Sagnir - 01.06.1998, Blaðsíða 57

Sagnir - 01.06.1998, Blaðsíða 57
SAGNIR ‘ 98 56 19 18 - 1 99 8 Fyrir nokkrum árum fjallaði Eggert Þór Bernharðsson á síðum Sagna um þau vandamál sem blasa við sagnfræðingum sem rannsaka samtímasögu og þurfa að leita að skjölum á hinum ýmsu skjalasöfnum, heim- ildirnar geti verið dreifðar og þær erfitt að finna.1 Segja má að mörg svipuð vandamál blasi við þeim sem þurfa að vinna með gamlar ljósmyndir, en þær eru sagnfræðingum afar mikilvægar, ekkert síður en gömul skjöl.2 HVERT LEITA SAGNFRÆðINGAR OG AðRIR SEM þURFA Að NOTA GAMLAR LJÓSMYN- DIR? Á Þjóðminjasafni Íslands er trúlega eitt stærsta safn ljós- mynda, eða um 1,6 milljón myndir. Ljósmyndasafn Reykjavíkur varðveitir um 1.4 milljón mynda og er næst stærsta safn landsins. Önnur söfn sem varðveita ljósmyndir eru til dæmis Byggðasafn Hafnarfjarðar, Byggðasafn Vestmannaeyja, Skjalasafn Ísafjarðar og Minjasafnið á Akureyri, svo nokkur séu nefnd.3 Því má ljóst vera að mikið magn ljósmynda er til á hinum ýmsu söfnum víðs vegar um landið og myndefnið er að sama skapi afar fjölbreytt.4 Á þessum stofnunum standa menn oft frammi fyrir hinum ýmsu vandamálum. Ljósmyndasöfn koma til þeirra í afar misgóðu ástandi. Ýmisleg efnaferli valda því að með tíð og tíma eyðileggjast myndirnar, en þó er hægt að hægja á þessum innri eyðileggingarferli til muna með því að varðveita þær við sérstök skilyrði. Þá þekkist það einnig að ljósmyndir hafa beinlínis legið undir skemmdum, svo sem af völdum vatns eða raka. Algengt er að ljósmyndir séu illa, ef nokkuð merktar og upplýsingar um myndefnið eru oft af skornum skammti. En til þess að ljósmyndirnar nýtist sagnfræðingum fyllilega sem heimildir, er mikilvægt að slíkar upplýsingar séu sem bestar; ítarlegar og áreiðanlegar. HVERNIG ERU LJÓSMYNDIR SEM RATA INN Á SÖFN MEðHÖNDLAðAR? Við móttöku einstakra ljósmyndasafna5 er útfyllt mót- tökuskýrsla, þar sem skráð er nafn gefanda og móttökudagur og safnið fær svokallað aðfanganúmer. Einnig eru skráðar allar fáanlegar upplýsingar um safnið og þá muni sem því kunna að fylgja (oft nefnt fylgifé). Samkvæmt lögum falla ljósmyndir undir höfundarétt, en það þýðir að ekki er leyfilegt að nota þær án leyfis höfund- ar eða rétthafa. Greiðslur fyrir notkun ljósmynda eru samkvæmt ákveðnum gjaldskrám. Vegna þessa eru í mörgum tilfellum gerðir samningar við gefendur myndasafna. Næsta skref er að skrá safnið, flokka myndirnar og númera hverja einustu mynd. Stundum eru myndir í það slæmu ástandi að þær þarf að meðhöndla sérstaklega og jafnvel er mikilla viðgerða þörf. Slíkar aðgerðir geta verið afar flóknar, dýrar og vandasamar. Því næst eru svo kallaðir kontaktar6 gerðir af frummyndunum (hvort heldur það eru filmur, glerplötur, eða pappírskópíur). Mikið kapp er lagt á að varðveita frummyndirnar á sem Sagnir 19 (1998) Guðbrandur Benediktsson: Af Ljósmyndasafni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.