Morgunblaðið - 18.10.2011, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 18.10.2011, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2011 Höfundar nýrrar og viðamikillar ævisögu um hol- lenska listmál- arann Vincent van Gogh halda því fram að mál- arinn hafi ekki framið sjálfs- morð árið 1890, eins og talið hef- ur verið, heldur hafi hann orðið fyrir voðaskoti tveggja drengja sem voru með bilað skotvopn. Samkvæmt BBC komust höfundarnir, Steven Naifeh og Gregory White Smith, að þeirri nið- urstöðu eftir að hafa unnið að bók- inni í meira en tíu ár, með aðstoð fjölda þýðenda og rannsakenda. Segja þeir van Gogh hafa viljað vernda drengina og því hafi hann sagst hafa skotið sig, en hann lést skömmu síðar sökum blæðingar. Sérfræðingar við Van Gogh- safnið í Hollandi segjast ekki sann- færðir um þessa söguskoðun Segja van Gogh hafa verið skotinn Sjálfsmynd eftir van Gogh. Björn Bergsson flytur í dag, þriðjudag, fyr- irlestur um ís- lenska tréskurð- arlist í Þjóðminjasafni Íslands. Fyrir- lesturinn hefst klukkan 12.05 í fyrirlestrarsal safnsins og er í tengslum við sýningar á íslenskum útskurði sem stendur þar yfir. Í fyrirlestrinum fer Björn stutt- lega yfir sögu íslensks tréskurðar frá landnámi og tengir hann við það sem var að gerast í Noregi og á meginlandi Evrópu á sama tíma. Aðaláherslu leggur hann þó á tré- skurð við lok 19. aldar og allt til dagsins í dag. Björn Bergsson er ritari Félags áhugamanna um tréskurð og kenn- ir félagsfræði við Menntaskólann við Hamrahlíð. Hann hefur sjálfur lagt stund á myndskurð. Fjallar um þróun tré- skurðarlistar Björn Bergsson Þrettánda vefuppboð Gallerís Foldar hófst um helgina á vefnum www.uppbod.is. Á uppboðinu eru 36 tvívíð verk, teikningar, þrykk og mál- verk. Nokkur verkanna eru eftir suma þekktustu lista- menn 20. aldar, þar á meðal Þorvald Skúlason, Nínu Tryggvadóttur, Kristínu Jóns- dóttur og Jóhannes Kjarval. Einnig eru boðin upp verk eftir Hring Jóhannesson, Jón Þorleifsson, Tolla, Eirík Smith, Sigurð Sigurðsson, Jón Engilberts, Bene- dikt Gunnarsson og fleiri. Uppboðinu lýkur eftir viku, mánudaginn 24. október næstkomandi. Myndlist Fjölbreytileg verk á vefuppboði Uppstilling eftir Jón Þorleifsson. Pétur H. Ármannsson arkitekt flytur í dag, þriðjudag kl. 20.00, fyrirlestur í Hönnunarsafni Ís- lands við Garðatorg í Garðabæ. Í fyrirlestrinum fjallar Pétur um byggingarlist þar í bænum og er þetta fyrsti fyrirlesturinn í röð sem safnið stendur að og kallast Áratugir í íslenskri hönnunarsögu. Á 7. áratug síðustu aldar risu í nýjum hverfum í Garðahreppi framúrstefnuleg einbýlishús sem þóttu og þykja enn tíðindum sækja í íslenskum arkitektúr. Áhrif frá bandarískum nútímaarkitektúr voru áberandi á þessu tímabili. Í fyrirlestrinum fjallar Pétur um þetta merka skeið í íslenskri byggingarlist. Húsagerðarlist Fjallar um tíma- mótahús í Garðabæ Pétur H. Ármannsson Leikhópurinn Aldrei óstelandi efnir um næstu helgi til tveggja lokasýninga á leikrit- inu Fjalla-Eyvindi eftir Jó- hann Sigurjónsson í leikhús- inu Norðurpólnum á Seltjarnarnesi. Sýningarnar verða 22. og 23. október og hefjast klukkan 20.00. Leikritið var sýnt 30 sinn- um í Norðurpólnum síðasta vetur og þrisvar á Akureyri og hlaut afar góða dóma. Sýningin fékk tvær tilnefn- ingar til Grímuverðlauna. Leikarar eru Edda Björg Eyjólfsdóttir, Guðmundur Ingi Þorvalds- son, Bjartur Guðmundsson og Valdimar Örn Fly- genring. Leikstjóri er Marta Nordal. Leiklist Fjalla-Eyvindur í Norðurpólinn Úr sýningunni á Fjalla-Eyvindi. Pétur Blöndal pebl@mbl.is „Það var ótrúleg aðsókn um helgina,“ segir Halldór Guðmundsson, verk- efnisstjóri Sögueyjunnar Íslands, en á sunnudag lauk bókastefnunni í Frankfurt þar sem Ísland var heið- ursgestur. „Mér var sagt að bara á laugardaginn hefðu komið 70 þúsund gestir, sem er aðeins meira en í fyrra. Þar af er reiknað með að að minnsta kosti helmingurinn hafi komið í ís- lenska skálann. Umfjöllunin var gríð- arleg, þýsku blöðin tala um að þetta hafi verið öflugasta kynning á gesta- landi í manna minnum. Tilgangurinn var að vekja athygli á okkar bókum og ég held að það hafi tekist.“ Hann segir gaman hversu mikil að- sókn var á viðburði sem staðið var fyrir. „Um helgina stóðu þrjú til fjög- ur hundruð manns eða sátu á gólfinu, fyrir utan þau tvö hundruð sem voru í sætum.“ Helgin hratt af stað „Helgin var allt öðruvísi en dag- arnir á undan,“ segir Helga Thors, viðburðastjóri Saga Film, sem hafði umsjón með íslenska skálanum á bókastefnunni í Frankfurt. „Þegar hópurinn kom á laugar- dagsmorgni þá umbreyttist allt. Þá voru fagaðilarnir farnir heim og al- menningur streymdi inn, margir í búningi af því að þá var ókeypis inn. Það var því skrípófólk út um allt,“ segir hún og hlær. „Helgin fór hratt af stað, það var allt troðfullt á laugardagsmorgninum og á tímabili var ég að spá í að hleypa inn í salinn í hollum, af því ég var hrædd um að annars yrði of mikill troðningur, en öryggisverðir sögðu að það væri óþarfi.“ Á sunnudaginn segir Helga að hafi verið aðeins minni ör- tröð en þau bjuggust við, en dagskráin hafi gengið vel. „Við afhentum Nýja- Sjálandi keflið í gær í mikilli athöfn, þar sem nefnd þeirra steig máradans á sviðinu, stappaði og klappaði. Mér skilst dansinn sé alltaf stiginn þegar Márar vinna land.“ Skrípófólk út um allt Ljósmynd/Þorsteinn J. Keflið afhent Halldór Guðmundsson, verkefnisstjóri Sögueyjunnar Íslands, afhenti fulltrúum Nýja-Sjálands keflið. grundvallar því þindarlausa kapp- hlaupi sem þreytt var vegna peninga og gagnsýrði þjóðarsálina og blind- aði stjórnendur landsins. Á sýningunni má sjá risastóra innsetningu þar sem risastórt báts- form er strengt upp í loft salarins með segldúkum en formið er síðan lýst upp svo úr verður trúarlega uppljómað, upphafið og svolítið draugalegt minnismerki um útrás- ina margfrægu. Innsetningin inni- heldur einnig myndbönd sem varpað er upp á innkeyrsludyr í sýning- arsalnum og tekin eru á sjó fyrir ut- an Reykjavík. Myndböndin eru táknræn fyrir hvernig atburðirnir áttu sér stað á vissan hátt fyrir utan samfélagið um leið og þau vísa á kaldhæðinn hátt í það hvernig bankaútvegurinn var borinn saman við undirstöðuatvinnugrein á borð við sjávarútveg. Þetta ásamt öllu ljóðræna og sjávartengda táknmál- inu sem haft er um efnahags- og mannlífið, sbr. þjóðarskúta, strand eða byr í segl, gefur sýningargest- inum færi á að melta þessi mál um stund í táknrænni umgjörð Hafn- arhússins. Ótalið er þá hljóðverk sem spilað er inni í verkinu þar sem heyra má Titill sýning Óskar Vil-hjálmsdóttur Tígris-dýrasmjör vísar sam-kvæmt stuttum texta í sýningaryfirlitsskrá safnsins í atriði bókarinnar Litli svarti Sambó þar sem tígrisdýrin hlupu af græðgi svo hratt í kringum tréð sem Simbi hafði forðað sér í að þau breyttust í smjör. Hér er Ósk að vísa í efnahagshrunið á Íslandi og þá firringu sem lá til hraðan andardrátt þess sem hleypur og hleypur, líklega í hringi eins og tígrisdýrin í sögunni. Þetta þind- arlausa hlaup passar við fyrstu sýn ekki alveg inn í strandaða skips- myndina og gefur því tilfinningu fyr- ir því að listakonan sé ekki aðeins að gagnrýna fortíðina heldur megi lesa sýninguna sem ádeilu á samtímann og gullkálfurinn sem nú sé hlaupið í kringum sé hin strandaða og upp- ljómaða þjóðarskúta. Ósk Vilhjálmsdóttir myndlist- armaður hefur verið ötul við að taka þátt í þjóðfélagslegri umræðu og notar myndlistina sem mikilvægan miðil til að draga fram atriði, spyrja spurninga eða gagnrýna. Verkið á sýningunni virkar formrænt sterkt en skírskotanirnar eru kannski um leið of víðar eða almennar til að ná að vera raunverulegt innlegg í lif- andi umræðu og líkjast því meira tragískum ljóðrænum eftirmælum. Þjóðarskútan uppljómuð Morgunblaðið/Eggert Ósk Vilhjálmsdóttir á sýningunni „ ... úr verður trúarlega uppljómað, upp- hafið og svolítið draugalegt minnismerki um útrásina margfrægu.“ Tígrisdýrasmjör bbbmn Ósk Vilhjálmsdóttir - blönduð tækni. Í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Sýn- ingin stendur til 1. janúar 2012. Opið alla daga kl. 10-17, á fimmtudögum kl. 10-20. ÞÓRA ÞÓRISDÓTTIR MYNDLIST Kvöldið endaði svo á því að Rich bað fólk um að senda sér smáskila- boð ef það vildi fá tónlist hans frítt.30 » „Ég heyrði í allflestum útgefendum og þeir létu vel af sér,“ segir Krist- ján B. Jónasson, formaður Félags bókaútgefenda. „Það barst mikið af heillaóskum, einkum frá Norðurlöndum þar sem framganga Ís- lands vakti mikla athygli.“ Hann segir að margar fyrirspurnir hafi borist frá löndum, sem ekki hafi áður sýnt íslenskum bókmenntum mikinn áhuga, einkum Austur-Evrópu og Asíu. „Hvað Þjóðverja varð- ar er horft til frekara samstarfs við þá sem gefið hafa út ís- lenska höfunda. Og það eru allir í skýjunum með hvernig til tókst.“ Allir í skýjunum ÁHUGI FRÁ ASÍU OG AUSTUR-EVRÓPU  70 þúsund á laugardag – Nýsjá- lendingar stigu dans Kristján B. Jónasson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.