Freyr

Árgangur

Freyr - 15.10.1998, Blaðsíða 33

Freyr - 15.10.1998, Blaðsíða 33
Áhrif fitugæða í fóðri á teygjanleika minkaskinna Inngangur Minkaskinn þurfa að standast marg- ar gæðakröfur til þess að ná góðu verði á uppboðum. Um þessar mundir óska kaupendur eftir stórum skinnum með góðri hárgerð og lit, en aukin notkun á skinnum í óhefð- bundnar vörur getur leitt til þess að í framtíðinni verði gerðar fleiri gæða- kröfur. Ein þessara krafna er góður og jafn teygjanleiki, þ.e. þanþol skinnanna. Þanþol minkaskinna, sem og allra skinna og húða, ræðst af prótínsamsetningu skinnsins, sem er mjög flókin. Það er sérstaklega innihald af tveim mikilvægustu pró- tínflokkunum, elastíni og kollagíni, sem ræður þanþolinu. Fáar rann- sóknir hafa verið gerðar á þessum prótínum í minkaskinnum og hvaða gildi magn þeirra og dreifing hefur fyrir eðlisffæðilega eiginleika þeirra. Tilraunir þær, sem hér er sagt frá, voru gerðar til þess að mæla elastín og leysanlegt kollagen í þurrkuðum minkaskinnum. Elastín er prótínflokkur sem sam- settur er úr tveim undirflokkum, leysanlegu og óleysanlegu elastíni, og geta margar gerðir myndast af þessu prótíni. Kollagen er betur skil- greindur flokkur sem samsettur er af 20 mismunandi gerðum (I-XX). I skinnum kemur gerðin I fyrir í mest- um mæli og eiginleikar þess prótíns hafa því mest gildi fyrir eðli skinns- ins en önnur prótín skipta einnig máli. Magn og dreifing elastíns og kol- lagens ráða í höfuðdráttum þanþoli skinnsins en aðrar sameindir skipta einnig nokkru máli. Framkvæmd tilraunarinnar Rannsóknin var gerð á 24 þurrkuð- um skinnum af Pastel högnum sem eftir Bent Riis og Christian Friis Börsting, Tilraunastöðinni á Foulum á Jótlandi fengið höfðu lýsi sem eina fitugjaf- ann allt vaxtarskeiðið. Tilraunahóp- amir fjórir fengu lýsi af mismunandi gæðum. Hópur 71 fékk ferskt lýsi, en hópar 72-74 fengu mismunandi þrátt lýsi. I lýsi allra hópanna var sett 300 ppm etoxyquin. Peroxíðtala (þráastig) í lýsinu, sem hópur 71 fékk, mældist 10 meq/kg lýsis. (ferskt), hjá hópi 72 var peroxíðtal- an 30 meq/kg lýsis, hjá hópi 73 var hún 70 meq/kg lýsis og hjá hópi 74 var hún 100 meq/kg lýsis. Skinnin voru verkuð á venjuleg- an hátt. Þau höfðu verið geymd í eitt ár í um 10°C og um 70% raka áður en þau voru efnagreind. Til greiningarinnar voru teknar pjötlur úr baki skinnanna, rakaðar og klipptar niður í örsmá stykki sem síðan voru efnagreind. IMiðurstöður I tilrauninni var mælt magn óleysan- legs elastíns og leysanlegs kollagens í minkaskinnunum 24. Niðurstaða rannsóknarinnar sýnir gott sam- hengi milli óleysanlegs elastíns í skinnunum og gæða fitunnar (lýsis- ins) sem dýrin voru fóðruð með. Þetta samhengi er fundið þrátt fyrir mismunandi niðurstöður úr sýnum úr sama hópi. Elastínið sem fannst í rannsóknum þessum er nokkru minna en það sem fundist hefur við efnagreiningar á öðrum þurrkuðum minkaskinnum, sem hafa ekki verið birtar. Astæða þessa er óþekkt en smávegis munur á rannsóknaraðferðum getur verið skýringin. Samanborið við elastín- Mynd 1. Sambandfóðurhópa og óleysanlegs elastíns í skinnunum. Niðurstöðurn- ar eru meðaltal sex efnagreininga og meðalfrávik eru sýnd. (ofan á skástrikuðu súlunum) Hópur 71 fékk besta lýsið ífóðri sínu en hópur 74 það lakasta. Freyr 1 3/98 - 33

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.