Bræðrabandið - 01.09.1985, Blaðsíða 10

Bræðrabandið - 01.09.1985, Blaðsíða 10
 með Kristi við kætumst fyr' krossdauðans bót. KRISTBJÖRG QLAFSDÓTTIR f.27.júLí 1937. D.22.júní 1985. Andspænis dauðanum setur okkur alltaf hijóð. Þá finnum við svo átakanlega til vanmáttar okkar. Hann kemur alltaf svo óvænt þó við höfum lengi búist við honum. Þannig urðu viðbrögð okkar hjónanna, þegar síminn hringdi s.l. laugardags- morgunn tii að tilkynna okkur að lífsbaráttu Diddu væri lokið. Þá kom eftirfarandi kveðja mér í hug. Heð hennr vil ég færa þér, Didda mín ástarkveðjur og þakkir fyrir samvistina og þá lexíu sem þú kenndir okkur að bjargföst trú og hugrekki er ekki háð líkamlegrL hreysti. Og Birgir - sem bróðir hinnar látnu vil ég þakka þér innilega fyrir umhyggju þína og umönnun fyrir henni öll þessi erfiðu ár. Hún Didda er dáin - drungaleg orð. Lofði með ljáinn Líður uin storð. Nú systir hér sefur - svefninn er grið - uns Gjafarinn gefur gersemi1 og frið. 5em móðir hún mæddist mörgum í hag. Ei helsvefninn hræddist hetjan einn dag. Víöa á vegi hún veitti oss fró. Drottins á degi drottning fékk ró. Hún Didda er dáin - dauðinn er sorg. En eftir er þráin um eilífa borg. Að morgni er mætumst - ó, mælum oss mót - Er þjáningar ei lengur lönd í lamafjötra hneppa þá hlttumst sæL á sólarströnd þar sigurlaun að hreppa. Guðmundur og fjölskylda. Kristbjörg Ólafsdóttir Kristbjörg Ólafsdóttir, eða Didda, eins og allir kölluðu hana, fæddist 27. júlí 1937 á heimili foreldra sinna, Rósu Teitsdóttur og Ólafs Ingimundarsonar, Austurgötu 15, Keflavík. Didda var elst fjögurra systkina. Bróðir hennar, Guðmundur, er búsettur í Bandaríkjunum - Sigurvin býr í Noregi og systir hennar, Sigurfríð, er búsett í Danmörku. 26. júlí 1956 giftist Didda Birgi Guðsteinssyni frá Vestmannaeyjum. Þau eignuðust fjórar dætur: Rósmary, sem búsett er í Noregi, Ölfu Lind, sem býr í Hafnarfirði, Birgit Huld, sem býr í Bandaríkjunum og Si.Lju Ólöfu, sem er enn í heimahúsum í Noregi. Didda átti lengi við sjúkleika að stríða. í von um að betra loftslag í Noregi inyndi auðvelda henni baráttuna flutti fjölskyldan til Noregs fyrir sex árum, og hafa þau verið þar síðan. Didda var mikið á sjúkrahúsum, al.lt upp í 11 mánuði eitt árið. En þrátt fyrir stöðugt hnignandi heilsu kvartaði hún aldrei. Það lýsir kjarki hennar og þrautseigju vel að fyrir 30 árum voru henni ætluð aðeins 5 ár í viðbót til að lifa. Á meðal ættingja og vina var talað um Diddu sem gangandi kraftaverk. Oft lá hún fyrir dauðanum, en alLtaf reis hún aftur á fætur til áframhaldandi þátttöku í lífinu. Sem dæmi um lífsorku DLddu og óbugandi kjark má geta eins atviks úr lífi hennar. Þegar undirbúningur að brúðkaupi dóttur hennar, Birgittu, stóð sem hæst var Diddu vart hugað líf og almennt talið að hún myndi ekki lifa það að sjá brúðkaupið, sem hún þó þráði svo mikið. t þessu ástandi bað hún móður sína að sauma sér svuntu sem hana vantaði á 10

x

Bræðrabandið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.