Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2001, Blaðsíða 85

Læknablaðið - 15.02.2001, Blaðsíða 85
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BROSHORNIÐ 12 Af fordómum og pöddum Bjarni Jónasson Sendið efni í anda læknaskops í Broshornið. Læknablaðinu, Hlíðasmára 8, 200 Kópavogi eða í bréfasíma 564 4106 eða á netfang: bjarni.jonasson@ gb.hgst.is Getið þess hver sendir, en það sem birtist verður undir dulnefni. Læknablaðið áskilur sér rétt til að lagfæra texta. Umsjónarmaöur er heilsugæslulæknir í Garðabæ og stjómarmaður í Nordisk Selskap for Medisinsk Humor. Við rúmstokkinn Fræðslustofnun lækna blés til fundar á þrettándanum og hleypti af stokkunum fundaröðinni Við rúmstokkinn undir stjórn rúmstokksnefndarinnar með þá Kjartan, Arnór, Ásbjörn, Óskar og Jón Gunnlaug innanborðs. Kynnt var sjúkratilfelli eftir að fundarmenn höfðu hitað upp með kaffi eða kakói og rúnstykkjum. Fjölmenni var á fundinum og voru 76 hausar taldir bæði lækna og læknanema, þó hinir fyrrnefndu væru í miklum meirihluta. Einhver hafði á orði að fundir sem þessir gætu ekki brugðist því nafnið eitt væri svo trekkjandi. Það vekti upp gamlar og góðar minningar úr Tónabíói, þegar menn flykktust á rúmstokksmyndirnar dönsku og bláu fyrr á árum. Gullkom sem heyrðist: „Óalgeng einkenni algengra sjúkdóma eru algengari en algeng einkenni óalgengra sjúkdóma." Ó, þú ástkæra, ylhýra ... ! Vel gert, rúmstokksbræður. Fordómar Einn af reyndari heimilislæknum höfuðborgarinnar hefur vanið komur sínar í Laugardalslaugina á undanförnum árum. Til þess er tekið hve vel sundið hefur farið með lækninn. í tvígang hefur hann tekið þátt í endurlífgun sundlaugargesta. I seinna skiptið var læknirinn á sundi þar sem dýpi laugarinnar var um 166 sentimetrar. Þá tók hann eftir því að maður nokkur lá hreyfingarlaus í vatninu með höfuðið nær botni en fæturna. Læknirinn synti að manninum og rétti hann af þannig að höfuð beggja stóðu upp úr vatninu. Maðurinn andaði ekki og var því ekki um annað að ræða fyrir lækninn en að blása í hann lífi með munn-við-munn aðferðinni. Þegar björgunar- aðgerðimar stóðu sem hæst úti í miðri sundlauginni syndir eldri kona framhjá, lítur sem snöggvast til mannanna og segir: „Uss, að sjá til ykkar. Þið ættuð að skammast ykkar.“ Pöddur skríðandi Karlmaður kom til læknis og fór að að segja honum frá lífi sínu. Hann rifjaði meðal annars upp æskuna, talaði um vinnuna og matarvenjurnar. Læknirinn skoðaði manninn hátt og lágt og sagði síðan: „Ég finn ekkert að þér og ég átta mig ekki alveg á því hvers vegna þú kemur til mín í dag.“ „Sérðu það ekki maður? Ég kem út af þessum pöddum, sem skríða út um mig allan.“ „Drottinn minn dýri,“ hrópaði læknirinn. „Ég ætla bara að biðja þig um að halda þér fjarri mér og fyrir alla muni ekki bursta þær af þér hérna inni.“ Hjartaskoöun Sjúklingurinn: „Læknir, er nokkuð að hjartanu í mér?“ Læknirinn: „Ég get sagt með fullri vissu, eftir að hafa skoðað hjartað í þér gaumgæfilega, að það mun duga jafn lengi og þú.“ Tekinn blóðþrýstingur Fjögurra ára snáði var fluttur á bráðamóttökuna vegna kviðverkja. Áður en læknirinn skoðaði drenginn kom hjúkrunarfræðingur til hans og sagði: „Nú ætla ég að taka blóðþrýstinginn, góði minn.“ Því næst kom barnalæknir sem skoðaði drenginn í þaula. Til allrar lukku reyndist ekkert alvarlegt ama að drengnum. Læknirinn sagði foreldrunum, sem voru mjög áhyggjufullir, að drengurinn mætti fara heim með þeim. Öllum til mikillar furðu neitaði drengurinn að fara. „Ég fer ekki heim fyrr en konan skilar aftur blóðþrýstingnum, sem hún tók,“ sagði sá stutti og benti á hjúkkuna. Aldrei ánægð Guðrún var áttræð og einn af tryggustu sjúklingum læknisins. Hún var síkvartandi þó hún væri laus við alvarlega sjúkdóma. Hún leit meira að segja svo vel út að hún gat verið að minnsta kosti 10 árum yngri en tugirnir átta gáfu til kynna. Dag nokkurn kom hún á stofu til Gríms læknis og það fór ekki fram hjá honum hve frískleg gamla konan var. „Hvað gengur að þér í dag, Guðrún mín,“ spurði læknirinn. „Mér hefur liðið svo vel að undanfömu, að ég kom nú bara til að fá athugað hvað amaði að mér,“ sagði konan. Ekkert sýni Eldri maður kvæntist sér yngri konu. Þau áttu þá ósk heitasta að eignast barn en allar tilraunir til getnaðar voru árangurslausar. Maðurinn fór til læknis og bað um að fá að fara í sæðisfrumutalningu. Læknirinn rétti manninum krukku. „Farðu með þessa krukku heim og komdu svo á morgun með sæðisprufu í henni,“ sagði læknirinn. Maðurinn kom til baka með tóma krukku. „Ég reyndi eins og ég gat, fyrst með annarri hendi og síðan með báðum, en allt kom fyrir ekki,“ sagði karlinn. „Þá bað ég konuna að prófa. Hún reyndi fyrst með hægri, svo með vinstri og loks með báðum en ekkert gekk hjá henni heldur. Loks bað ég nágrannakonuna að reyna, en tilraunir hennar voru einnig árangurslausar." „Baðstu nágrannakonuna að reyna,“ spurði læknirinn undrandi. „Já, hún er svo ansi kröftug, en ekkert okkar gat opnað krukkuna." Læknablaðið 2001/87 181
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.