Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 29.12.2011, Blaðsíða 11

Fréttir - Eyjafréttir - 29.12.2011, Blaðsíða 11
Fréttir / Fimmtudagur 29. desember 2011 11 BERGUR og hans fólk er furðu lostið. Furðusaga úr Vilberg: Hver tók brauð- tertuna? Það gerðist skemmtilegt atvik hjá okkur í Vilberg á Þorláksmessu sem ég vill endilega koma á framfæri. Við í Vilberg höfum átt sér- stakan fastakúnna í fjölmörg ár sem okkur þykir vænt um. Hann verslar alltaf stórt á aðfangadag og þannig var líka núna og hluti hans pöntunar var stór brauðterta sem var gerð á Þorláksmessu og sett í kæli. A aðfangadag fer ég, Bergur bakari, og geri hinar terturnar fyrir hann og þegar hann ætlaði að grípa brauðtertuna þá fannst hún ekki þrátt fyrir mikla leit og fyrirspurnir. Eftir mikla rann- sóknarvinnu kom uppúr kafinu að inní Vilberg hafi komið maður sem sagðist eiga pantaða brauð- tertu sem sé búið að greiða og hann sé að sækja hana. Afgreiðslustúlkan bregður sér á bak við og sér brauðtertu í kæl- inum og afhendir viðkomandi ter- tuna og óskar honum gleðilegra jóla. Okkar tryggi viðskiftavinur fór því brauðtertulaus inní jólin og þykir það okkur leitt en hinn „viðskiptavinurinn" fór örugg- lega saddur inn í jólin með brauðtertu í mallanum. Vilberg ætlar að sjálfsögðu að bæta sínum kúnna brauðtertuna með einni veglegri á gamlársdag og gaman væri að sá er fékk hina skutlaði henni til hans og þá væru allir sáttir. Gleðileg jól, Bergur Sigmundsson, bakari. Bæjarráð jákvætt Fyrir fundi bæjarráðs í síðustu viku var óskað umsagna um umsagnir vegna reksturs nokk- urra aðila. í flestum tilfellum var það vegna endurnýjunar á rekstrarleyfi. Komu öll erindin frá sýslumanni. Fyrst var það umsögn vegna umsagnar um endurnýjun rekstrarleyfis fyrir Kiwanishúsið. Bæjarráð veitti jákvæða umsögn um rekstrarleyflð svo fremi sem aðrir sem um málið fjalla geri það einnig. Umsögnin er háð ríkri kröfu um frágang og snyrti- mennsku og áskilur bæjarráð sér rétt til að láta þrífa umhverfi samkomustaðarins á kostnað rekstraraðila ef þörf krefur. Sömu afgreiðslu fékk umsókn Valgeirs Jónassonar um endur- nýjun rekstrarleyfis fyrir smáhýsi Ofanleiti. Lrka umsókn Björgun- arfélags Vestmannaeyja um flugeldasýningu við Hásteinsvöll á gamlársdag og flugeldasölu. ÍBV íþróttafélags sótti um leyfi til flugeldasýningar, brennu á gamlársdag og þrettándabrennu. Allt fékk þetta jákvæða umsögn. El^iði Vignisson bæjarstjóri - Áramótakveðja: Árið 2011 sérstaklega gott Það hefur óneitanlega gengið vel í Vestmannaeyjum á undanfömum ámm og að mörgu leyti var árið 2011 sérstaklega gott. Með erfiði og dugnaði bæjarbúa hefur bless- unarlega mörgu miðað í rétta átt. Atvinnuástand hér er gott, þjón- ustan mikil og fólk stendur saman um hagsmuni Vestmannaeyja. Menning, íþróttir og mannlíf hefur vart verið blómlegri og sem fyrr er maður manns gaman. Hér ríkir sátt og trú á framtíðina. Þegar svo vel árar er von að fólk spyrji hvort ekki megi draga þá ályktun að nú sé kominn tími til að slaka á, horfa hreykinn til árangurs- ins og leggja áherslu á að njóta ávaxtanna. Því fer þó fjarri að slíkt sé óhætt. Það er svo margt sem betur má fara. Sumt sem gert hefur verið mistókst og þarf að leiðrétta, annað er enn ógert og svo eru víða ógnir sem þarf að verjast. Margt má auðveldlega laga, en annað kallar á mikla athygli og öflugt átak ef við ætlum að halda forskoti okkar. Leiðin að árangrinum eru eftir sem áður grunngildi okkar Eyja- manna: samstaða, fómfýsi, sam- hygð og óþrjótandi vilji til að vinna Eyjunum gagn. Það var lykillinn á bak við sóknina þegar sækja þurfti og það er lykilinn á bak við vömina þegar hennar er þörf. íbúar hvers sveitarfélags em fram- varðasveit byggðarlagsins. Það eru þeir, metnaður þeirra, kraftur og kærleikur sem er lykillinn að farsælum rekstri sveitarfélags og lífsgæða í samfélaginu. Saman hefur okkur Eyjamönnum tekist að byggja upp afburðaþjónustu sem meðal annars hefur skilað því að „fólkinu fjölgar í Eyjunum enn“ og em þeir nú nálægt því að vera 4200. Þrátt fyrir að vel gangi hjá okkur hefur ástandið í þjóðfélaginu áhrif hér eins og annarstaðar. Við Eyja- menn höfum fundið á eigin skinni og þekkjum þá stöðu sem landið allt er nú í. Við þekkjum hvað þarf til að vinna sig út úr erfiðleikum. Við þekkjum hvað þarf til að byggja framtíð. Við þurjum trú á mátt og megin, á manndóm, framtíð, starfsins guð, þurfum að hleypa hratt á veginn, hœtta við óláns víl og suð, þurfum að minnast margra nauða, svo móður svelli drótt afþví, þurfum að gleyma gömlum dauða, og glæsta framtíð seilast í. (Hannes Hafstein) Um leið og ég þakka Eyjamönnum fyrir gott ár og það traust sem mér hefur verið sýnt á seinustu ámm, óska ég ykkur gleðilegs árs. Elliði Vignisson, bœjarstjóri í Vestmannaeyjum Gísli Jónasson skrifar: Landeyjahöfn í brimgarðinum Að byggja höfn sem nær aðeins út í miðjan brimgarðinn á sandströnd fyrir opnu Atlandshafinu hefur sýnt sig að er ekki nothæf nema þegar best og blíðust em veður og sjólag. Sandburður er þrefalt meiri heldur en hönnuðir frá Siglingastofnun gerðu ráð fyrir. Þó gamalt og illa búið dýpkunarskip grafi þama í heila viku þá getur fyllst upp í þann gröft á einni nóttu, ef gerir suð-vest- an átt. Það er nú komið í Ijós að þessar dýpkunarframkvæmdir kosta 250 til 300 milljónir á ári og það breytist ekkert þó ný og gmnnristari ferja verði smíðuð. Það sem breytist við nýja ferju er að hún fer kannske í Landeyjahöfn í heldur meiri sjó- gangi en núverandi Herjólfur. Ef aldan fer hins vegar yfir 3 metra og dýpið er ekki nægjanlegt fyrir nýja ferju emm við sambandslaus við meginlandið á sjó, því ekki er gert ráð fyrir að nýja ferjan sigli í Þor- lákshöfn. Heyrst hefur að næsta skrefið séu frekari kostnaðarsamar tilraunir svo sem með einhverskonar fastan dýpkunarbúnað. Við megum samt aldrei gleyma því að þetta er höfn sem nær ekki nema út í miðjan brimgarðinn, það breytist ekkert við nýja ferju og áframhaldandi dýpk- unartilraunir. Þeir sem stjóma þessu ættu sem fyrst að hætta að þrjóskast við og fara að huga að framtíðinni í þessum málum. Það þarf að lengja sjóvamargarða Landeyjahafnar um eina 800 metra svo þeir nái út fyrir brimgarðinn því aðeins þá getum við vænst þess að hægt verði að sigla ferjunni inn í höfnina í flestum veðmm án frátafa vegna veðurs. Það er ekki hægt að ætla skipstjómm Herjólfs að sigla inn í brimgarðinn í brælu til þess að hitta á þröngt Hafnarmynnið inni í Aðalfundur Golfklúbbs Vestmannaeyja verður haldinn í Golfskálanum við Torfmýrarveg fimmtudaginn 29. desember nk. kl. 17.00. Dagskrá fundarins er skv. lögum klúbbsins m.a. reikn- ingsskil, skýrsla stjórnar, lagabreytingar, ákvörðun ár- gjalda og kosning til trúnaðarstarfa. Að loknum fundi verður kynnt fyrirhuguð ferð GV félaga til Skotlands næsta vor. Stjórn GV eyjafrettir.is »* »4. miðjum brimgarðinum og skiptir litlu máli hvort um er að ræða núverandi Herjólf eða fyrirhugaða nýja ferju. Eg læt hér fylgja með riss ofaní tillögu Siglingastofnunar af mínum hugmyndum af lengingu hafnar- garðana eins og þeir gætu litið út með því að þeir nái 800 metra lengra út eða út á 12 til 13 metra dýpi með 250 til 300 metra breiðu hafnarmynni. Þessar framkvæmdir ættu ekki að kosta nema 4 milljarða en á móti kemur að dúpkunar- framkvæmdir ættu ekki að kosta nema lítið brot af því sem þær eru í dag. Gísli Jónasson 130933 - 3869 Þökkum frábærar og innilegar_yiðtökur með sýningu okkar á Gosslokahátíðinni 2011 í Akóges 3o.júnt tii 3.júit “T Með bestu kveðjum og óskum um gleðilegt og gæfuríkt nýttár. theonlyone Siijntuml rjölittn nldmnAen ^ A Z ‘JöelQjCL ÓLaJjuíótlir U dl / —\ Bestu óskir um fögnuð ogfrið á jólahátíðinni. Þökkum hlýhug og stuðning á árinu sem er að líða með óskum um slysalaust komandi ár. Slysavamardeildin EykyndiU - munið eftir skotgleraugunum, höfum áramótin slysalaus! V________________________________________ >

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.