Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Blaðsíða 8
Ólafur Áki Ragnarsson, bæjarstjóri
Ölfuss, er harðorður í garð Þórunn-
ar Sveinbjarnardóttur umhverf-
isráðherra sem úrskurðaði 9. maí
síðastliðinn að skylt sé að meta um-
hverfisáhrif vatnsverksmiðju sem
Jón Ólafsson kaupsýslumaður og
fleiri eru langt komnir með að reisa
í landi Hlíðarenda í Ölfusi. „Þetta er
mjög alvarlegt. Það er ekki gott að
vera með svona ráðherra, vegna þess
að úrskurðurinn er byggður á mjög
veikum grunni og þetta setur aðeins
fótinn fyrir uppbyggingu fyrirtækis-
ins sem er í miðjum áhættufjárfest-
ingum.“
Ólafur segir að farin hafi verið lög-
formleg leið í málinu og síðan hafi
komið kæra frá nágranna verksmiðj-
unnar áður en frestur rann út í fyrra.
„Nú er liðinn allur þessi tími. Það er
mjög íþyngjandi fyrir félagið að fá
úrskurð frá umhverfisráðherra níu
mánuðum eftir að kærufrestur rann
út. Þetta stenst varla stjórnsýslulög
og mér er kunnugt um að forsvars-
menn verksmiðjunnar eru reiðu-
búnir að höfða mál gegn umhverfis-
ráðherra vegna málsins. Þetta er allt
byggt á afar hæpnum grunni. Vatns-
púðinn á Reykjanesinu er sá stærsti
í allri Evrópu og það er víðs fjarri að
vatnsverksmiðjan hafi nokkurn tíma
ógnað vatnsbólum Þorlákshafnar.“
Ólafur Áki segir að hann og fleiri
hafi tvívegis talað við Þórunni um-
hverfisráðherra, nú síðast fyrir viku,
til þess að telja hana á að taka mál-
ið upp. Formlegt erindi frá lögfræð-
ingi framkvæmdaaðila um upptöku
málsins barst ráðuneytinu fyrir viku.
Verksmiðjan langt komin
Félagið Icelandic Water Holdings
er nú senn búið að reisa 10 þúsund
fermetra verksmiðju í Ölfusi og bún-
aður til framleiðslunnar er væntan-
legur síðar í þessum mánuði. Að-
aleigandi félagsins er Jón Ólafsson
kaupsýslumaður. Meðeigandi Jóns
er bandaríski drykkjarvörurisinn
Anheuser Bush sem framleiðir með-
al annars Budweiser-bjór og hefur
um helming bandaríska bjórmark-
aðarins. Jón sagði í fréttaviðtölum í
fyrra að ráðgert væri að hefja rekst-
ur verksmiðjunnar í haust enda fyr-
irfram búið að selja afurðirn-
ar, átöppuðu Glacial-vatni. Í
fyrstu er ráðgert að flytja út 100
milljónir lítra á ári. Innan fimm ára
er stefnt að því að fluttir verði út sem
svarar 250 til 500 gámar af átöppuðu
vatni á viku.
Forsvarsmenn Icelandic Water Hold-
ings vilja ekki tjá sig um málið að svo
stöddu.
Sérfræðingur sem DV ræddi við og
þekkir vel til málsins telur í hæsta
máta undarlegt að umhverfisráð-
herra skuli stofna ímynd og orðspori
eins umhverfisvænsta fyrirtækis
landsins í voða með illa grunduð-
um vinnubrögðum. Icelandic Water
Holding hafi nú þegar fengið við-
urkenningar og umhverfisverðlaun
fyrir framleiðslu sína erlendis og hafi
kolefnisjafnað reksturinn áður en
verksmiðjan í Ölfusi tekur til starfa.
Málið í vinnslu
Staldrað er við það hversu seint úr-
skurðurinn um mat á umhverfis-
áhrifum kom frá umhverfisráðherr-
anum eða um níu mánuðum eftir að
kærufrestur rann út í fyrra. Í stjórn-
sýslulögum er kveðið á um máls-
hraða og að stjórnvaldi beri að skýra
málsaðila frá fyrirsjáanlegum töfum
á afgreiðslu.
Ekki náðist í Þórunni Sveinbjarnar-
dóttur sem stödd var erlendis í gær.
Sigríður Auður Arnardóttir, skrif-
stofustjóri laga- og stjórnsýslusviðs
umhverfisráðuneytisins, segir að
í síðustu viku hafi borist erindi frá
lögmönnum framkvæmdaað-
ila þar sem óskað er
eftir endurupptöku
málsins á grundvelli
stjórnsýslulaga.
„Framkvæmda-
aðili telur
að úr-
skurðurinn sé
reistur á ófull-
nægjandi upp-
lýsingum og
neikvæðri
umsögn
frá Orku-
stofn-
un. Þetta
beinist
að umsögn
stofn-
unarinnar og því óskum við álits
hennar á erindinu. Okkur ber skylda
til að leita eftir sjónarmiðum.“
Í umsögn Orkustofnunar kemur fram
að stofnunin telji að framkvæmd-
in geti haft í för með sér umtalsverð
umhverfisáhrif á grunnvatn á svæð-
inu og skuli því sæta mati á umhverf-
isáhrifum. Þetta telja eigendur verk-
smiðjunnar og sveitarstjórnarmenn í
Ölfusi að byggist á misskilningi.
Um tafir á úrskurði af hálfu ráðherra
segir Sigríður að málsaðilar hljóti að
gera sér grein fyrir því í upphafi að
kæruferli sé í gangi sem geti farið á
báða vegu. „Það má kannski segja
að það hafi tafist að kveða upp úr-
skurð.“
föstudagur 13. júní 20088 Fréttir DV
Villandi umsögn Orkustofnunar, handvömm og fljótfærni eru lýsingar sem gefnar eru á ákvörðun Þórunnar
Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra um að skylt sé að meta umhverfisáhrif vatnsverksmiðju í Ölfusi.
Samkvæmt heimildum DV er líklegt að hún dragi ákvörðun sína til baka. Eigendur verksmiðjunnar eru
reiðubúnir að höfða mál gegn umhverfisráðherra á grundvelli stjórnsýslulaga.
RáðheRRa í vanda
„Það er ekki gott að vera
með svona ráðherra,
vegna þess að úrskurð-
urinn er byggður á mjög
veikum grunni.“
Jóhann haukSSon
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Jón ólafsson Vatn frá jóni er þegar selt í Bandaríkjun-
um og hefur hlotið umhverfisverðlaun þar. Hann er í
samstarfi við anheuser Bush-drykkjarvörurisann og
hefur þegar samið um sölu í Bandaríkjunum.
Þórunn Sveinbjarnardóttir
umhverfisráðherra Þórunn sæt-
ir mikilli gagnrýni í ölfusi og
jafnvel meðal náinna samstarfs-
manna samkvæmt heimildum dV.