Vera - 01.11.1986, Blaðsíða 4

Vera - 01.11.1986, Blaðsíða 4
Rætt við Ellen Dietrich um nýjar leiðir í friðarbaráttunni » ,,Gerum friðarstarfið meira aðlaðandi" Dagana sem fundur þeirra Reagans og Gorbachevs stóð yfir hér í Reykjavík flykktist eins og kunnugt er mikill fjöldi fólks til landsins þar á meðal voru 9 konur frá samtökunum Women for a Meaningful Summit (WMS), sem þýðir konur fyrir árangursríkum leiðtogafundi eða toppfundi. Þau samtök voru stofnuð fyrir ári síðan í tengslum við fyrsta fund leiðtoganna í Genf. Að samtökunum standa yfir 60 bandarískar hreyfingar auk fjölmargra alþjóðlegra samtaka. Auk annars hafa konur í samtökunum Women for a Meaningful Summit safnað rúmlega einni milljón undir- skrifta undir áskorun til leiðtoganna úr austri og vestri um að semja af ábyrgð og alvöru um afvopnun og frið. Ellen Dietrich, frá Vestur- Þýskalandi, var ein þeirra níu kvenna sem hér dvöldu í nokkra daga. Vera hitti hana aö máli stutta stund, þreytta og kvefaða, enda var hún bú- in aö standa úti í slagviðri framan við Höfða meira og minna í tvo sólarhringa, í þeim tilgangi að reyna að koma á framfæri kröfum um afvopnun og frið til þeirra sem þar sétu við samninga- borðið með fjöregg mann- kynsins á miili sín „Ég helga friðarbaráttunni allan minn tíma og hef gert það síðan börnin mín uxu úr grasi og fóru að sjá um sig sjálf. Eg er í hópi 40 þúsunda atvinnulausra kennara í Vest- ur-Þýskalandi og nota þess vegna tímann eins og mér finnst honum best varið. í Þýskalandi stendur maður frammi fyrir kjarnorkuógninni daglega og þaö er ekki hægt að láta eins og þessi mál komi manni ekkert við. í Vest- ur-Þýskalandi eru staðsettar 6 þúsund kjarnorkueldflaugar og hervæðingin eykst með hverju árinu sem liður. Veru- leiki fólks þar er skyggður yfirvofandi ógnunum og þær hafa áhrif á daglegt líf al- mennings. Vissir þú að með 50 km. millibili yfir allt V.- Þýskaland eru staðsettir her- flugvellir og bandarísk og bresk kjarnorkuver? Núna er verið að koma fyrir langdræg- um eldflaugum í Hasselbach í Húnsrúck fjöllum og fyrir nokkrum dögum síðan söfn- uðust þar saman um 200.000 manns til að mótmæla upp- setningu eldflauganna, fólk hvaðanæva að í Þýskalandi. Mér skilst að frá þessu hafi ekkert verið sagt í íslenskum fjölmiðlum. Þið hér á íslandi ættuð að fara að hugsa alvarlega ykkar gang, þar sem búið er að koma fyrir meira en 3 þúsund langdrægum kjarnorkueld- flaugum í kafbátunum sem staðsettir eru í hafinu á milli íslands og Noregs." Ellen Dietrich hefur látið sig baráttuna fyrir friði miklu varöa í 26 ár eða frá þvi árið 1960, en þá vann hún hjá kvennablaðinu Courage sem stóð fyrir mótmælum vegna uppsetninga eldflauga í Þýskalandi. Oft var þörf en nú er nauðsyn, segir Ellen, nú á ári friðarins. Hún segist hafa gengið þrjú þúsund og fimm hundruð kílómetra á sið- ustu árum í þágu friðar — ásamt miklum fjölda fólks. Frá Kaupmannahöfn til París- ar, Berlin til Vínar og frá Dortmund til Brussel. Það liggur beint við að spyrja Ellen hvaða leiðir hún telji í Ijósi fenginnar reynslu árangursríkastar til að ná til fólks og settum markmiðum. ,,Þú spyrð um leiðir í bar- áttunni. Ég vil nefna þrjár sér- staklega mikilvægar að mínu mati. í fyrsta lagi að fara út á meðal fólks en bíða ekki eða vænta þess að fólk komi á fundi til okkar. Götuleikhúsin okkar vekja alltaf mikla athygli, göngur um götur og torg þar sem margt er um manninn, með uppákomum, táknrænum búningum, ræðu- höldum og söng. Friðarvagn- inn, sendiferðabíll sem okkur áskotnaðist, hefur farið víða um Evrópu og við sett upp friðarbúðir á ótal stöðum, núna síðast í Dublin. Þar er ástandið ömurlegt og ofan á allt annað er 90% ungling- anna þar atvinnulaus. En það er önnur saga. í öðru lagi er mikilvægt að gera friðarbaráttuna að- laðandi, ef svo má að orði komast. Það er að leggja áherslu á jákvæðar hliðar í stað neikvæðra. Og í þriðja lagi er brýnt að friðar- hreyfingar kvenna um allan heim tengist saman, yfir öll landamæri." — Hvað tekur nú við, þeg- ar lokið er árangurslausum toppfundi í Reykjavík? „Konur í samtökum okkar hittast núna í nóvember i Aþenu í boði Margrétar Pap- ■ andreu og þar ræðum við framtíðina, meðal annars hugmyndiria um toppfund kvenna, alþjóðlega ráðstefnu kvenna um friðarmál. Áhersl- an hlýtur að verða fyrst og fremst á það hvernig koma megi í veg fyrir stjörnustríð. kaá. 4

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.