Morgunblaðið - 30.03.2012, Blaðsíða 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2012
Gunnar Sverr-
isson verður ekki
áfram við stjórn-
völinn sem þjálf-
ari karlaliðs ÍR í
körfuknattleik.
Þetta var til-
kynnt á vef fé-
lagsins í gær.
Samningur
Gunnars við
Breiðholtsliðið
var útrunninn og var tekin sú
ákvörðun af stjórn körfuknattleiks-
deildarinnar að framlengja ekki
samninginn við hann.
Gunnar tók við þjálfun ÍR-liðsins
í janúar 2010 af Jóni Arnari Ingv-
arssyni sem hætti í desember 2009
af persónulegum ástæðum.
ÍR-ingar enduðu í 9. sæti í úrvals-
deildinni. gummih@mbl.is
Gunnar hætt-
ir með lið ÍR
Gunnar
Sverrisson
Jóhann Berg
Guðmundsson og
félagar í hol-
lenska liðinu AZ
lögðu hið öfluga
spænska lið Val-
encia að velli,
2:1, í fyrri við-
ureigninni í átta
liða úrslitum
Evrópudeildar
UEFA í knatt-
spyrnu í Alkmaar í gærkvöld. Jó-
hann lék allan leikinn með AZ og
var mjög frískur á hægri kantinum.
Ástralinn Brett Holman skoraði fal-
legt mark með síðustu spyrnu fyrri
hálfleiks en Memhet Topal jafnaði
fyrir Valencia á 51. mínútu. Það var
síðan Maarten Martens sem skoraði
sigurmark Hollendinganna á 79.
mínútu. vs@mbl.is
Góður sigur
AZ á Valencia
Jóhann Berg
Guðmundsson
Hjalti Þór Vilhjálmsson hefur verið
ráðinn þjálfari úrvalsdeildarliðsins
Fjölnis í körfuknattleik karla. Hann
tekur við af Örvari Þór Kristjáns-
syni sem leystur var frá störfum í
gær. Frá þessu var greint á karf-
an.is í gærkvöld og vitnað til frétta-
tilkynningar frá körfuknattleiks-
deild Fjölnis sem ekki var send
Morgunblaðinu.
Hjalti Þór hefur leikið með Fjöln-
isliðinu árum saman en ekki er gert
ráð fyrir því að hann leiki áfram
heldur einbeiti sér að þjálfun liðsins
sem hafnaði í 10. sæti í úrvalsdeild-
inni. iben@mbl.is
Hjalti tekur
við Fjölni
KRAFTLYFTINGAR
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Júlían Jóhann Karl Jóhannsson, 19
ára gamall kraftlyftingamaður úr Ár-
manni, stóð sig afar vel á Íslands-
mótinu sem fram fór í Njarðvík á
dögunum.
Júlían varð Íslandsmeistari ung-
linga og setti átta ný Íslandsmet í
unglingaflokki. Hann setti Íslands-
met í öllum greinum og í sam-
anlögðum greinum en hann lyfti 330
kílóum í hnébeygju, 227,5 kg í bekk-
pressu og 305 kg í réttstöðulyftu.
Júlían bætti sig um heil 57,5 kg frá
síðasta móti og hann gaf köppunum í
fullorðinsflokki ekkert eftir því hann
varð þriðji stigahæsti maður mótsins
og varð annar í opnum flokki. Sann-
arlega efnilegur kraftlyftingamaður
þarna á ferð sem keppir fyrir Íslands
hönd á Evrópumóti unglinga sem
haldið verður í Herning í Danmörku í
byrjun júní. Árangur Júlíans á Ís-
landsmótinu gefur því góð fyrirheit
fyrir Evrópumótið.
„Mótið um síðustu helgi gekk mjög
vel hjá mér. Það gekk eins og í sögu
og ég var virkilega ánægður með ár-
angurinn,“ sagði Júlían Jóhann við
Morgunblaðið en hann er mikill að
burðum og keppti í yfirþungavigt,
+120 kg flokki, þar sem hann varð
annar á eftir Auðunni Jónssyni í
keppni fullorðinna.
Stefnan að komast
á verðlaunapall
Eins og áður segir tekur Júlían
þátt í Evrópumóti unglinga í Dan-
mörku í júní og segist hann vera far-
inn að búa sig undir það mót. Spurð-
ur hvort hann hafi sett sér það
markmið að komast á verðlaunapall
sagði hann;
„Það er náttúrulega alltaf stefnan.
Ég er nýkominn upp í þennan ung-
lingaflokk og ég veit kannski alveg
hverju ég á von á en ég tel mig alveg
eiga möguleika á að vinna til verð-
launa og þá annað hvort í rétt-
stöðulyftu eða bekkpressu. Nú er allt
komið á fullt hjá mér til undirbún-
ings fyrir Evrópumótið,“ segir Júlían
sem segist vera nokkuð jafnvígur á
greinarnar sem keppt er í.
Hvað ertu búinn að æfa kraftlyft-
ingar lengi?
„Ég er búinn að leggja stund á
lyftingarnar í þrjú og hálft ár. Mig
langaði alltaf að prófa þetta. Ég var í
körfuboltanum en eftir að ég prófaði
kraftlyftingarnar þá var ég fljótur að
átta mig á því að þessi íþrótt hentaði
mér mjög vel.“
Júlían segir að áhuginn á kraftlyft-
ingum sé að aukast. „Það hefur orðið
mikil sprenging í fjölda iðkenda og
sérstaklega eftir að Kraftlyftinga-
sambandið fór inn í ÍSÍ,“ segir Júlían
Jóhann, sem stefnir hátt í þróttinni.
Æfir sjö til ellefu sinnu á viku
„Lyftingarnar eiga hug minn allan
og ég hef sett mér það markmið að
keppa á stórmótum erlendis.“
Júlían segist æfa sjö til ellefu sinn-
um í hverri viku. „Ef það er stutt í
mót þá getur ein æfing staðið yfir í
um þrjá klukkutíma en annars einn
til tvo klukkutíma. Á flestum æfing-
um er ég að lyfta en ég er líka að
hoppa og bæta þannig sprengikraft-
inn og síðan að kasta bolta í vegg,“
sagði Júlían.
Morgunblaðið/Golli
Sterkur Júlían Jóhann Karl Jóhannsson er kominn í hóp þeirra sterkustu í kraftlyftingunum hér á landi þó ungur sé að árum.
„Kraftlyftingarnar
eiga hug minn allan“
Júlían er 19 ára gamall og setti átta ný Íslandsmet í unglingaflokki Var í
körfubolta en fór síðan að lyfta fyrir þremur árum Stefnir á stór mót erlendis
Guðmundur Þórður Guðmundsson, þjálfari kar-
landsliðsins í handknattleik, hefur valið 20 manna
hóp til undirbúnings fyrir forkeppni Ólympíu-
leikanna en íslenska liðið leikur í riðli með Króatíu,
Síle og Japan og verður riðillinn spilaður í Varazd-
in í Króatíu um páskahelgina. Tvær efstu þjóðirnar
vinna sér keppnisréttinn á Ólympíuleikunum í
London í sumar. Landsliðið mætir Norðmönnum í
æfingaleik í Laugardalshöllinni á þriðjudags-
kvöldið en heldur síðan utan til Króatíu á mið-
vikudagsmorguninn. Hópurinn er þannig skipaður:
Markmenn:
Aron Rafn Eðvarðsson, Haukum
Björgvin Páll Gústavsson, Magdeburg
Hreiðar Levý Guðmundsson, Nötteröy
Aðrir leikmenn:
Arnór Atlason, AG Köbenhavn
Aron Pálmarsson, Kiel
Ásgeir Örn Hallgrímsson, Burgdorf
Guðjón Valur Sigurðsson, AG Köbenhavn
Ingimundur Ingimundarson, Fram
Kári Kristján Kristjánsson, Wetzlar
Ólafur Guðmundsson, Nordsjælland
Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK
Ólafur Stefánsson, AG Köbenhaavn
Róbert Gunnarsson, RN Löwen
Rúnar Kárason, Bergischer
Sigurbergur Sveinsson, Basel
Snorri Steinn Guðjónsson, AG Köbenhavn
Stefán Rafn Sigurmannsson, Haukum
Sverre Jakobsson, Grosswallstadt
Vignir Svavarsson, Burgdorf
Þórir Ólafsson, Kielce
Ólafur Stefánsson og Snorri Steinn Guðjónsson
koma aftur inn í hópinn en þeir gáfu ekki kost á sér
í landsliðið sem lék á Evrópumótinu í Serbíu í jan-
úar, Ólafur vegna meiðsla og Snorri af persónu-
legum ástæðum.
Alexander Petersson gefur ekki kost á sér en
hann hefur glímt við meiðsli í öxlinni síðustu mán-
uði og gat af þeim sökum lítið beitt sér á Evr-
ópumótinu. gummih@mbl.is
Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason
Mættir Ólafur Stefánsson og Snorri Steinn Guðjónsson voru ekki með á EM í Serbíu en
þeir spila í Króatíu þegar Ísland mætir heimamönnum, Sílebúum og Japönum.
Ólafur og Snorri með á ný í Króatíu
Alexander ekki tilbúinn Leikið um tvö sæti á ÓL