Húsfreyjan - 01.01.1963, Blaðsíða 31

Húsfreyjan - 01.01.1963, Blaðsíða 31
Orlof húsmæðra í Kópavogi Við lögðum a£ stað í orlof húsmæðra að Laug- arvatni, að morgni hins 1. ágúst. Lagt var af stað frá félagsheimili Kópavogs kl. 9,15 árdegis. 31 kona tóku þátt í orlofinu. Konurnar voru allar mjög ánægðar, er lagt var af stað í þessa fyrstu orlofsferð húsmæðra í Kópavogi. Við ókum með Ólafi Jónssyni, forstjóra stræt- isvagnanna, sem leið liggur austur að Laugar- vatni í einum af strætisvögnum Kópavogs. Ferðin gekk prýðilega og var stanzað við ker- ið í Grímsnesi og það skoðað. Við komum að Laugarvatni kl. 11,20, eða eftir liðlega klukkutíma akstur. Gerður Jóhannsdóttir, kennari húsmæðraskól- ans, tók ó móti okkur og voru viðtökur hinar beztu, eins og hennar er vandi. Vísaði Gerður konunum til herbergja og nokkru seinna var fram borinn matur. Matur- inn var mjög girnilegur, nýr silungur með smjöri orlofsnefndar Borgarness, stjórnendur Jakobína Hallsdóttir og Freyja Bjarnadóttir. Verðlaun voru veitt fyrir bezta frammistöðu og hlutu þau: 1. verðlaun: Ingunn Hjartardóttir, Narfastöðum og Ragnheiður Ólafsdóttir, Borgarnesi. En önnur verðlaun hlutu Laufey Jónsdóttir, Andakílsár- virkjun og Guðfríður Jóhannesdóttir, Litlu- Brekku. Mánudagskvöldið 2. júní var skemmtun og sáu um hana konur úr orlofsnefndum sveita. Til skemmtunar var skuggamyndasýning, sýningar- stjóri Bjarni Helgason, Laugalandi. Þá var leik- þáttur, revía úr Stafholtstungum, leikin af Helgu Vilhjálmsdóttur, kenslukonu Varmalandi og Ól- ínu Gísladóttur Laugalandi. Gítarspil og söng önnnuðust Ragnhildur Einarsdóttir, Svarfhóli, Ólína Gísladóttir, Laugalandi og Ingunn Ingvars- dóttir, Hofsstöðum. Smásögu las Sigríður Þor- valdsdóttir, Hjarðarholti og Ragnhildur Einars- dóttir las einnig upp. Samkomuna setti Þórunn Eiríksdóttir, Kaðalsstöðum og var kynnir. Þriðjudaginn 26. júní, brottfarardaginn, komu orlofsnefndirnar í heimsókn ásamt mæðrastyrks- nefnd Akraness og nokkrum gestum, þar á með- al Sigríði Sigurjónsdóttur, Hurðarbaki, sem er formaður S. B. K. Drakk allur hópurinn saman síðdegiskaffi við fagurlega skreytt veizluborð, ávörp voru þar flutt og þakkir fram bornar af þeim Sigrúnu Jónsdóttur, Brautarholti og Guð- finnu Svavarsdóttur, Akranesi, fyrir hönd þeirra, sem nutu þessa orlofs. HÚSFREYJAN og sveskjugrautur á eftir. Síðan fengum við kaffið borið fram í setustofuna, sem er hin vist- legasta. Gerður Jóhannsdóttir ávarpaði okkur og bauð húsmæður velkomnar. Lýsti hún ánægju sinni yfir því, að verða þess aðnjótandi, að stuðla að því að dvöl okkar hér mætti verða okkur til ánægju og hvíldar. Setti hún okkur nokkrar meginreglur, sem bæði voru fáar og fábreyti- legar.Bað okkur að njóta lífsins í ríkum mæli, og lét okkur vita, hvenær máltíðir yrðu born- ar fram. Áhyggjulausar nutum við máltíðar- innar, og þurftum ekki að þvo leirtauið á eftir. Dásamlegt. Eftir máltíðina dreifðist hópurinn. Sumar kon- urnar fóru í gufubað, sem er alveg dásamlsgt. Aðrar fóru I gönguferðir eða hvíldu sig eftir amstur undanfarinna daga. Um kvöldið fór fram kvöldvaka. Áslaug Egg- ertsdóttir, formaður hópsins okkar, ávarpaði Jórunn Guðmundsdóttir tjáði hug sinn f svo- hljóðandi ljóði, sem hún las upp: Fyrsta flokks fæði, fyrsta flokks gleði, fyrsta flokks samkomulag, fyrsta flokks gæði, allt fallegt, sem skeði. fram á síðasta dag. Að þessu loknu buðu orlofsnefndirnar og mæðrastyrksnefnd öllum hópnum í ferðalag um Borgarfjörð. Var ekið sem leið liggur inn Hvít- ársíðu til Kalmanstungu og um Hálsasveit til baka, staðnæmst hjá Barnafossum í ágætu veðri og litast um, til að njóta hinnar dásamlegu nátt- úrufegurðar þar. Þvi næst var haldið af stað og ekið að Reykholti, þar var kirkjan skoðuð, ekið síðan áfram syðri leið um Reykholtsdal að Hvít- árvallaskála, þar snæddur kvöldverður í boði sömu nefnda og áður, veizlumatur í góðum fagn- aði. Voru ávörp flutt og skilnaðarræður og ríkti þar gleði og fjör. Alls voru þarna um 60 konur. Nú tók skilnaðarstundin að nálgast, og kvöddust því þær, sem ekki áttu samleið heim, með þakk- látum huga og margar hugljúfar endurminn- ingar, sem geymast munu um ókomin ár, um þessa fyrstu vel skipulögðu og áuægjulegu or- lofsviku. Ragnheiður Ólufsdóttir. 31

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.