Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.1999, Blaðsíða 11

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.1999, Blaðsíða 11
Ættir Þingeyinga Utgáfa á Ættir Þingeyinga sem Indriði Indriðason tók saman hófst uppúr 1950, og komu samtals út fjögur bindi. á árunum 1959-83. Þrátt fyrir að Indriði hefði unnið mikið þrekvirki með að draga að mestu saman efhi í næstu bindi, varð ekki af frekari útgáfu, vegna heilsufars og annarra ástæðna. Nú hefur þráðurinn þó verið tekinn upp aftur, og hefur Brynjar Halldórsson tekið að sér að ritstýra framhaldinu. Eru gögn Indriða uppistaðan í verkinu, en nú er rakið allt til nútímans, og bætt við nýjum upplýsingum. Uppsetningu er nokkuð breytt, þar sem allt er tölvuunnið, og brotið er nú það sama og á flestum nýjum ættfræðibókum, eða 25x18 sm. Eru nú komin út 3 bindi í viðbót, eru tvö þau seinustu 360 bls. með myndum af á annað þúsund manns, en 5. bindið er aðeins minna. Félögum í Ættfræðifélaginu er nú boðnar þessar 3 bækur saman á kr. 12.000.-, en stakar kosta þær 5. bindi á kr. 3.900,- og 6. og 7. á kr. 4.500.-. Búðarverð mun vera um 18.000.- fyrir allar þrjár bækurnar. Pöntunum er veitt móttaka í síma 465-2240, eða í Ættir Þingeyinga, Gilhaga 2 671 Kópaskeri. Frá Gjaldkera. Nokkuð góð skil voru á árgjöldum fyrir árið 1998, og ber að þakka bað skilvísum félögum. Þeir félagar sem ekki hafa greitt árgjöld síðustu ára mega eiga á því von að falla út af félagaskrá á árinu 1999. DRAUMAFRÚIN Hvemig á sú kona að vera Sem karli skal til hæfis gera Hún þarf að vera undurffíð Og karli sínum ávallt blíð Með matinn ávallt á réttum tíma Og ekki sitja og hanga í síma Skyrtan strokin inní skáp Og ekkert óþarfa búðarráp Að baka þarf konan líka að kunna Og haga sér alveg eins og nunna Böm skal konan manni sínum ala Og ekki yfír íþróttunum tala Karlinum þarf hún sífellt að hæla Og á kvöldin skal hún við hann gæla Konan skal halda vextinum fínum Þótt karlinn tapi sínum línum Karlinn á að styðja í ffamapoti Og ekki vekja úr fyllerísroti Heimilið skal vera strokið og fínt Svo karlinn geti það öðmm sýnt Konan skal kunna að negla og saga Svo ekki þurfi hún karlinn að plaga Garðinn hreinsa og bílinn bóna Og busta af karli sínum skóna Svo skal hún brosa og vera fín Svo karlinum ekki glepjist sýn En ef hann rær á önnur mið Skal konan kunna að halda ffið Þið vitið það eflaust allar nú Að vandi er að vera ffú 11

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.