Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2003, Blaðsíða 73

Læknablaðið - 15.12.2003, Blaðsíða 73
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BROSHORNIÐ 43 Af hósta og biðtíma Hósti heima hjá lækninum Heimilislæknirinn var kominn heim í faðm fjölskyld- unnar eftir langan og annasaman dag á stofunni. Það var flensutíð og margir af sjúklingum læknisins voru með hita og hósta. Ein af fullveðja dætrum læknisins var búin að vera rám og hóstandi í tvær vikur án þess að vera tiltakanlega slöpp að sjá eða lasin. Hóstinn í dótturinni minnti pabbann á að væri hann kominn heim til sín. Þennan tiltekna dag var hóstinn í dömunni meiri en endranær. Þegar sest var að kvöldverðarborði þar sem stórfjölskyldan var saman komin, alls átta manns, fékk hún hóstakast. Af einhverjum ástæðum sendu flestir við borðið heimilisföðurnum ásakandi augnaráð. Þar eð samband föður og dóttur var með ágætum og hún ekki óvön skotum sem voru aldrei illa meint leyfði hann sér að segja: „Svona, kláraðu nú að hósta, elskan mín og þegiðu svo.“ Langur biðtími Maður hringdi á heilsugæslustöðina til að panta tíma hjá heimilislækninum. Þetta var á þeim tímum þegar sjúklingar þurftu að bíða í meira en tvo daga eftir því að komast að. Maðurinn gat fengið tíma eftir eina viku og þáði hann það. Áður en hann kvaddi spurði hann móttökuritarann: „Heldurðu að það verði ein- hver bið þá?“ Gefiö undir fótinn Eldri kona með mikla lífsreynslu var lögð inn á spít- ala. Er hún fór að hressast tók hún til við að daðra við karlkynið í hópi starfsfólks. Þegar ungur og myndar- legur deildarlæknir var að skoða hana gat hún ekki orða bundist: „Heyrðu vinur minn, ég hef verið að velta því fyrir mér hvort það mundi ekki flýta fyrir bata mínum ef við tvö eyddum nóttinni saman?“ „Jú, góða mín, ég er nokkuð viss um það en ég er ekki eins viss um að sjúkratryggingarnar myndu taka þátt í kostnaðinum." í réttarsalnum Læknirinn var kallaður til vitnis og lögmaðurinn sem talinn til hinna hörðustu í stéttinni sá um yfirheyrsl- una. Lögmaðurinn: „Læknir, gáðuð þér að hjartslætti áður en þér hófuð krufninguna?“ Læknirinn: „Nei.“ Lögmaðurinn: „Gáðuð þér að öndun eða blóð- þrýstingi?“ Læknirinn: „Nei.“ Lögmaðurinn: „Jæja, er þá hugsanlegt að sjúkling- urinn hafi verið lifandi þegar þér hófuð að kryfja hann?“ Læknirinn: „Nei, heilinn úr honum var í stórri krukku á borðinu hjá mér.“ Lögmaðurinn: „En gæti sjúklingurinn ekki hafa verið á lífi engu að síður?“ Læknirinn: „Nei, en bíddu annars við. Það er ekki útilokað, ef um lögfræðing hefur verið að ræða.“ Viö ævilok Læknirinn og gamli maðurinn sem var talinn ti! auð- ugustu manna landsins höfðu þekkst lengi og var vel til vina. Nú var hins vegar komið að leiðarlokum því heilsu mannsins hrakaði hratt og ljóst var að hverju stefndi. Læknirinn hafði alltaf verið hreinskilinn við þann gamla og ráðlagði honum því að ganga frá sín- um málum. „Ég er búinn að gera viðeigandi ráðstafanir," sagði sá gamli. „Það eina sem ég á eftir er að ganga endanlega frá erfðaskránni. Ég er hins vegar búinn að ákveða að setja í hana það ákvæði að læknirinn sem bjargi lífi mínu muni erfa allar milljónirnar mín- ar.“ Ráðgjöf í næringarfræði Eftir að hafa hlýtt sjúklingnum yfir heilsufarssöguna og skoðað hann gaumgæfilega sagði læknirinn: „Lár- us minn, ég finn sáralítið athugavert við þig. Þú ert við mjög góða heilsu þótt þú sért alltof þungur. Ég ráð- legg þér eindregið ef þú vilt halda heilsunni að gefa upp á bátinn þessa notalegu litlu málsverði fyrir tvo nema þú getir deilt þeim með einhverjum." Ein og uppgefin með höfuðverk Einstæð móðir með þrjú lítil börn var í þrengingum andlega, líkamlega og félagslega. Hún kom til heimil- islæknisins og kvartaði um mígrenhöfuðverk á háu stigi. Læknirinn hlustaði fullur skilnings á frásögn konunnar og sótti síðan lyfjaprufu úr skápnum hjá sér og rétti konunni. „Taktu þrjár af þessum töflum eftir hádegismat- inn. Ef þú ert enn með höfuðverk í kvöld skaltu fara eftir því sem stendur á pakkanum.“ „Að ég ætti þá taka þrjár töflur á fjögurra klukku- stunda fresti?" spurði konan. „Nei,“ sagði læknirinn, „geymist þar sem börn ná ekki til.“ Bjarni Jónasson bjarni.jonasson@gb.hgst.is Læknablaðið 2003/89 989
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.