Vera - 01.12.1990, Blaðsíða 2

Vera - 01.12.1990, Blaðsíða 2
Nú er níunda starfsári VERU að ljúka. Á þessum níu árum hefur VERU tekist að afla sér fleiri áskrifenda en nokkurt annað tímarit um kvenfrelsisbaráttu á Norðurlöndum. En ekki eru allir sammála um hvernig VERA eigi að vera. Konur eru mislitur hópur og kjör þeirra, skoðanir og áhugamál eru afskaplega ólík. Askrifendur blaðsins eru á öllum aldri, jafnt ungar stúlkur sem ekki muna kvennafrídaginn og eldri konur sem muna tímana tvenna. Lesendurnir eru konur sem í áratugi hafa barist með kjafti og klóm fyrir bættum kjörum kvenna, konur sem eru að vakna til meðvitundar um þessi mál og líka konur sem finnst hagur kvenna ekkert svo ýkja slæmur. „Mér finnst alltof mikið skrifað um konur í blaðið", sagði ein um daginn þegar hún sagði upp áskrift. Öðrum finnst það ekki fjalla nóg um konur. Sumum finnst blaðið of þungt, öðrum of léttvægt. Sumum konum finnst VERA svo lítið spennandi að þær hafa ekki lyst á að fletta henni, aðrar geyma hana í möppum handa komandi kynslóðum. Um leið og ritstjórn VERU óskar lesendum nær og fjær gleðilegra jóla, hvetur hún konur til að láta í ljósi skoðanir sínar, munnlega eða skriflega, um það hvernig VERA eigi að vera. BÁ 6/1990 — 9. árg. VERA Laugavegi 17 101 Reykjavík Útgefendur: Samtök um Kvennalista og Kvennaframboö í Reykjavík. Sími 22188 Forsíða: Sigurborg Stefánsdóttir Ritnefnd: Anna Ólafsdóttir Björnsson Guörún Ólafsdóttir Hildur Jónsdóttir Hrund Ólafsdóttir Inga Dóra Björnsdóttir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Kristín Karlsdóttir Laura Valentino Starfskonur Veru: Björg Árnadóttir Ragnhildur Vigfúsdóttir Vala Valdimarsdóttir Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir Elfrida Andrée (1841-1929) Læknisdóttirin Elfrida Andrée frá Got landi er einn mesti frumkvöðull í sænskri kvennasögu. Hún var fyrsta konan sem lærði til organ- ista, fyrsti kvenkyns dómorgan- istinn og hljómsveitarstjórinn. Auk þess var hún fyrsta rit- símadaman í Svíþjóð, en það starf varð síðar vinsælt kvenna- starf. Eins og gefur að skilja gekk það ekki átakalaust fyrir Elfridu að ryðjast inn í öll þessi karlmannastörf. En hún trúði ekki bara á eigin hæfileika heldur trúði hún á kvenkynið og barðist ákaft fyrir auknum réttindum kynsystra sinna. Og fað- ir hennar stóð við hlið hennar í allri þessari bar- áttu og studdi hana með ráðum og dáð. Fjórtán ára gömul flutti hún til Stokkhólms til að læra á orgel. Þar sem aðeins körlum var leyft að læra á orgel í tónlistarskólunum sótti hún einkatíma. Samkvæmt lögum fengu bara karl- menn að starfa sem organistar, en Elfrida og faðir hennar stóðu í stöðugum bréfaskriftum við þing- menn til að fá lögunum breytt. Þeim tókst það og rúmlega tvítug fékk hún vinnu sem organisti. Jafnframt fór hún að vinna við ritsímann og einnig á því sviði urðu bréfaskriftir feðginanna við ráðamenn til þess að konum var leyft að vinna starfið. Sinn stærsta sigur, bæði í kvennapólitík og á tónlistarsviðinu , vann Elfrida þegar hún fékk stöðu dómorganistans í Gautaborg, 26 ára. Þeirri stöðu hélt hún til dauðadags. Hún þótti einn besti orgelleikari landsins og fólk hópaðist í kirkjuna til að heyra í henni. En ekki var Elfrida ánægð. Nú byrjaði hún af eldmóði að semja kammertónlist, sinfóníur og óperur. Fyrstu tón- verkunum var ákaflega illa tek- ið, en með tímanum var farið að veita henni eftirtekt sem tón- skáldi og hún fór sjálf að stjórna sinfóníuhljómsveit Gautaborg- ar þegar verk eftir hana voru flutt. Til að byrja með naut hún velvildar stjórnenda hljómsveitar- innar, en síðar komu nýir stjórnend- ur sem gerðu allt til að hindra flutning verka hennar. Þegar flytja átti Ballöðu fyrir hljómsveit, einsöngvara og kór reyndu stjórn- endur hljómsveitarinnar með öllum ráðum að fá hljóðfæraleikara og söngvara til að mæta ekki á æfingar. Þeir slepptu því að boða á æfingar og reyndu að telja tónlistarfólkið á að taka ekki þátt í þessu. En bæði hljómsveit og kór studdu Elfridu eindregið og flutningur verksins varð hápunktur ferils hennar sem tónlistarmanns. I tilefni alþjóðlegs þings um kosningarétt kvenna sem haldið var 1911 samdi Elfrida kant- ötu fyrir kór og hljómsveit. Stjórnendum þings- ins fannst að vel mætti flytja verkið með píanó- undirleik. En Elfrida var ekki á því. „...heldur borga ég hljómsveitinni úr eigin vasa en að hætta við þetta. I fyrsta lagi hef ég samið verkið með hljómsveit í huga og í öðru lagi verður tónlistin í meira lagi kerlingarleg við pínulítið píanóspil. Rúmum sextíu árum eftir dauða sinn er Elfrida Andrée enn mesta kventónskáld Svía. Útlit: Kicki Borhammar Harpa Björnsdóttir Ábyrgð: Björg Árnadóttir Ragnhildur Vigfúsdóttir Textavinnsla og tölvuumbrot: Edda Harðardóttir Filmuvinna: Prentþjónustan hf. Prentun og bókband: ísafoldarprentsmiðja hf. Plastpökkun: Vinnuheimilið Bjarkarós Ath. Greinar í Veru eru birtar ó óbyrgö höfunda sinna og eru ekki endilega stefna útgefenda. 2

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.