Morgunblaðið - 26.06.2010, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.06.2010, Blaðsíða 1
LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 2010 íþróttir Efstir ÍBV er komið í efsta sætið eftir sigur á Selfyssingum í Suðurlandsslagnum í Eyjum, 3:0. Tryggvi Guðmundsson skoraði tvö markanna. Fimmti ósigur Selfossliðsins í röð. 4 Íþróttir mbl.is „Ég lít á þetta sem spennandi tæki- færi fyrir mig til þess að spila í einni sterkustu deild í heimi og þroskast áfram sem handknattleiksmaður,“ sagði Elvar Friðriksson úr Val sem í gær skrifaði undir þriggja ára samn- ing við danska úrvalsdeildarliðið Lemvig á Norðvestur-Jótlandi. Lemvig lék í úrvalsdeildinni á síð- ustu leiktíð og tókst að forðast fall. Það hefur nú styrkt sig verulega og var Elvar einn fimm leikmanna sem gengu frá samningi við liðið í gær. „Liðið hefur styrkt sig verulega og ég sé ekki fram á annað en að skemmtilegir tímar séu framundan,“ sagði Elvar sem leikið hefur með Val allan sinn feril. „Ég hef verið í góðu sambandi við Valsmenn alveg frá því að boðið frá Lemvig kom upp í hend- urnar á mér. Hjá Val vissu menn að hugur minn stæði til þess að fara út og þeir hafa ekkert staðið í vegi fyrir því. Þetta átti sér stuttan aðdrag- anda. Forráðamenn Lemvig höfðu samband og buðu mér út til æfinga. Í framhaldinu var mér boðinn samn- ingur og nú hef ég skrifað undir. Ég er mjög ánægður og sé fram á skemmtilega tíma í einni sterkustu deild í heimi,“ segir Elvar Frið- riksson, en hann bætist í stóran hóp leikmanna Vals sem eru horfnir á braut frá félaginu í sumar. Einn Íslendingur hefur áður leikið með Lemvig. Það var Stjörnumað- urinn Vilhjálmur Halldórsson. Hann lék með Lemvig veturinn 2007 til 2008. iben@mbl.is Elvar frá Val til Lemvig  Samdi til þriggja ára við danska úrvalsdeildarliðið  Einn fimm nýrra leikmanna  Margir farnir frá Val Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Riðlakeppni heimsmeistaramótsins í Suður- Afríku lauk í gærkvöld og þar með varð endanlega ljóst hvaða 16 lið það yrðu sem halda áfram keppni og slást um 19. heimsmeistaratitilinn í knattspyrnu. Spánn og Chile kræktu í tvö síðustu sætin og Spánverjar náðu um leið að forðast að mæta Brasilíu í 16-liða úrslitum eins og horfur voru á. Þeir fá grannaslag við Portúgal í staðinn. Nú liggur líka fyrir hvernig möguleg leið lið- anna í undanúrslit keppninnar lítur út.  Úrúgvæ, Suður-Kórea, Bandaríkin og Gana mætast innbyrðis fram að undanúrslitum. Eitt þeirra mun því standa eftir. Fari sigurliðin í riðl- unum í gegnum 16-liða úrslit verða það Úrúgvæ og Bandaríkin sem eigast við í 8-liða úrslitum.  Argentína, Mexíkó, Þýskaland og England munu slást um eitt sæti í undanúrslitum. Sigur- liðið í viðureign Englands og Þýskalands á morg- un mætir Argentínu ef allt fer eftir bókinni.  Holland, Slóvakía, Brasilía og Chile eru á sama kanti og þar er í sigtinu spennandi viðureign Hollands og Brasilíu í 8-liða úrslitum.  Paragvæ, Japan, Spánn og Portúgal mynda síðasta fjögurra þjóða hópinn. Það gæti endað með leik Spánar og Paragvæ í 8-liða úrslitum. Fari allt áfram eftir bókinni í 8-liða úrslitum yrðu viðureignir undanúrslitanna á milli Brasilíu og Úrúgvæ annars vegar og milli Argentínu og Spánar hinsvegar. En það gætu að sjálfsögðu orð- ið allt önnur fjögur lið sem ættu í hlut. Baráttan heldur áfram í dag en 16-liða úrslitin eru leikin næstu fjóra daga, tveir leikir á degi hverjum. »2-3 Sextán sem koma til greina  Verða Brasilía – Úrúgvæ og Argentína – Spánn leikirnir í undanúrslitum? Signý Arnórs- dóttir úr Keili og Arnar Snær Há- konarson úr GR eru efst að lokn- um fyrsta hring á Canon-mótinu í golfi sem er hluti af Eimskips- mótaröðinni. Signý lék Urr- iðavöll á 72 höggum og hefur tveggja högga forystu á Ólafíu Þórunni Krist- insdóttur, GR. Signý er á höggi yfir pari. Góð frammistaða Nínu Bjark- ar Geirsdóttur, fyrrverandi Íslands- meistara úr Kili, vekur athygli en hún lék á 75 höggum og er jöfn nú- verandi Íslandsmeistara, Valdísi Þóru Jónsdóttur úr Leyni. Nína lét ekki mikið að sér kveða í fyrra og er að keppa á sínu fyrsta stigamóti í sumar. Ungur kylfingur, Arnar Snær, náði sér virkilega vel á strik og lék á 69 höggum. Einn annar kylfingur lék undir pari en það var landsliðs- maðurinn Hlynur Geir Hjartarson úr Keili. Höggi á eftir Hlyni og tveimur á eftir Arnari koma Björg- vin Smári Kristjánsson, GKG og Sigurpáll Geir Sveinsson, Keili. Þrír kylfingar léku á 72 höggum. Einn þeirra, Sigmundur Einar Másson GKG, varð einmitt Íslandsmeistari á Urriðavelli fyrir nokkrum árum. „Gamla“ kempan Ólafur Már Sig- urðsson, GR, og stigameistarinn í fyrra, Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG, voru einnig á 72 höggum. 54 holur eru leiknar í mótinu sem er það þriðja í röðinni á Eimskips- mótaröðinni og heldur áfram í dag. Valdís Þóra hefur sigrað í kvenna- flokki á báðum mótunum. Björgvin Sigurbergsson sigraði hjá körlunum á Flugfélags Íslands-mótinu í Vest- mannaeyjum og Sigurþór Jónsson á Fitness Sport-mótinu á Leirdals- velli. kris@mbl.is Arnar Snær á 69 höggum á Urriðavelli Signý Arnórsdóttir Arna Sif Pálsdóttir, landsliðskona í handknattleik, hefur flutt sig um set innan Danmerkur. Hún hefur skrifað undir samning við úrvals- deildarliðið Team Esbjerg en hún var í herbúðum Horsens á síðasta tímabili. Horsens féll úr úrvals- deildinni í vor. Arna Sif, sem er 22 ára gömul, skoraði 19 mörk í 20 leikjum fyrir Horsens og lék stórt hlutverk í varnarleiknum. Haft er eftir Flemming Viderik- sen, íþróttastjóra Team Esbjerg, á vefsíðunni hbold.dk að Arna Sif verði mikilvægur hlekkur í varn- arleik liðsins sem hafi gengið í gegnum nokkrar breytingar frá síðasta tímabili. „Það skipti okkur miklu máli að fá leikmenn sem geta leikið jafnt í vörn sem sókn. Arna uppfyllir þær kröfur auk þess sem hún kemur með baráttuanda inn í liðið frá eyj- unni í norðri. Hún er vön að leggja hart að sér við æfingar og kemur með ferska vinda inn í leikmannahóp okkar sem mun örugglega gera gott lið betra,“ segir Videriksen. Arna Sif hefur átt sæti í íslenska landsliðinu sem hefur unnið sér þátttökurétt á EM sem fram fer í Danmörku í desember. Áður en hún hélt til Danmerkur lék hún með HK. iben@mbl.is Arna samdi við Esbjerg Arna Sif Pálsdóttir Ljósmynd/Sigfús Gunnar Peyjarnir Það er ekki síður fjör í Vestmannaeyjum en í Suður-Afríku þessa dagana þar sem strákarnir í 6. flokki heyja sína eigin heimsmeistarakeppni, nánar til tekið Shellmótið, hið árlega peyjamót ÍBV. Þessir Njarðvíkingar voru í varnarvegg í leik við ÍR og voru smeykir þegar boltinn nálgaðist.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.