Prentarinn - 01.10.1999, Blaðsíða 16

Prentarinn - 01.10.1999, Blaðsíða 16
Sigtryggur Jónsson, sálfræbingur: Einelti er það kallað þegar hópur einstak- linga reynir ab útiloka einn eba hugsanlega fleiri úr hópnum meb öllum mögulegum hætti. Þetta getur verib meb stöbugri stríbni, gera fórnarlambib ab ab- hlátursefni, sýna því vanþóknun, hæbast ab því, bera út slúbur um fórnarlambib, ein- angra þab og útskúfa og jafnvel getur verib um líkamlega vald- beitingu ab ræba. Einelti felur það í sér að fómar- lambið upplifir sig óvelkomið í og útilokað af hóp, sem það getur ekki annað en tilheyrt, t.d. vinnu- hóp, skólabekk, fjölskyldu o.s.frv. Til er að einstaklingar leggist þannig á aðra einstaklinga, án stuðnings annarra í hópnum, en þá er ekki talað um einelti í sama skilningi, þar sem fórnar- lambið upplifir sig ekki einangrað og útilokað á sama hátt og getur varið sig með því að líta á of- sækjandann sem veikan eða vondan. Einelti felur í sér að fórn- arlambið upplifir alla eða flestalla í hópnum á móti sér, þó svo að í langflestum tilvikum sé meirihlut- inn óvirkur í stuðningi sínum við eineltið. Aðeins lítill hluti hópsins er yfirleitt virkur en nýtur stuðn- ings hins hlutans í gegnum að- gerðarleysi hans, en flestir þeirra líta svo á að hættulegt sé að taka upp hanskann fyrir fómarlambið. Það gæti leitt til þess að þeir sjálfir yrðu lagðir í einelti. Einelti er þannig félagslegt fyr- irbæri. Það tengist alltaf hópi fólks og valdabaráttu einstaklinga innan hópsins og óöryggi þeirra um stöðu sína innan hópsins. Það 16 ■ PRENTARINN er því ekki einangrað samspil á milli tveggja einstaklinga. Slík samskipti era ekki kölluð einelti. Það er þvf nauðsynlegt að stjórn- endur hópa, hvort sem það eru stjómendur á vinnustað, kennarar, skátaforingjar eða aðrir leiðtogar hópa, geri sér grein fyrir því hvort um er að ræða einelti, sem er fé- lagslegt fyrirbæri innan hóps, eða deilur og ágreining milli tveggja einstaklinga. Viðbrögð þeirra eiga að stjómast af því. Einelti myndast aðeins í hóp, þar sem einhvers konar vanlíðan er til staðar. Líði öllum einstak- lingum vel í hópnum, finnist allir meira eða minna jafnir, finni að allir njóti þokkalega jafnrar virð- ingar, finni að allir hafi eitthvað að segja og að hlustað sé jafnt á alla, myndast ekki einelti í hópn- um. Sé hins vegar ríkjandi ójöfn- uður í hópnum, hlustað sé á suma en aðra ekki og mikill munur á virðingu milli einstaklinga, myndast vanlíðan í hópnum. Fyrri hópurinn hefur flatan valdapíra- míta eða goggunarröð, þar sem jöfnuður og vellíðan rtkir og sátt er um forystuna. Síðari hópurinn hefur brattan valdapíramíta eða goggunarröð, þar sem ríkir ójöfn- uður, vanlíðan og valdabarátta. Það er einungis í síðari hópnum sem einelti getur myndast og alltaf sem hluti af valdabarátt- unni, sem á sér stað í hópnum. Sú valdabarátta er ekki einungis á efstu þrepunum, vegna þess að í slíkum hópi ríkir mikið óöryggi einstaklinganna um stöðu sína hvar sem er í goggunarröðinni og því myndast þörf hjá öllum fyrir að klifra ofar og þá gjarnan á kostnað þeirra, sem neðar eru. Sé ríkjandi vanlíðan og óöryggi í hóp og valdapíramíti hans bratt- ur leita allir einstaklingar hópsins eftir einhvers konar stöðugleika og öryggi. Það er hins vegar ekki endilega leitað eftir vellíðan, því vellíðan er aftar í forgangsröð einstaklinga en öryggi. I slfkum hóp lítur alltaf út fyrir að mesta öryggið um stöðu sína sé á efstu þrepum hans, sérstaklega vegna þess að svo virðist sem þar sé mesta virðingin, áhrifin og völd- in. Þess vegna leita einstakling- arnir upp goggunarröðina með því að koma öðrum í henni niður fyrir sig. Það er hægt að gera með því að smjaðra fyrir forystunni,

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.