blaðið - 09.05.2005, Blaðsíða 22

blaðið - 09.05.2005, Blaðsíða 22
mánudagur 9. maí 2005 i blaðið fflííWElD Bókverkastofa Gunnars Otrúlegt hugmyndaflug Útskriftarsýning Listaháskóla íslands var opnuð með pompi og prakt á laugardaginn og mátti þar sjá að skólinn hefur alið af sér stór- an hóp skapandi fólks. Sýningin, sem stendur til 29. maí í Listasafni Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum, var einstaklega litrík, forvitnileg og skemmtileg en þar sýna nemendur úr myndlistardeild og hönnunar- og arkitektúrdeild skólans afrakstur þriggja ára náms síns. Nemendumir nota efhi úr öllum áttum og setja saman nýstárleg verk sem allir ættu að hafa gaman af að skoða. Mikil fjöl- breytni einkenndi sýningarsalina, þar sem skoða mátti stuttermaboli, myndaalbúm á veggi, fatalínu með ádeilu á fiskveiðar, harðfiskum- búðir, sjálfsmyndir og margt, margt fleira. Sýningin er opin ffá 10-17 alla daga og aðgangur er ókeypis. Útskriftarsýning nemenda úr Listaháskóla íslands á Kjarvalsstöðum Garðurinn allt árið Fyrsta bókin í nýrri ritröó frá Sumarhúsinu 02 sarðinutn Garðurinn allt árib er ætlu6 öllu áhugafólki um garðrækt. í bókinni er að finna samantekt á öllu því helsta sem garð- eigendur þurfa að vita um gróðurinn í garðinum og umönnun hans. Aðeins kr. 2.450 Áskriftarverð kr. 1.990 Fæsf í öllum helsfu bókaverslunum Listaháskólinn útskrifar núna í fyrsta skipti nema í arkitektúr og módel þeirra eru til sýnis á Kjarvalsstöðum. Þar má sjá nýjan grunnskóla, almenningsbóka- safn og heilsugæslustöð svo nokkuð sé nefnt. Unnur Ýrr tekur fyrir orðið femínisti í útskrift- arverkefni sínu í grafískri hönnun. „Ungar stelpur nú til dags vilja ekki láta kalla sig femínista því að hugtakið hefur fengið á sig neikvæðan stimpil. Með þessu vil ég sýna að það er hægt að ganga í bleiku og háhæluðum skóm og samt vera femínisti," segir hún aðspurð um hugmyndina á bak við verkið. Nemar úrfata- og textílhönnun bjóða sýningargestum upp á fjölbreyttar flíkur úr ólíkum efnum og héldu þeir glæsilega tískusýningu á opnun sýningarinnar á laugardaginn. Hér á myndinni má sjá eina af þeim flíkum sem Berglind Laxdal hannaði. Á svæði myndlistar- deildarinnar mátti sjá margt áhugavert. Hugmyndin á bak við línu Sunnu Daggar eru endurvinnanlegar flíkur sem eiga sér persónulega sögu eða gamlar minningar. Nú er til dæmis hægt að gefa brúðarkjólnum hennar ömmu nýtt líf og endurnýta hann í belti, vettlinga eða barnaföt. Möguleikarn- ir eru endalausir en sagan fylgir með. „íslendingar eru miklir þjóðernisvinir en það á líka við um hverfin sem þeir búa í,“ segir Björn Þór þegar hann er spurður um hugsunina á bak við verkið sitt um byggðarmerking- ar í Reykjavík. Með merkingunum vill hann ýta undir hverfastolt Reykvíkinga og fær hvert hverfi því sína eigin merkingu. fchZL ' ■ V-*'' '.‘Sti'. > * Myndefnið sem Davíð Kristófer notar á stuttermabolina sína eru sneiðmyndir af eigin heila. Myndin var tekin þegar hann var með æðagúlp, sem með kraftaverki tókst að fjarlægja, og því fannst honum tilvalið að nýta hann í útskriftarverkefnið. Allir bolirnir eru einstakir en hafa það sameiginlegt að æðagúlpurinn prýðir hvern og einn. Uppáhaldshluturinn .Uppáhaldshluturinn minn er klukka sem við María keyptum í Sarajevo seinasta sumar,“ segir Sölvi Blöndal, forsprakki Quarashi, þegar hann er beðinn um að velja uppáhaldshlutinn sinn á heimil- inu. „Sarajevo er ein magnaðasta borg sem ég hef heimsótt og þessi klukka minnir mig alltaf á hvað það var gaman þar. Það sem gerir hana einkar skemmtilega er að þetta er ekki bara klukka heldur líka mynd af Ka"ba, sem er helgasti samkomu- staður múhameðstrúarmanna í heiminum," segir Sölvi þegar hann er inntur eftir því hvers vegna hann valdi þennan hlut. Ka"ba er samt ekki eina ástæðan íyrir að klukkan er í uppáhaldi hjá honum því að hún glitrar eins og ljósaskilti árið um kring, sem honum finnst koma sér mjög vel í skammdeginu. ,Síðan má ekki gleyma því að þetta er klukka og hún hefur oft og mörg- um sinnum hjálpað mér að mæta á réttum tíma, og fyrir það er ég mjög þakklátur," bætir Sölvi við að lokum. Vertu med frá upphafi. Áskriftarsími 586 8005 Sumarhúsiö og garðurinn • Siðumúla 15 • rit@rit.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.