Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.09.2009, Blaðsíða 20

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.09.2009, Blaðsíða 20
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 4. tbl. 85. árg. 200916 Inngangur Byltur eru mikið vandamál á sjúkra- stofnunum hér sem annars staðar í heiminum. Árlega eru skráðar um 500- 600 byltur á Landspítala einum en ætla má að þær séu mun fleiri. Tíðni byltna er talin vera einn af þeim gæðavísum sem segja til um gæði þjónustu sjúkrastofnana. Byltur hafa oft alvarlegar afleiðingar en áverkar eru skráðir hjá 21–27% sjúklinga sem detta á Landspítala. Áverkar geta verið allt frá smáskrámum til áverka sem leiða til dauða. Byltur geta haft langvarandi áhrif á almenna líðan eldra fólks þar sem þær geta leitt til kvíða og ofsahræðslu við Vinnuhópurinn, sem vann leiðbeiningar til að fyrirbyggja byltur, gaf einnig út bækling fyrir sjúklinga og aðstandendur um byltuvarnir. GERÐ OG INNLEIÐING KLÍNÍSKRA LEIÐBEININGA TIL AÐ FYRIRBYGGJA BYLTUR Klínískar leiðbeiningar eru orðnar mikilvæg leið til þess að tengja saman rannsóknir og klíník og auka gæði þjónustunnar. Hér er sagt frá vinnunni við að búa til leiðbeiningar um byltur á Landspítala. Eygló Ingadóttir, Hlíf Guðmundsdóttir og Auðna Ágústdóttir, eygloing@landspítali.is að detta og fleiri einkenna sem oft hafa verið nefnd á ensku „postfall syndrome“ eða fallótta. Það getur leitt til minni virkni einstaklingsins og félagslegrar einangrunar hans (Ignatavicius, 2000). Það er því til mikils að vinna að fyrirbyggja byltur. Gerð klínískra leiðbeininga til að fyrirbyggja byltur Árið 2005 var stofnaður þverfaglegur vinnuhópur á Landspítala til að vinna klínískar leiðbeiningar til að fyrirbyggja byltur. Klínískar leiðbeiningar eru tilmæli um verklag sem byggt er á traustum vísindalegum grunni til stuðnings starfs fólki í heilbrigðisþjónustu við ákvarðana töku í daglegum störfum (Landlæknisembættið, 2007). Nauð- synlegt þótti að gera leiðbeiningar um hvernig koma má í veg fyrir byltur en í óbirtri skýrslu á Landspítalanum kom fram að 8% sjúklinga, sem duttu samkvæmt atvikaskráningarkerfinu árið 2001, hlutu beinbrot (Eygló Ingadóttir, 2004). Vandamálið er því alvarlegt og hefur mikil áhrif á batahorfur og líðan sjúklinganna. Einnig var ljóst að margir faghópar þurfa að samhæfa aðgerðir sínar til að aðgerðirnar beri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.