Akranes - 01.11.1945, Blaðsíða 1

Akranes - 01.11.1945, Blaðsíða 1
IV. ÁRGANGUR NÓVEMBER 1945. 11. TÖLUBLAi) „Lýðuriun ferst, þar sem engar vitranir eruu Þessi vísdómsorð spámannlegs innsæis þyrfti að hrópa til þjóðanna, ekki einu sinni, heldur án afláts og hamra þau með kraftprédikun guðlegrar vandlætingar inn í meðvitund kyn- slóðarinnar. — „Lýðurinn feist, já, bókstaflega ferst, þar sem engar vitranir eru, þar sem menn sjá ekki sýnir — guðlegar sýnir, þar sém menn lifa fyrir munn og maga, en ekki há- leitar og göfugar hugsjónir öllu mannkyni til heilla og bless- unar. Það er vægðarlaust lögmál og miskunnarlaus dómur reynsl- unnar, að „lýðurinn ferst, þjóðirnar lenda í byltingum, styrj- öldum, fátækt og eymd, þar sem þær tilbiðja nautnir, þæg- indi og sællífi, en sjá ekki hin háu takmörk, brenna ekki af guðlegum móði fyrir hinum andlegu og eilífu hnossum, hin- um háu takmörkum andans. Þegar þjóðir eiga ekki eitthvert sameiginlegt baráttumál, sem tengir þær saman í eina sterka heild og knýr þær áfram í drengilegri sókn til sigurs og fullkomnunar, þá horfa þær inn í sig sjálfa og „blindast“, eins og skáldið Einar Benedikts- son orðar það. Börn þeirra verða „vænglausir hugir“, sem „heftast og bindast“ einmitt við allt sem lamar og dregur niður á við til glötunar, því að kyrrstaða er dauði. Þegar rangsnúin kynslóð gerir ljós að myrkri, sætt að beiskju og svart að hvítu, svo að í stað þess hetjudáðar, sem eldur áhugans jafnan kveikir í brjóstum manna, kemur værð og kveifarháttur, leti, dáðleysi, kæruleysi, samvizkuleysi, létt- úð og svall; í stað guðshyggjunnar kemur efnishyggja, í stað hugsjóna koma nautnir, í stað ræktun sálarlífsins í samfélagi við hinn eilífa og máttuga kemur eftirlæti við hold og blóð og dýrslegar girndir þess, þá hafa menn „magann fyrir sinn guð og þykir sómi að skömmunum“, þá tilbiðja menn skepn- una í stað skaparans og þá ofurselja örlögin kynslóðina til eyðingar. Betri lýsingu er ekki hægt að gefa af lífi margra þjóða á milli heimsstyrjaldanna síðustu og sumra þeirra jafnvel á sjálfum styrjaldarárunum, eins og til dæmis íslendinga, en að þær hafi haft magann fyrir sinn guð og þótt sómi að skömmunum. Menn kvöddu hinar fornu dyggoir, gerðu gys að sjálfsafneitun, bindindi og skírlífi. Jafnt húir sem lágir gáfu sig á vald nautnum, svalli og siðleysi. Menn sviku, ginntu og göbbuðu hver annan, og í öllu moldviðri stjórnmálaglund- roðans æstust menn upp í dýrslegri græðgi utan um þann eina feng, sem hjarta þeirra girntist. Þeir hugsuðu um það eitt, að rífa tii sín, hver og einn, en misstu svo allt. Þeir sáu engar guðlegar sýnir, fengu engar vitranir, en þreifuðu sig áfram fálmandi í því illviðri, sem þeir höfðu sjálfir seitt og magnað. Mjög þekktur rithöfundur og blaðamaður, Petev Howard, sem einnig er frægur íþróttamaður, hefur nýlega skrifað bók, sem heitir Ideas have legs — hugsjónir eru fóthvatar, gætum við þýtt það lauslega. Hann bendir fyrst á þá staðreynd, að á meðan nazisminn og kommúnisminn kyntu bál þeirrar nýju trúar og markvissu hugsjónar, áttu þjóðir eins og Englend- ingar eiginlega enga aðra hugsjón en þá, sem hver og einn þegn þjóðfélagsins átti út af fyrir sig, og sú hugsjón var eig- inhagsmunir, nautnir og þægindi. Þessi blaðamaður var mjög kunnugur lífinu í Fleet Streei, blaðamannahverfinu í London og mjög handgenginn ýmsum ráðamönnum þjóðarinnar og háttsettum mönnum. Hann nefn- ir nokkur dæmi sem sýnishorn siðgæðis þeirra sumra. Einn kunningja hans, sem nú er mjög háttsettur maður í Englandi sagði eitt sinn: „Pétur, ef þú vilt komast áfram í heiminum, þá skalt þú draga nokkuð úr drykkjuskap þínum, en njóta heldur lífsins með kvenfólkinu.“ Peter Howard gerir þá athugasemd við þetta heilræði, að „allmargir kunningja sinna hafi vanrækt fyrri hluta heil- ræðisins, en fylgt niðurlaginu. Hann vitnar svo í Hitler, sem segir: „Vér dáumst að ungu stúlkunni, sem í verkinu sýnir, að hún fyrirlítur hin úreltu siðaboð með því að eiga barn sitt utan hjónabands." En prófessor Ernst Bergman sagði, samkvæmt sömu heimild: „Sem betur fer er því svo háttað, að einn kynsæll unglings- piltur dugar handa 20 stúlkum, og þær mundu með gleði sætta sig við slíkt fyrirkomulag, ef ekki væri um að kenna hinum heimskulegu svokölluðu siðferðishugmyndum manna um einkvæni og staðfestu hjónabandsins.“ Þá minnist Peter Howard einnig á Rússland og getur þess, að um tíma hafi það verið regla þar í landi á millistríðsárun- um, að eiginmaðurinn hafi ekki þurft annað en senda bréf- spjald og tjá, að hann kærði sig ekki um að búa lengur með konu sinni, og var skilnaðurinn þá fenginn. Hann getur þess og, að frú Simonovitsch hafi skrifað í Pravda þessi orð: „Æska landsins lifir samkvæmt vissum lífsreglum, og þær grundvallast á þeirri trú, að því lengra sem menn gangi í öfgunum, þeim öfgum, sem svari helzt til hinnar frumstæðu hneigðar skepnunnar í kynferðismálum, því betri kommúnist- ar séu þeir.“ „Sumir kunningjar mínir í stjórnmálalífinu,11 segir Peter Howard ennfremur, „gerðu gys að hinni gömlu kenningu, að það sem Guð hafi sameinað, megi maðurinn ekki sundur- skilja.“ Hjónaskilnaðir í Bretlandi, segir hann, að hafi tvö- faldazt. Árið 1923 ferðaðist blaðamaður frá Ameríku um Þýzkaland. Hann hét S. Miles Bouton. Hann birti allmikla ritgerð um það, sem hann hafði séð og heyrt. Þar segir meðal annars: „Það eru þúsundir skólabarna í Berlín, á aldrinum 6—14 ára, er ganga í fylkingum og bera fána, sem á er letrað: „Burt með Guð úr skólunum. Gefið okkur skóla, sem hæfir nútím- anum. Trúin er svefnmeðal.“ Rúmlega hálf milljón manna sagði sig úr kristinna manna söfnuðum í Þýzkalandi árin 1919 og 1920. Aðalmálgagn sósíal- istaflokksins, sem þá var blaðið Vorwarts, taldi það bera mjög þess vott, hve fólk væri að vitkast, að tvær þúsundir manna

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.