Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.02.1999, Blaðsíða 23

Neytendablaðið - 01.02.1999, Blaðsíða 23
Neytendaréttur Ef maður vill hætta við kaupin Það er gott að hafa rétt sirin á hreinu þegar út í búð er komið. Það vefst oft fyrir neytendum hvort þeir hafa rétt - og þá hvern - til að hætta við kaup sem þegar hafa verið gerð og um gallalausa vöru eða þjón- ustu er að ræða. Hver er réttur okkar til að skila vöru, til að skipta vöru og til að falla frá samningi? Þessi úrræði rugl- ast oft saman. Það er ekki sérlega skemmtilegt fyrir neytandann að standa í versluninni með vöru sem seljandinn neitar að taka við: Réttur til að skila vöru og réttur til að skipta vöru er nokkuð sem verður að spyrja eftir og komast að sam- komulagi um við seljandann áður en kaupin eiga sér stað. Að falla frá samningi er hins vegar réttur sem maður hefur þegar eitthvað er keypt við útidyrnar eða í gegnum síma. í rétti til að skila vöru felst að maður kaupir vöru með loforði um að geta skilað henni og fengið peningana greidda til baka. Þetta úrræði er vel þekkt meðal nágranna- landa okkar en við íslendingar erum ekki búin að tileinka okkur það nema að takmörk- uðu leyti. Réttur til að skila vöru getur ekki átt við um all- ar vörur. Sem dæmi um vörur sem yfirleitt er ekki unnt að skila eru undirföt og útsölu- vörur. Þrátt fyrir að verslunin bjóði ekki upp á það úrræði að skila vöru getur vel verið að hægt sé að skila henni ef bara er spurt eftir því. Selj- andinn og kaupandinn komast þá að samkomulagi um það hvenær þarf að skila vörunni. A kvittunina á seljandinn þá að láta koma fram að hægt sé að skila vörunni og setja þar daginn sem má skila henni í síðasta lagi. Eigi að skila vörunni til baka verður að fara mjög vel með hana og einnig umbúð- irnar. Vöruna þarf seljandi auðvitað að selja öðrum neyt- anda á almennu verðlagi. Það má með öðrum orðum ekki nota vöruna né skemma um- búðirnar. Það er rétt að taka með sér kvittunina frá versl- uninni svo seljandinn sjái að vörunni er skilað í tæka í tíð. Auðveldara að fá vörum skipt Það er mun algengara á Is- landi að verslanir bjóði við- skiptavinum sínum að skipta vöru en að skila vöru. Þá má leggja vöruna inn og fá aðra í staðinn. Um þetta úrræði gilda sömu sjónarmið og þeg- ar vöru er skilað, þ.e. ekki er hægt að skipta öllum vörum og það verður að fara mjög vel með vöruna sem á að skipta. Ef maður finnur ekkert til að kaupa í staðinn er hægt að fá inneignarnótu. Hún gildir í fjögur ár ef ekki er samið um annað. Það er þó heppilegast að nota inneignarnótu eins fljótt og mögulegt er. Versl- unin gæti orðið gjaldþrota eða fengið nýja eigendur, en því miður er jrað ekki alltaf svo að nýir eigendur taki við inn- eignarnótum sem fyrri eig- endur hafa gefið út. Og þrátt fyrir að verðbólgan sé lítil rýrnar verðgildi nótunnar hægt og bítandi. Um gjafakort gildir sama regla, þ.e.a.s. fjögurra ára gildistími nema annað sé tekið fram. Að falla frá samningi Ryksugur og bækur eru seldar bæði við útidymar og í gegn- um síma. Ef vara er keypt með þeim hætti fyrir 4.500 kr. hið minnsta gilda húsgöngu- og fjarsölulögin sem veita kaupandanum rétt til að falla frá samningi. Samkvæmt lögunum hefur maður þá tíu daga til að sjá eftir kaupunum og verður að tilkynna það skriflega til seljandans. Til- kynninguna verður að senda í ábyrgðarbréfí innan þessara tíu daga en þeir fara að líða þann dag sem kaupandinn fær í hendur söluskilmála um kaupin. Þá á seljandinn að senda skriflega. Ef keypt em föt, snyrtivörur eða eitthvað annað í heimahúsi eða á vinnustað gilda einnig hús- göngu- og fjarsölulögin. Lög- in gildajafnvel um þjónustu, til dæmis garðvinnu eða upp- setningu á rimlagluggatjöld- um. Húsgöngu- og fjarsölulög- in gilda hins vegar ekki þegar keyptar eru tryggingar, verð- bréf, fasteign eða matvömr sem seljandinn afhendir reglubundið. Skrifstofur Neytendasamtakanna Reykjavík: ísafjörður Akureyri: Skúiagötu 26 Pólgötu 2 Skipagötu 14 Pósthólf 1096 Skrifstofu- og símatími: Skrifstofu- og símatími: 121 Reykjavík 8-12 13-15 Símatími upplýsinga- og Sími: 456 5075 Sími: 462 4118 kvörtunarþjónustu: 10-15 Fax: 456 5074 Fax: 462 1814 Sími: 562 5000 Netfang: Netfang: neyt.ur@itn.is Fax: 562 4666 neytvest@heimsnet.is Starfsmaður: Úlfhildur Netfang: neytenda@itn.is Starfsmaður: Aðalheiður Steinsdóttir Rögnvaldsdóttir NEYTENDABLAÐIÐ - febrúar 1999 23

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.