Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Blaðsíða 49
DV Helgarblað föstudagur 13. júní 2008 49
Hann er með mörg háskólapróf í far-
teskinu og margir af helstu áhrifa-
mönnum þjóðarinnar eru í hans
vinahópi.Hann býr við ríkidæmi á
margan hátt en virðist hafa næma
tilfinningu fyrir þörfum og aðstæð-
um hins venjulega launamanns.
Enda bjó Matthías við kröpp kjör í
bernsku og ólst upp í Fellunum með
einstæðri móður sinni og þurfti að
leggja hart að sér í lífsbaráttunni. En
hann átti góða að og fékk hvatningu
til að ganga menntaveginn og setja
sér há markmið. Matthías telur að
bág kjör í upphafi séu sitt gull.
Þegar skoðaðar eru þær stjórn-
ir sem Matthías Imsland situr í, eða
hefur nýlega setið í, sést að þessi
34 ára forstjóri Iceland Express er
umsvifamikill í íslensku atvinnu-
lífi. Matthías hefur greinilega góða
yfirsýn yfir efnahags- og atvinnu-
lífið og hann virðist hafa næma til-
finningu fyrir straumum og stefnum
hins venjulega launamanns. Og það
er ekki slæmur eiginleiki fyrir for-
stjóra lágfargjaldaflugfélags eyþjóð-
ar í norðri.
„Fyrirferðarmest af þessum
störfum mínum í dag er auðvitað
forstjórastaða Iceland Express. Þar
á eftir fylgja störf við stjórnarsetu í
systurfélögum fyrirtækisins. Ég er
stjórnarformaður í Ticket, sem er
stærsta ferðaskrifstofa Skandinavíu,
og sit í stjórn Astraeus og Hekla trav-
el.
Svo er ég í stjórn Skeljungs og
varamaður í 365. En það er ekki
neitt sem heltekur tíma manns.
Áður fór mikill tími í störf fyrir Fons
og BYR, en ég hef markvisst dregið
mig út úr stjórnum. Það má nefna
að ég er hættur í stjórn Háskóla Ís-
lands sem var mér mjög kærkomið
starf og Iceland Express tekur nán-
ast allan minn tíma núna.
Ég flýg 3–4 sinnum í mánuði
starfs míns vegna, mest eru það
dagsferðir og mér finnst gaman að
fljúga og nota tímann um borð til að
vinna. Annars er ég minna á ferð-
inni til útlanda núna en þegar ég
starfaði fyrir Fons.“
Hvernig kom það til að þú fórst í
flugrekstur?
„Ég var að vinna hjá Pálma Har-
aldssyni í Fons og á sama tíma
í stjórn Iceland Express. Pálmi
hringdi í mig dag einn og sagði að
ég yrði að taka að mér þetta starf. Ég
hafði nú ekkert stefnt að því en hann
þrýsti á mig að taka að mér stjórn-
ina í fyrirtækinu. Ég játaði með því
skilyrði að þetta yrði í nokkrar vik-
ur – en það eru komin tæp 2 ár og
þetta er miklu skemmtilegra en ég
bjóst við og mikið fjör. Stór verkefni
blöstu við. En það er furðulegt til
þess að hugsa að ég datt inn í þetta
krefjandi og spennandi starf með
tveggja daga fyrirvara. Og ég sé ekki
eftir því. Við höfum náð ótrúlegum
árangri með Iceland Express. Sam-
kvæmt könnunum eru 85% okk-
ar viðskiptavina ánægð eða mjög
ánæð með okkur og við höfum verið
að bæta okkar markaðsstöðu milli
ára. Það var mikil aukning á sölu
miða frá 2006–2007. Og enn erum
við að auka selda miða. Það er til
dæmis töluvert meira selt nú en á
sama tíma í fyrra og bókunarstaðan
mjög góð.
Við höfum náð að draga fram í
fyrirtækinu þætti sem skipta máli
svo sem að ferðin sé jákvæð upp-
lifun. Fólk vill fá fallegt bros, hvíld
og afþreyingu um borð. Að ferð-
in sé eitthvað meira en rútuferð þó
þetta sé lággjaldaflugfélag. Við höf-
um verið með rannsóknir í hálft ár
á hvaða mat fólk vill og sáum að
fólk kallar eftir einhverju hollu og
við bjóðum upp á það núna. Það er
þrotlaus vinna að finna út hvað fólk
vill og hvað má bæta.“
Strákurinn í Fellunum
„Ég er fæddur og uppalinn í
Reykjavík og bjó fyrstu árin í Nönnu-
felli í Breiðholti. Foreldrar mínir
skildu þegar ég var 5 ára. Mamma
mín, Þórunn Kolbeins Matthíasdótt-
ir, þurfti að hafa fyrir lífinu og vann
mikið. Ég var töluvert einn heima,
varð snemma sjálfstæður og byrjaði
ungur að vinna og hjálpa til með því
til dæmis að selja blöð. Ég er líklega
gömul sál og leitaði mikið til afa og
ömmu. Afi minn í föðurætt, Albert
Imsland, sem ég skírði minn fyrsta
son í höfuðið á, mótaði mig mikið.
Ég á honum margt að þakka. En ég
man sterkt eftir því að ég þurfti að
hafa fyrir lífinu og það var mér mik-
ilvægt að reyna að skaffa peninga. Ég
flutti nokkuð oft í bernsku og skipti
um skóla. Ég fór í Ísaksskóla og síð-
ar í Breiðagerðisskóla og svo þeg-
ar mamma flutti vestur í bæ gerðist
ég mikill KR-ingur og maður er KR-
ingur fyrir lífstíð. (Þó ég sé í stjórn
knattpyrnudeildar ÍR í dag en það er
ástæða fyrir því.) Ég flutti svo næst
í Garðabæ og útskrifaðist úr Garða-
skóla í 9. bekk. Mamma flutti þá til
Svíþjóðar og fór í nám og ég var með
henni í nokkra mánuði en mér leið
ekki nógu vel þar, saknaði Íslands
svo ég flutti til móðurafa og ömmu
í Litlagerði þar til ég fór í Mennta-
skólann að Laugarvatni og útskrif-
aðist þaðan sem stúdent.“
Sumir hafa dregið upp dökka
mynd af því að alast upp í Fellahverf-
inu. Dæmi um það má sjá í kvik-
myndinni Börn. En hvernig fannst
þér að vera strákur í Fellunum?
„Bara fínt. Ég skaðaðist ekkert
af að búa í Fellunum. Ég flutti burt
8–9 ára en hef haldið mig mikið við
Breiðholtið síðan ég fullorðnaðist
og bý með fjölskyldu minni í Selja-
hverfi. Það eru bara jákvæðar minn-
ingar tengdar því að þurfa snemma
að hafa fyrir hlutunum. Vissulega
var erfitt hvað mamma þurfti að
vinna mikið. Hún stóð sig vel að
geta haldið ein utan um hlutina. En
þetta hefði orðið svakalega erfitt án
afa og ömmu, bæði í föður- og móð-
urætt. Þau voru mér svo mikil stoð
og stytta. Þegar ég horfi til baka sé
ég að það hefur verið mjög erfitt að
vera einstætt foreldi með barn og
þurfa að vinna mikið. Það eru ör-
ugglega einhverjir í dag í sambæri-
legri aðstöðu. Æskan mótaði mig
pólitískt og ég veit að við þurfum að
standa vörð um gott félagslegt kerfi
á sama tíma og ég trúi á að einstakl-
ingurinn eigi að fá að njóta sín.
Það hefði örugglega verið auð-
velt að lenda í rugli þar sem ég flutti
mikið og skipti um skóla og hitti
nýtt og nýtt fólk en stór hluti af því
hvernig ég hef náð árangri í lífinu er
afi og amma. Þau voru mikið í því að
bakka mig upp og hvetja mig áfram.
Og ég er sannfærður um að það er
ekki gott að fá of mikið upp í hend-
urnar. Ég lærði að treysta á sjálfan
mig og fór ungur að aldri að aðstoða
aðra fjölskyldumeðlimi fjárhags-
lega.“
Framkvæmdastjóri NATO
„Ég hef alltaf verið skipulagður
og sett mér markmið. Sem dæmi
má nefna minningabækur sem
voru vinsælar þegar ég var í 7 ára
bekk. Ég rakst á eins slíka þar sem
ég hafði skrifað á þessum árum að
ég ætlaði að verða framkvæmda-
stjóri NATO. Metnaðurinn fór ansi
snemma að sýna sig,“ segir Matthí-
as og hlær innilega. Hann hefur líka
verið duglegur námsmaður. Eftir
nám í stjórnmálafræði við Háskóla
Íslands hélt hann í nám til Svíþjóð-
ar og útskrifaðist með mastersgráðu
í Evrópufræðum frá háskóla í Lundi.
Því næst var lagt stund á nám í við-
skiptafræði í HÍ og MBA-nám í Chic-
ago þaðan sem hann fékk þá um-
sögn að vera annar tveggja bestu
námsmanna í framhaldsnámi í sögu
skólans.
„Konan mín sagði á ákveðn-
um tímapunkti að ég ætti að hætta
að safna háskólagráðum og fara
að safna frímerkjum eða einhverju
öðru. En það er ljóst að ég ætlaði
mér alltaf að ná árangri í lífinu. Ég
var staðráðinn í því að mín börn
þyrftu ekki að hafa fjárhagsáhyggj-
ur.“
Hugsjónirnar
Þegar litið er yfir stjórnarsetu
Matthíasar vekur athygli að hann
sat í stjórnum Félagsbústaða og Há-
skóla Íslands, sem sker sig nokk-
uð úr stórfyrirtækjunum sem hann
hefur starfað fyrir. Hver er ástæðan
fyrir því?
„Þetta liggur mikið á áhugasvið-
inu. Félagsbústaðir eiga eignir upp
á fleiri milljarða. Þetta er því spenn-
andi umsýsla á eignasafni. Og ég hef
ákveðnar skoðanir á þessum mál-
um út af mínu uppeldi og hafði hug-
sjónir um það hvernig ætti að nálg-
ast húsnæðiskerfið.
Ég vil sterkt net sem styður við
fólk, sterkt félagslegt kerfi, bæði hús-
næðiskerfi og heilbrigðiskerfi. Ég vil
að ríkið bjóði upp á sterkar grunn-
stoðir sem fólk á athvarf í. Það er erf-
itt og dýrt fyrir einstætt foreldri eða
fólk með lítil fjárráð að kaupa íbúð í
dag. Þú þarft að eiga 5–6 milljónir í
útborgun og það er erfitt. Því er fé-
lagslega húsnæðiskerfið þeim mun
mikilvægara. Ég hef áhyggjur af því
að það er allt of langur biðlisti eft-
ir félagslegum íbúðum. Og ástæð-
an er að þeir sem einu sinni kom-
,,Þeir sem voru
á einkaÞotunum
eru nú farnir að
fljúga mikið með
iceland express.
maður sér Það
um borð í vélun-
um að forstjórar
og framkvæmda-
stjórar eru farn-
ir að fljúga mikið
með okkur.“
Framhald
á næstu síðu
Hamingjusöm fjölskylda
Matthías er kvæntur Kristínu
Eddu guðmundsdóttur
kennara. Og börn þeirra eru
albert agnar Imsland,
bráðum 7 ára, guðmundur
Helgi, 4 ára, og Þórunn Ásta
sem verður þriggja ára í ár.
Ólst upp í Breiðholtinu
„Ég er fæddur og uppalinn í reykjavík og
bjó fyrstu árin í nönnufelli í Breiðholti.“