Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2006, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2006, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 2006 Fréttir DV Ölvaður ók á Bifreið var ekið utan í annan bíl við framúrakstur á Skutulsfjarðarbraut að- faranótt sunnudags að því er fram kemur á bb.is. Þeg- ar lögregla kom á vettvang var ekki ljóst hver ökumað- ur bílsins sem ók framúr var en alls voru fjórir aðilar í bflnum þegar áreksturinn varð. Fjórmenningarnir virtust allir vera undir áhrifum áfengis og voru þeir handteknir og færðir í fangaklefa. Eftir að hafa sofið úr sér voru þeir yfir- heyrðir og upplýstist þá hver ökumaður bflsins var. Hann er eins og áður segir grunaður um ölvun við akstur. ÍRB fékk hæsta styrkinn AIls var úthlutað kr. 1.086.939 úr Forvamarsjóði Reykjanes- bæjar árið 2005 til 9 fé- laga og ein- staklinga að því er fram kemur á vef Reykjanesbæj- ar. Stærsti styrkurinn, 400.000 krónur, var veittur íþróttabandalagi Reykja- nesbæjar vegna forvarnar- verkefnis. Það fól í sér gerð kennsluefnis og fræðsluer- indi vegna viðbragðsáætí- ana við einelti og gruns um að iðkandi neyti ólöglegra lyfja. Fyrirlestrar verða haldnir fyrir þjálfara, stjórnarmenn og fleiri. . Velti en keyrði í síðustu viku varð bfl- velta á Suðurlandsvegi á móts við Núpsbæi undir Eyjaíjöllum. ökumaður var einn í bflnum og slapp hann ómeiddur. Lögreglan segir að ökumaður hafi fengið aðstoð við að rétta bifreiðina við og koma henni upp á veginn aftur. Eftir að hafa skipt um einn hjólbarða gat hann haldið ferð sinni áfram. Bfllin var lítið skemmdur eftir óhappið. „Það liggur á að setja upp nýja stúdíóið og koma öllu í gang þar/'segir Gísli Galdur Þor- geirsson, plötusnúður og Trabant-meðlimur.„Við vorum að flytja í nýtt húsnæði í Star- Hvað liggur á? um eft- ir að setja upp milliveggi og einangrun og fá púlborðið inn. Síðan er bara að telja í." HLYKJANBÖBÆIk, Reykjavíkurborg hefur að tillögu Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur borgarstjóra keypt kínverskan veitingastað og tvær íbúðir á Laugavegi 19 fyrir samtals 175 milljónir króna. Seljendur eru Ari og Margrét Huynh. Húsin verða rifin. Arkitektar borgarinnar telja þetta lykileignir fyrir „heildstæða uppbyggingu“ á reitnum sem afmarkast af Laugavegi, Klapparstíg, Hverfisgötu og Smiðjustíg. Einkahlutafélagið Burma er nú komið í eigu Reykjavíkurborgar fyrir 140 milljónir króna. Burma átti Laugaveg 19 þar sem veit- ingahúsið Indókína er enn í rekstri. Einnig kaupir borgin lítið bakhús á lóðinni fyrir 35 milljónir. Reykjavíkurborg hefúr einsett sér Fyrir hvem þessara fermetra er borg- að stuðla að uppbyggingu á reit sem markast af Laugavegi, Klapparstíg, Hverflsgötu og Smiðjustíg. „Ein af ástæðum þess að erfiðlega gekk að hefja uppbyggingu á reitnum var að eignir á honum vom í eigu fjöl- margra aðila. Til að stuðla að því að af heildstæðri uppbyggingu gæti orðið sem myndi efla og styðja við mið- borgina var ákveðið að ráðast í kaup á eignum á reitnum," segir í greinar- gerð Kristínar Einarsdóttur, fram- kvæmdastjóra Skipulagssjóðs Reykja- vflcur. Greinargerð Kristínar er skrifuð til borgarráðs sem samþykkti fyrir helgi tillögu Steinunnar Valdísar Óskars- dóttur borgarstjóra um að kaupa fast- eignina Laugavegur 19 fyrir 140 millj- ónir króna. Hálf milljón á fermetra Skipulagssjóður borgarinnar hefur áður keypt bakhúsið á Laugavegi 19B fyrir 35 milljónir króna. Það hús var í eigu veitingamannsins Ara Huynh sem ásamt Margréti Huynh, eigin- konu sinni, átti einkahlutafélagið Burma sem átti húsið á Laugavegi 19. Borgin greiðir Huynh-hjónunum 175 milljónir króna fyrir húsin tvö. Fremra húsið er rúmir 500 fermetrar og skiptist í 400 fermetra veitingahús og 104 fermetra íbúð. í aftara húsinu er 105 fermetra íbúð. Samtals eru húsin því tæpir 610 fermetra. Undir húsunum er 364 fermetra eignarlóð. in að greiða 480 þúsund krónur. Huynh-húsin eru lykileignir Húsin verða bæði rifin til að rýma fyrir hugmyndum að framtíðarskipu- lagi reitsins sem ætíað er að vera „heildstætt" eins og segir í greinar- gerð Kristínar: „Skipulagssjóður hefur látið skoða í samráði við Skipulags- og bygging- arsvið með hvaða hætti hægt væri að byggja upp á reitnum til að ná ffam fyrrgreindum markmiðum. Nú þegar á Reykjavíkurborg nokkuð stóran hluta eigna á reitnum. Að mati arki- tekts sem unnið hefur að málinu fýrir Skipulagssjóð og arkitekta Skipulags- og byggingarsviðs em Laugavegur 19 og 19A lykileignir til að af heildstæðri uppbyggingu geti orðið,“ segir í grein- argerðinni. Grand Rokk selt á 100 milljónir Samkvæmt Fasteignamati ríkisins em það talsvert margir einstaklingar og fyrirtæki sem eiga eignir á áður- nefndum reit sem að undanförnu hefúr stundum verið kenndur við öldurhúsið Grand Rokk á Smiðjustíg 4B. Það hús, sem er 311 fermetrar, var selt nýverið fyrir 100 milljónir króna. Lóðin undir því húsi er aðeins 196 fermetrar. Verðið á lóðafermetra þar var því um 510 þúsund laón- ur eða svipað og á Laugavegi 19. Keppa ekki við einkaaðila Kristín segir við DV að borginni hafi boðist að kaupa Smiðjustíg 4B. Aðrir hafi hins vegar boðið í þá eign og þess vegna hafi það ekki þjónað til- gangi að sækjast eftir þeim kaupum. „Við ætíum ekki að keppa við einkaaðila heldur er tilgangurinn hjá skipulagssjóði að örva uppbygging- una," segir Kristín við DV. Samkvæmt upplýsingum Kristínar hefur skipulagssjóður frá og með ár- inu 2004 keypt bakhúsið á Laugavegi 17, Hverfisgötu 32, 32A, 32B og 34. Með kaupunum á Laugavegi hafi samtals verið varið 380 milijónum í uppkaup á reitnum. Þess utan eigi borgin frá fyrri tíð bflastæðalóðina Hverfisgöm 30. Fá að vera út árið Ari og Margrét fá að halda Lauga- vegi 19 endurgjaldslaust fram til 1. júm'. Síðan hafa þau samning um leigu á húsinu til 31. des- ember á þessu ári þeg- ar borgin tekur loks við eign sinni. Leigan verður 450 þúsund krónur á mánuði. „Nú þegar á Reykja- vfkurborg nokkuð stóran hluta eigna á reitnum Hjónin munu síðan taka með sér aiiar innréttingar og tæki á nýjan stað þar sem þau hyggjast halda áfram veitingarekstri sínum. Halda sig til hlés Ari og Margrét hafa rekið Indókína frá árinu 1997 af mikilli elju. Þau hafa átt húsin á Laugavegi 19 og 19B frá árinu 1994. Gera má ráð fyrir að hagnaður þeirra af sölunni sé umtalsverður. Ekki náðist tal af Ara og Margréti í gær. Sonur þeirra sagði fjölskylduna engar upplýsingar viija veita um málið. gar@dv.is Ari Huynh Veitingamað- urínn I Indókina hefur selt og kveður Laugaveg 19 i árslok. Halda á rekstrínum áfram á nýjum stað. Kristín Einarsdóttir Fram- kvæmdastjóri Skipulagssjóðs Reykjavikur segir 380 milljónir hafa veriö notaðar til uppkaupa á reitn- um milli Kiapparstigs, Laugavegar, Smiðjustías oa Hverfisnötu Steinunn Valdís Ósk arsdóttir Borgarráð samþykkti tillögu borg- arstjóra um kaupin á Laugvegi 19.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.