Húsfreyjan - 01.01.1963, Blaðsíða 23
á Laufásklæðinu sé að finna fullkomið
stafróf; þar eru aðeins 16 af 24 stöfum,
sem venja er, að séu í íslenzku útsaums-
stafrófi. Á uppdrættinum, sem hér fylgir,
eru þeir merktir með útfylltum reitum;
eru sumir þessara stafa eins dregnir í
sjónabókinni (t. d. A, I og R). Nokkrir
stafir eru þar þeir sömu, en með annarri
gerð (A, D, I og 0), og auk þess er þar
einn stafur (H), sem ekki er á klæðinu;
HÚSFREYJAN
eru þessir stafir merktir á uppdrættinum
með þrihyrningum. Stafirnir 7, sem vant-
ar í gamla stafrófið (B, C, M, P, X, Y og
Z), eru frumteiknaðir með hliðsjón af
gerð hinna stafanna, og auk þess eru
gerðir viðbótaruppdrættir af nokkrum
hinna (H, R og V); eru þeir merktir með
doppum.
Stafi þessa má nota með ýmsu móti.
Séu þeir saumaðir með krossaumi, fléttu-
23