Morgunblaðið - 19.06.2015, Qupperneq 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2015
Ískáldsögu japanska rithöfund-arins Hiromi Kawakami,Stjörnur yfir Tókýó, segir frátæplega fertugri skrifstofu-
konu í þessari miklu borg, Tsukiko
Omachi að nafni. Hún lifir einföldu lífi
sem virðist fyrst og fremst snúast um
vinnuna; hún býr ein, hefur lítil sam-
skipti við ættingja, hefur átt í skamm-
vinnum ástarsamböndum sem henni
virðist standa á sama um en hún læt-
ur eftir sér að sækja
bari og þykir gott að
drekka bjór og sake.
Omachi segir frá og
sagan hefst á því þeg-
ar hún hittir á einum
barnum virðulegan
mann sem kenndi
henni japönsku og
bókmenntir í menntaskóla og hún
kallar einfaldlega Sensei, kennara.
Sensei er kominn á eftirlaun og í
ljós kemur að þrátt fyrir talsverðan
aldursmun þá eiga þó skrifstofu-
konan og kennarinn fyrrverandi sitt-
hvað sameiginlegt. Þau taka að mæt-
ast yfir forvitnilegum matarréttum
og drykk, þar sem kennarinn er
fulltrúi gamalla hefða, karlmennsku
og skáldskapar, en yngri konan er
rótlausari, ekki eins bundin af siðum
og regluverki, en sækir í félagsskap
Sensei.
Í ljós kemur að hann á sér for-
vitnilega sögu, þar var til að mynda
óvenjuleg eiginkona sem lesandinn
fær smám saman að heyra meira um.
Þá hittir Omachi gamlan vin, jafn-
aldra, sem býður upp á aðra leið í líf-
inu en í fylgd með gamla kennaranum
milli bara og veitingastaða. En það er
með Sensei sem Omachi heldur síðan
út fyrir borgina í ævintýralega
sveppatínsluferð og upplifir nýja
reynslu, „að vera umkringd örsmáum
lifandi verum“ (54) og lítur heiminn
eftir það öðrum augum, skilur að eng-
ar manneskjur eru eins, allir eiga sitt
eigið einstaka líf.
Þetta er hófstillt og látlaus frásögn
úr menningarheimi ólíkum okkar,
saga um siði og formfestu, einsemd í
mannmergðinni, um leyndarmálin
sem fólk getur búið yfir, en fyrst og
fremst er þetta hugljúf saga um ólíka
einmana einstaklinga sem ná saman á
athyglisverðan hátt og láta hvor öðr-
um líða vel, meðan það varir.
Höfundurinn Hiromi Kawakami
segir hugljúfa sögu frá Tókýó.
Einsemd og ástir í Japan
Skáldsaga
Stjörnur yfir Tókýó bbbnn
Eftir Hiromi Kawakami.
Kristín Jónsdóttir þýddi.
Bjartur - Neon, 2015. Kilja, 208 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Nýútkomin hljómplata hljómsveit-
arinnar Of Monsters and Men, Be-
neath the Skin, náði þriðja sæti á
bandaríska listanum yfir mest seldu
plöturnar þar í landi, Billboard, í
vikunni. Platan er sú mest selda á
Íslandi og einnig í Kanada og seld-
ust 61.000 eintök af henni í fyrstu
vikunni frá útgáfudegi. Hljóm-
sveitin hefur með þesu slegið fyrra
met sitt á Billboard-listanum en
fyrsta hljómplata hennar, My Head
Is an Animal sem kom út árið 2012
utan Íslands, náði 6. sæti listans í
apríl það ár.
Ljósmynd/Meredith Truax
Vinsæl Of Monsters and Men.
Plata OMAM í 3.
sæti á Billboard
Tveir viðburðir verða haldnir í
menningarhúsinu Mengi í kvöld og
á morgun, fyrir utan tónleika á
dagskrá hátíðarinnar Reykjavík
Midsummer Music. Í kvöld kl. 21
kemur fram hljómsveitin Stafrænn
Hákon sem er að leggja lokahönd á
níundu hljómplötu sína, Dula. Á
tónleikunum munu meðlimir flytja
nýja tónlist í bland við eldri. Annað
kvöld kl. 20 mun listafólkið Joshua-
Michéle Ross og Yvette Molina sýna
verkið The Suitable World eða
Hinn klæðilegi heimur. The Suit-
able World er heimildarverkefni
þar sem fylgt er eftir 28 daga
ferðalagi um Ísland þar sem ein og
sömu jakkafötin eru notuð, segir í
tilkynningu.
Stafrænn Hákon
og jakkaföt
Tónleikar Stafrænn Hákon.
Tveir viðburðir verða í kvöld, föstu-
dag, á dagskrá Midsummer Music-
hátíðarinnar sem Víkingur Heiðar
Ólafsson stýrir. Klukkan 20 hefjast
í Norðurljósasal Hörpu tónleikarnir
Pictures at an(other) Exhibition. Á
efnisskránni eru verkin „Cheap
Imitation“ eftir John Cage, „Suite
Italienne“ og „Double Canon „Rao-
ul Dufy in Memoriam““ eftir Igor
Stravinsky, „Canon in Memory of
Igor Stravinsky“ og „Suite in The
Old Style“ eftir Alfred Schnittke,
og „Pictures at an(other) exhibition
eftir Modest Mussorgsky“. Flytj-
endur eru Sigrún Eðvaldsdóttir,
Pauline Sachse, Sayaka Shoji,
Anna-Liisa Bezrodny, Skúli Sverr-
isson, Víkingur H. Ólafsson, Krist-
inn Árnason, Davíð Þór Jónsson og
Pétur Grétarsson. Í Mengi hefjast
klukkan 23 tónleikarnir Gráa svæð-
ið #1, með spunasessjónum og
gjörningum „af fínustu sort“.
Morgunblaðið/Einar Falur
Fjölbreytilegt Davíð Þór Jónsson
spinnur með Skúla Sverrissyni í Mengi.
Myndir á annarri
sýningu og spuni
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Íslenska kvikmyndin Albatross verður frumsýnd í
dag, fyrsta kvikmynd leikstjórans Snævars S.
Sölvasonar í fullri lengd. Hann hóf nám í Kvik-
myndaskóla Íslands árið 2012 þegar hann ákvað að
elta drauma sína. „Ég lærði upphaflega fjár-
málaverkfræði við Háskólann í Reykjavík og lauk
BS-prófi þaðan en sá síðan að áhuginn lá annað og
tók þá ákvörðun að gera það sem mig hefur alltaf
langað að gera í stað þess að vinna við eitthvað sem
ég hélt á sínum tíma að tryggði mér öruggar og
góðar tekjur,“ segir Snævar, en hann er léttur í
lund og það má skynja áhugann og kappið frá hon-
um og því augljóst að hann er kominn á rétta hillu í
lífinu.
„Við erum sett í kassa þegar við erum sex ára og
tekin upp úr honum mörgum árum seinna og rétt
stúdentsskírteini. Þá eru margir áttaviltir og vita
ekki hvað þeir eiga að gera. Sjálfum hafði ég alltaf
gaman af kvikmyndum en mér fannst það fjar-
lægur draumur að geta orðið kvikmyndaleikstjóri
enda horfum við allt of mikið til stórra nafna í
Hollywood og trúum því ekki að við getum þetta
sjálf. Síðan lét ég bara slag standa og er að gera
það sem mig hefur alltaf dreymt um.“
Byrjaði á öfugum enda
Kvikmyndir kosta sitt og ekki er fyrir alla að
ráðast í gerð kvikmyndar í fullri lengd, en Snævar
fór öfuga leið á við flesta íslenska kvikmyndaleik-
stjóra og framleiðendur. „Ég var ekkert að sækja
um styrki í Kvikmyndasjóð eða aðra menning-
arsjóði,“ segir hann. „Ég gerði bara myndina fyrst
og fór síðan að velta því fyrir mér hvort hægt væri
að fá styrki. Það er ekki ódýrt að gera kvikmynd,
en myndin mín fjallar um strák sem eltir kær-
ustuna sína til Bolungarvíkur og er myndin því
tekin upp þar að mestum hluta. Það hjálpaði mikið
að vera sjálfur að vestan og eiga í hús að venda
þar. Launakostnaður og uppihald er oftast stór
hluti af kostnaði við kvikmyndagerð en vegna þess
að við vorum með unga en auðvitað efnilega leik-
ara í myndinni og fengum mikla aðstoð fyrir vest-
an var kostnaðurinn minni en hann hefði getað
orðið annars.“ Tækjabúnaður kostar alltaf sitt en
Snævar segir nýja tækni hafa leyst eldri og dýrari
vélar af hólmi og því sé strax orðið auðveldara að
taka upp og klippa stórar myndir.
Leitaði í eigin reynslubanka
Handritið að verkinu skrifaði Snævar sjálfur, en
hann leitar í eigin reynslubanka.
„Þetta er saga um Tómas, sem er ungur og ást-
fanginn maður sem ákveður að leggja framtíð-
arplönin á hilluna til að elta kærustu sína vestur á
firði þar sem hann ræður sig í sumarvinnu hjá
Golfklúbbi Bolungarvíkur. Ekki beint það sem
hann hafði hugsað sér eftir háskólanám en ástin
spyr hvorki um stað né stund. Þar kynnist hann
ansi skrautlegum samstarfsmönnum og virkilega
metnaðarfullum yfirmanni sem þráir ekkert heitar
en að fá stórmót á golfvöllinn í Bolungarvík og líst
Tómasi ekki beint á blikuna. Allt gerir hann þetta
þó fyrir hina einu sönnu en svo dynja áföllin yfir.
Þetta er því saga um ungan mann sem er að finna
sig í lífinu, kannski svolítið eins og ég upplifði sjálf-
ur eftir að hafa lokið fjármálaverkfræðinámi en
langaði að gera eitthvað annað,“ segir Snævar og
bætir við að einhverjir vinir og ættingjar gætu
þekkt karaktereinkenni sín í myndinni. „Á sýningu
myndarinnar fyrir vestan þekktu sumir sig en það
var allt gert í góðu og enginn var sár eða reiður.“
Albatross fer í sýningu í öllum helstu kvik-
myndahúsum landsins.
Á Bolafjalli Í stillu úr myndinni má sjá hvar þrír ungir menn velta fyrir sér aðstæðum til svifvængjaflugs við gömlu ratsjárstöðina á Bolafjalli.
Ástfangið borgarbarn í
ævintýri fyrir vestan
Gaman Leikstjórinn að gantast við þá Pálma
Gestsson og Guðmund Kristjánsson (Mugga) á
milli takna á kvikmyndinni Albatross.
Kvikmyndin Albatross eftir leikstjórann Snævar S. Sölvason frumsýnd í dag