Fréttablaðið - 24.07.2012, Blaðsíða 23
ÞRIÐJUDAGUR 24. júlí 2012 19
Leikhús ★★★
Gestaboð Hallgerðar
Höfundur og leikstjóri: Hlín
Agnarsdóttir. Leikkona: María
Ellingsen. Búningar: Rebekka A.
Ingimundardóttir
Njálusetrið á Hvolsvelli
Þarna stendur ein frægasta kona
íslenskra fornsagna. Hún stendur
ljóslifandi líklega í hlíðinni
frægu. Í minningunni er hún
stórskorin, í minningunni er hún
gróf. Hvaða minningu?
Minningarmyndunum í hug-
skotinu. Þar sem hún nú tekur
á móti gestum hvort heldur hún
er kona fortíðar eða nútíðar er
hún mittismjórri, betur tennt og
betur klædd og smáfríðari en sú
sem hafði hreiðrað um sig í minn-
ingunni. Á Njálusetrinu á Hvols-
velli var frumsýndur einleikur á
sunnudagskvöldið. Þar sitja menn
við langborð og væri vel hægt að
hugsa sér að við slík borð hafi
einmitt gestir þeirra Gunnars og
Hallgerðar setið, nema kannski
ekki með upphækkuðum aftari
bekk, var líklega ekki búið að
finna upp þá tækni á þeim tíma.
Hlín Agnarsdóttir höfundur og
leikstjóri verksins fer þá leið í
þessu verki að láta nútíma konuna
Hallgerði, sem af tilviljun er
búsett á Hlíðarenda, taka á móti
gestum, gestum sem hún hafði
engan veginn átt von á. Gunnar,
eiginmaður hennar var sennilega
í heimsókn hjá nágrannanum Njáli
og varð hún því sjálf að reyna að
gramsa saman ein hverjum veit-
ingum þó svo að þessi hópur
hafi ekki verið í skipulagsbók-
inni hennar. Þessi listfenga kona
segir sögu sína sem er saga hinnar
mögnuðu Hallgerðar.
Áhorfendur sitja beggja vegna
sviðsins sem er trégólf og nýtir
leikkonan það rými vel. Sjálf frá-
sögnin er nokkuð treg í gang, en
um leið og hin stórgóða leikkona
Elva Ósk er komin með bitastæð
minningabrot úr samskiptasögu
Hallgerðar og karlmannanna í
Hallgerður lifnar við á Njálusetrinu
Hjólaðu í Skálafelli
í sumar
PIPA
R
\
TBW
A
SÍA
12
2
0
5
5
Nánari upplýsingar má finna á www.skidasvaedi.is
eða facebook.com/skalafell og á símsvara Skálafells
í síma 5 30 3000
Hjólagarðurinn í Skálafelli er skemmtilegt
útivistarsvæði fyrir alla fjölskylduna
VIÐ FELLSMÚLA
Sími: 585 2888
26.900
BÚTSÖG
lífi hennar til túlkunar, gerist
eitthvað. Það er engu líkara af
lýsingum að dæma að enginn hafi
verið eins kynþokkafullur, ljúfur
og stórkostlegur og Glúmur,
sennilega einhver tegund sem
síðan hefur dáið út.
Elva Ósk ljær þessari konu líf
og það af miklum styrk, fágun
og glettilegum léttleika. Þetta
er eins konar uppistand og hefði
kannski grætt á því að lyfta enn
einum fleti inn í leikinn, nefni-
lega lífi Elvu sjálfrar. Búningur
Hallgerðar var mjög fallegur
og undirstrikaði fegurð hennar
þó hlýr væri. Hárið sem Valdís
Haralds dóttir hafði útbúið var
gróft, ljóst gert úr hampi eins og
persónan sjálf var allan tímann
að vinna í. Svarið við langbrókar-
nafnbótinni er látið liggja í lausu
lofti, þó tillögur komi fram.
Hlín tekur sjálf gullfallegar
myndir af þessari norrænu ofur-
konu sem birtast á skjá milli þess
sem nútímamyndir úr lífi Hall-
gerðar eru sýndar. Það er ekki víst
að djúpt sokknir Njálufræðingar
hossi þessari túlkun, en sú Hall-
gerður sem þarna birtist okkur
var vel þess virði að kynnast eina
kvöldstund. Elísabet Brekkan
Niðurstaða: Elva Ósk ljær einni
frægustu konu bókmenntasögunnar
líf af miklum styrk. Eftirminnileg
kvöldstund, þrátt fyrir hnökra.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Þriðjudagur 24. júlí 2012
➜ Tónleikar
20.30 Elsa Waage contra-alt, Elín
Ósk Óskarsdóttir sópran og Peter
Maté píanóleikari spila á sumartón-
leikum Listasafns Sigurjóns Ólafssonar.
Aðgangseyrir er kr. 2.000.
21.00 Kvartett dansk-íslensk-færeyska
kontrabassaleikarans Richard G. Anders-
son spilar á jazztónleikaröðinni á KEX
Hostel, Skúlagötu 28. Aðgangur er
ókeypis og eldhús Kex er opið.
➜ Tónlist
21.30 Hljómsveitin Múgsefjun býður
upp á ókeypis tónleika á Café Rosen-
berg. Söngvari hljómsveitarinnar Hjalti
Þorkelsson leikur nokkur lög einn og
óstuddur áður en fullskipuð hljóm-
sveit stígur á stokk. Tónlistarmaðurinn
Brendan Þorvaldsson opnar tónleikana.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is