Öldrun - 01.10.2002, Blaðsíða 10

Öldrun - 01.10.2002, Blaðsíða 10
10 ÖLDRUN – 20. ÁRG. 2. TBL. 2002 Inngangur Minnisskerðing er það fyrsta sem flestum dettur í hug þegar rætt er um Alzheimer sjúkdóm enda eru fyrstu merki sjúkdómsins oftast minnisglöp. Minnis- glöpin ná í fyrstu einkum til þess hluta minnis sem sál- fræðingar kalla atburðaminni (e. episodic minni). Eins og nafnið gefur til kynna geymir atburðaminni upplýsingar um atburði í lífi okkar sem við getum stað- sett í tíma og rúmi og sem við rifjum upp á meðvitaðan hátt (Tulving, 1972; Wheeler, Stuss og Tulving, 1997). Atburðaminni gerir okkur kleift að rifja upp hvað okkur var sagt í fréttum í afmælisveislunni hennar ömmu í fyrradag og söguþráðinn í kvikmyndinni sem við sáum í sjónvarpinu í gær með fjölskyldunni í stof- unni heima. Atburðaminni er hluti langtímaminnis en langtímaminni rúmar einnig annars konar upplýsingar. Staðreyndaþekking af ýmsum toga, sem ekki er bundin stað eða stund, eigin upplifun eða samhengi (t.d. hver var með okkur og hvernig okkur leið), er einnig hluti af langtímaminni. Við kunnum margföld- unartöfluna en munum ekki hvar og hvenær við lærðum hana þótt við vitum að við lærðum hana í skól- anum. Það sama gildir um ýmsar sögulegar stað- reyndir og fræðilega þekkingu. Sá hluti langtíma- minnis sem geymir þessa staðreyndaþekkingu er kall- aður merkingarminni (e. semantic memory). Einstök hugtök eru líka geymd í merkingarminni. Merkinga- minnið gerir okkur kleift að þekkja hluti og rifja upp heiti þeirra, framkalla merkingu orða sem við lesum og umbreyta hugsun okkar og hugtakalegri þekkingu í töluð orð (Chertkow og Bub, 1990). Tungumálið og merkingarminni eru því tengd órjúfanlegum böndum. Margar leiðir eru til að meta starfsemi merkingar- minnis og af framangreindu ætti ekki að koma á óvart að málpróf eru oft notuð. Til dæmis má biðja sjúklinga að skoða myndir og nefna þær. Einnig má biðja sjúk- linga um að snerta hluti blindandi og nefna þá þannig eða skrifa heiti á hlutum sem þeim eru sýndir. Mjög algengt er að orðgleymska komi ekki fram í samtali þótt hún komi berlega í ljós við prófun. Þetta er vegna þess að í samtali er auðvelt að tala í kringum hlutina og þá ber oft lítið á erfiðleikunum. Við prófun eru svar- möguleikar hinsvegar færri, oft bara einn, og þá koma erfiðleikar auðveldlega í ljós. Orðfæð kemur einnig vel í ljós þegar sjúklingar eruð beðnir um að telja upp eins mörg dýr og þeir geta eða allt sem hægt er að kaupa í kjörbúðum. Bæði ofantalinna prófa, ásamt mörgum fleirum, geta endurspeglað merkingarminnisskerð- ingu þótt það sé ekki eina skerðingin sem endurspegl- ast í prófunum. Til dæmis geta sjúklingar með mikla athyglistruflun eða framheilaskerðingu átt erfitt með að telja upp orð samkvæmt merkingarflokkum. Upphafsmaður tvískiptingar langtímaminnis í atburða- og merkingarminni er sálfræðingurinn Endel Tulving (1972). Tvískiptingin hefur verið gagnrýnd en sú gagnrýni verður ekki rakin hér. Þó má geta þess að merkingar- og atburðaminni hljóta að samtvinnast. Til dæmis er frammistaða okkar alla jafna betri þegar við lærum orðalista sem er samsettur úr flokkanlegum orðum (t.d. verkfæri og krydd) en þegar við eigum að læra jafnmörg óskyld orð sem við getum ekki flokkað saman og þannig auðveldað minnishleðslu. Þegar við eigum að muna lista af skyldum orðum hjálpar skyld- leiki orðanna (merkingarminni) okkur að muna þau og rifja upp síðar (atburðaminni). Þrátt fyrir gagnrýni er skiptingin í atburða- og merkingarminni gagnleg og ekki líkleg til að hverfa. Tulving (1985) hefur hins- vegar brugðist við gagnrýninni með því að telja atburðaminni undirkerfi í merkingarminni. Þótt skerðing í atburðaminni sé oftast fyrsta ein- kenni Alzheimer sjúkdómsins og lengi vel það sem er mest áberandi truflast merkingarminni einnig og Merkingarminni og Alzheimersjúkdómurinn Nokkur orð um mikið efni María K. Jónsdóttir Ph. D. yfirsálfræðingur Sálfræðiþjónustu vefrænna deilda endurhæfingarsviði LSH

x

Öldrun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldrun
https://timarit.is/publication/1137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.