Ný Dögun - 01.11.1997, Blaðsíða 18

Ný Dögun - 01.11.1997, Blaðsíða 18
Umræðan er hafin 'NYDÖGUN■ Hvenær veldur fréttaflutningur sársauka? Taka fjölmiðlar tillit til fólks, sem lendir í harmraunum og til aðstandenda þess? Hvernig tekur skipulag björgunarsveita, lögreglu og almannavarna mið af fréttaflutningi og fjölmiðlun? Hvað geta fjölmiðlar, björgunaraðilar og þeir, sem hlúa að slösuðum og aðstandendum gert til að forðast að fréttaflutningur valdi óþarfa sárindum? Hverjar eru heim- ildir ríkisvaldsins til að setja reglur um fréttaflutning af slysförum? Þessar spurningar og aðrar ámóta voru ofarlega á baugi á málþingi, sem haldið var í Reykjavík þann 18. apríl á síðasta ári. Málþingið var haldið á vegum nefndar, sem samkvæmt sam- þykktri þingsályktunartillögu, var falið að leggja grundvöll að samráðs- vettvangi hlutaðeigandi aðila um fréttaflutning og upplýsingaskyldu stofnana um slysfarir og harmraunir fólks. Það var Gunnlaugur Stefáns- son þáverandi alþingismaður sem var fyrsti flutningsmaður tillögu í þessa veru á Alþingi. Fyrst lagði hann tillöguna fram á þingi árið 1991 og á hverju ári eftir það, en það var þó ekki fyrr en á árinu 1995, sem hún fékkst samþykkt, þá eftir að orðalagi hennar hafði verið breytt. Upphaf- lega tillaga Gunnlaugs var í þá veru, að sérskipaðri nefnd yrði falið að móta starfsreglur um fréttaflutning og upplýsingaskyldu af viðkvæmum málum, sem snertu strengi í til- finningum fólks, en úr varð sú mála- miðlun, að þessi nefnd legði grund- völl að samráðsvettvangi aðila um fréttaflutning. Með öðrum orðum, þá var tregða við því að samþykkja það að setja niður fastmótaðar við- miðunarrreglur í þessu sambandi og borið við frelsi fjölmiðla, en fallist á það að fjölmiðlarnir sjálfir og aðrir aðilar hefðu samráð sín á milli um verklag í þessum efnum. I stuttu samtali við tímarit Nýrrar dögunar kvaðst Gunnlaugur hafa farið fram með málið vegna þess að honum og fleirum hefði á stundum blöskrað atgangur fjölmiðla, þegar slys og harmrænir atburðir ættu sér stað. Sumir fjölmiðlar hefðu farið þar offari á sama tíma og aðrir hefðu gert grein fyrir atburðum með hófstilltum hætti. Margir hefðu haft samband við sig vegna mála af þessum toga og ekki sagt sínar farir sléttar af sam- skiptum við fjölmiðla við þessar að- stæður. „I mínum huga var ekki til- gangurinn að hefta frelsi fjölmiðla til að segja fréttir, heldur hitt að þeir kæmu sér saman um viðmiðunar- reglur til að fara eftir, við þessar erf- iðu og viðkvæmu kringumstæður," sagði Gunnlaugur og bætti við. „Það eru fjölmörg álitamál sem upp koma þegar slys ber að höndum. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Siðræn við- mið mega ekki gleymast í atgangin- um og samkeppninni við að verða fyrstur með fréttirnar.“ Gunnlaugur kvaðst ánægður með að þessi umræða væri farin af stað fyrir alvöru og hann tryði því að skynsamleg og manneskjuleg viðmið yrðu ofan á, þegar fjölmiðlar fjölluðu um slys og aðrar harmraunir fólks. Nefnd sú er þingsályktunartillagan gerði ráð fyrir að skipuð yrði var sett á laggirnar haustið 1995. I henni voru: Böðvar Bragason lögreglu- stjóri, tilnefndur af Almannavarnar- ráði, Pétur Gunnarsson blaðamaður, tilnefndur af Blaðamannafélagi Is- lands, Sigfinnur Þorleifsson prestur á sjúkrahúsi Reykjavíkur, tilnefndur af Siðfræðistofnun Háskóla íslands, Sigrún Jóhannesdóttir lögfræðingur og ritari Tölvunefndar, tilnefnd af þeirri nefnd og Hjalti Zóphaníasson skrifstofustj óri í dóms- og kirkju- málaráðuneytinu, skipaður af því ráðuneyti. Hjalti er jafnframt for- maður nefndarinnar. Nefndin stóð síðan fyrir áður- greindu málþingi. I kjölfarið var síð- an gefinn út lítill ritlingur, þar sem framsöguræður og umræður á mál- þinginu voru birtar. Er lesendum tímarits Nýrrar dögunar bent á að hafa samband við dómsmálaráðu- neytið, ef þeir vilja nálgast þær upp- lýsingar og kynna sér nánar innihald umræðna. Hins vegar er birt í tímariti þessu innlegg fulltrúa Nýrrar dögunar á málþinginu. Það var Jóna Dóra Karlsdóttir, sem hélt framsöguræðu undir heitinu: Hvenær veldur frétta- flutningur sársauka? Þá tók Sonja Jónsdóttir, þáverandi formaður Nýrrar dögunar þátt í al- mennum umræðum, sem urðu í tengslum við pallborðsumræður. 18

x

Ný Dögun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.