málaði árið 1905, „Drengur með pípu,“ og greiddi 104,1 milljón fyrir árið 2004. Í The New York Times er greint frá því að tíu manns hafi boðið í styttuna, sem er um 180 cm há. Giacometti, sem er einn kunnasti myndlistarmaður 20. aldar, mótaði verkið árið 1960 og var það steypt í brons ári síðar. Að lokum voru bara tveir vongóðir kaupendur eftir, og buðu báðir gegnum síma. Þeg- ar það var slegið fyrir metfé braust út lófaklapp í troðfullum uppboðsalnum. Sex tölusett eintök voru steypt af skúlptúrnum, og fjögur „artists- proof“, en þau munu öll vera í söfnum og ólíklegt að þau fari á markað. Sérfræðingar bjuggust við því að 19 til 28 milljónir dala fengjust fyrir verk- ið. Kaupverðið er þrefalt hærra en hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir verk eftir Giacometti til þessa, en árið 2008 var „Standandi kona II“ frá ár- unum 1950-60, selt fyrir 27,4 milljónir dala. Reuters Dýrgripur Bronsskúlptúrinn Gang- andi maður I eftir Giacometti. Dýrasta listaverkið til þessa Skúlptúr Giacomettis seldur fyrir metfé FORLEGGJARAR sem fara með réttinn á bókum bandaríska rithöf- undarins J.D. Salingers hafa til- kynnt að nýrra útgáfna sé að vænta á þeim fjórum bókum sem Salinger sendi frá sér. Hann lést sem kunn- ugt er í síðustu viku, 91 árs að aldri. Nýju ensku útgáfurnar verða með kápum sem Salinger hafði samþykkt áður en hann lést. Hann var frægur fyrir sérvisku og hafði ákveðnar skoðanir á útliti bókanna. Simon Prosser, útgáfustjóri Ham- ish Hamilton forlagsins í Bretlandi, sem gefur verk Salingers út, segir hann hafa bannað allt myndefni á kápunum, þannig að einungis mætti notast við letur og formræna hönn- un. Þá mátti enginn hefðbundinn káputexti birtast á bókunum, engin lýsing á innihaldinu, tilvitnanir eða upplýsingar um höfundinn. Ein- ungis heiti verksins, heiti höfundar og hver útgefandinn væri. J.D. Salinger endurútgefinn Óskarsakademían hefur stundum kom- ið manni á óvart, t.d. þeg- ar Gladiator vann árið 2001, hrein og klár af- þreying 34 » TVÍEYKIÐ Stilluppsteypa sér um alla tónlist í Ufsagrýlum og einn- ig öll áhrifshljóð. Sigtryggur Berg Sigmarsson, sem skipar Stilluppsteypu með Helga Þórs- syni, segir að þeir félagar hafi komið þannig inn í verkefnið að hann hitti leikstjórann Rúnar Guðbrandsson á förnum vegi. „Hann spurði mig um Still- uppsteypu og Evil Madness og spurði svo hvort við værum til í að vinna með honum og Sjón að leikriti, en Sjón hafði víst stung- ið upp á því að við myndum sjá um músíkina. Þeir voru ekki bún- ir að skrifa handritið, en voru með að hreinu hvernig heim þeir vildu skapa og við fórum að vinna út frá því. Svo eftir því sem Sjón skrifaði handritið feng- um við meira til að vinna með en aðalvinnan byrjaði svo í nóv- ember þegar handritið var tilbú- ið.“ Sigtryggur segir að það sem þeir félagar leggi til leikritsins sé áþekkt því sem þeir hafa áður gert, en einnig að þeir séu æv- inlega með það efst í huga að styða við textann og framvind- una, en ekki trufla. „Rúnar leyfði okkur að vera mjög frjálsir með það sem við erum að gera, en hann leikstýrir okkur líka og seg- ir hvað hann vill fá, enda er hann með sterka mynd, hvað hann vill fá útúr textanum, leikurunum og okkur,“ segir Sigtryggur. Óhljóð í boði Stilluppsteypu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.