Skólavarðan - 01.02.2009, Blaðsíða 29

Skólavarðan - 01.02.2009, Blaðsíða 29
SKÓLAVARÐAN 1.TBL. 9. ÁRG. 2009 SMIÐSHöGGIÐ 29 Ágæta samfélagsfólk. Hvað er yndislegra en brosandi og ham- ingjusöm börn? Varla nokkuð þessa síðustu og verstu daga hér á Íslandi ! Okkur langar að kynna okkur. Við erum leik- skólinn Andabær á Hvanneyri í Borgarfirði. Nafnið vekur spurningar hjá mörgum sem hringja í okkur eða hafa samband. Það er dregið af hreppnum sem var til fyrir daga sameiningar við Borgarbyggð, svo rennur jú líka Andakílsá hér um. Sumir halda að leikskólinn okkar sé bara fyrir fólkið í sveitinni, aðrir halda að íbúar hér séu fólk sem er með búskap uppi í sveitum og svona mætti lengi telja. Margir velta fyrir sér hvað sé eiginlega unnið hér á Hvanneyri en það verður ekki talið upp hér, þið verðið bara að gúgla! En okkur þykir vænt um nafnið á leikskólanum okkar, það er hægt að leika sér með það og okkur finnst það hafa víðtæka merkingu. Hjá okkur ríkir mjög mikill kærleiksandi, börnum og starfsfólki líður vel. Við merkjum það af því að börnin koma brosandi til okkar og fara héðan með bros á vör. Starfsfólkið er líka glatt og hér ríkir mikil samkennd meðal starfsmanna. Samfélagið okkar er lítið og náungakærleikur mikill. Við leggjum mikið upp úr að barnið fái að njóta sín og einnig leggjum við mikið upp úr því að samskipti við foreldra séu góð. Hér ríkir rólegur andi, foreldrar gefa sér og börnum sínum góðan tíma þegar komið er og kvatt. Ekkert stress!! Starfsandinn hjá okkur er góður og búum við svo vel að hafa átta leikskólakennara af þrettán starfsmönnum. Starfshópurinn er stöðugur, sem er alveg frábært að vinna við. Það er mög gott fyrir alla, börn, starfsfólk og foreldra og mikill munur fyrir deildir að geta leitað hvor til annarrar þegar spurn- ingar vakna um velferð barnsins, það er kostur að hægt er að rekja þroskaferil þess á leikskólanum. Má því segja að hér ríki nokkurs konar stöðugleikaandi! Við höfum ákveðna uppeldisstefnu að leiðarljósi og erum búnar (jú, jú, rétt til get- ið, hér vinna bara konur) að skapa okkur ákveðna vinnuaðferð sem okkur finnst henta Andi og andar í Andabæ Katrín Jónsdóttir kennari í Andabæ skrifar fyrir okkur Smiðshöggið Andabæjarstarfsfólkið. Kata er önnur frá hægri í fremstu röð. Lj ós m yn d ar i: S ig u rj ón E in ar ss on Margir velta fyrir sér hvað sé eiginlega unnið hér á Hvanneyri en það verður ekki talið upp hér, þið verðið bara að gúgla!

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.