Vera


Vera - 01.02.1997, Blaðsíða 50

Vera - 01.02.1997, Blaðsíða 50
síðu d a m s ú r ey/'a /icu/hí /evf l * e/i //ö(//ii/t ,se(ji/1 //ie.sf. Ég trúi að hlátrasköll og mikill hæðnis- tónn hefði heyrst í skólafélögum mínum fyr- ir 20 árum í Menntaskólanum að Laugar- vatni ef ég heföi sagst ætla að verða prestur. í dag er ég prestur og að flestu leyti ánægður með starf mitt. En sá hlátur hefði þó að engu orðið og væntanlega heföu ein- hverjir misst meðvitund og verið með strengi í kvið, jafnvel niðurgang nokkurn tíma á eftir af hlátri, ef ég hefði tilkynnt við stúdentsútskrift mína að ég ætlaði mér að skrifa í Veru, málgagn „Samtaka um kvennalista’’, I byrjun árs 1997. Nú er það að gerast og ég er stoltur af því. Svo mikið getur gerst í lífi hverrar manneskju aö eng- inn skyldi nokkru sinni dæma fyrirfram um skoðanir eða lífshlaup. Það sem áður voru dómar, eru oftídagfordómarað minni hyggju. Svo oft hef ég reynt það á sjálfum mér. Titill hugleiðinga minna ber það einkenni- lega en vonandi frumlega nafn: „Lítil eyru heyra best’’, en þögnin segir mest. Ég neita því ekki að dægurlagatextinn ágæti:,, Lítil t___i lengjast mest’’, á pínulítinn heiður að þessum titli. Þannig er mál með vexti, að frá því ég varð prestur í Vík hefi ég átt því láni að fagna að fermingarbörn og unglingar hafa verið tíð- ir gestir á heimili mínu. Ég vildi að allir gætu þekkt af eigin reynslu hvað það er yndislegt að fá að hlusta á reynslu og upplifanir smækkaðrar myndar af fullorðnum mann- eskjum. Ungs fólks sem er að fóta sig í líf- inu. Sumir uppfullir framtíðaráætlana en aðrir svo undur ráðvilltir. Elstu fermingar- börnin mín (unglingarnir mínir á „eftirlauna- aldrinum”), sem eru að feta sig um stigu ástarinnar og mannlegra samskipta, í at- vinnulífinu eða framhaldsnámi. Hversu oft hef égekki fengið að heyra um þennan línu- dans sem lífið er. Ég veit í raun fátt nota- legra en þegar bjöllunni er hringt á heimili En sem betur fer er munnurinn að minnka og heyrnin að batna mínu, jafnt að degi sem nóttu (oft eftir dans- leiki) ogfyrir utan stendur ráðvillt, lítil mann- eskja sem þarf bara að fá að tala stutta stund og kannski gráta pínulítið. Af reynslu minni sem „herra viðgerðamanni”, þótti mér fýrst lítið til mín koma ef ég gat ekki sent alla frá mér með fulla pyngju af ráð- leggingum ogfullyrðingum, en síðar lærðist mér (og ég er enn að læra) að besta og raunar það eina sem verið er að biðja um er þögull skilningur, hluttekning og samúð. Ég held ég hafi ekki nema meðalstór eyru, en þau virðast duga. Ég hef reyndar nokkuð stóran munn. í það minnsta langar hann oft að segja eitthvað gáfuiegt. En sem betur fer er munnurinn að minnka og heyrnin að batna. Vonandi heldur það áfram. Ég met alla vináttu mikils og er stoltur yfir því að vera trúað fyrir leyndum hugsunum vina minna. Stoltastur er ég þó af öllum þeim fjölmörgu ungu vinum sem ég hef eignast síðustu ár. Ef til vill er það vegna þess að mér líður svo oft eins og unglingi á ný með- an ég hlusta. Lesendum Veru langar mig að segja eitt sem ég hef kynnst og skiptir máli. Konur eru einhvern veginn opnari en karlar. Ef ég mætti gefa strákunum mínum ráð þá er það einfalt. Verið óhræddir að koma til dyranna eins og þið eruð klæddir. Þið getið það alveg eins og stelpurnar. Áramót eru sérstök í lífi okkar allra, en á mínu heimili hefur sú hefð komist á að hing- að safnast ungu vinir heimilisins eftir mið- nætti, til að spjalla við okkur hjónin og eiga notalega stund. Stund sem mest er þó fólg- in í að hlusta og þegja af okkar hálfu. Áramóta- dansleikur- inn í Vík verö- ur því oftar en ekki að vera án „besta og skemmtileg- asta fólksins”. Stundum eltum við þau samt bara á ballið og höfum gaman af. Þegar Þjóðkirkjan stendur á svonefndum krossgötum, sakna ég þess sárlega hve lít- ið heyrist um þær fjölmörgu stundir sem við prestar verjum í að hlusta á fólk í vanda. Ef til vill höfum við sjálf ekki gefiö nægan gaum að því hve mikilvægt þetta starf okk- ar er. En hinu er heldur ekki að leyna að margt af því sem við gerum er trúnaðarmál milli okkar og skjólstæðinganna. Að vinna hug unga fólksins, fá það til að tjá sig, full- vissa það um hve eðlilegar tilfinningar þess eru, er án minnsta vafa það dýrmætasta sem ég hef reynt. Ráð mitt til starfssystkina minna er því það sama og ég veit að flest þeirra vita vel og iðka, en góð vísa er sjald- an of oft kveðin: „Það er dýrmætt að geta talað mörg tungumál, en ómetanlegt að geta haldið sér saman á einu þeirra" . Við elsku vini mína ungu segi ég: Haldið áfram að koma til mín og Gullu (konunnar minnar) og við skulum lofa að halda í heiðri oröin: „Ef ég varðveiti leyndarmál er það fangi minn. Sleppi ég því lausu verð ég fangi þess”. Haraldur M. Kristjánsson sóknarprestur í Vík

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.