Ný Dögun - 01.11.1997, Blaðsíða 19

Ný Dögun - 01.11.1997, Blaðsíða 19
=NÝ DÖGUN == flHJvenær veldur fréttaflutningur sársauka? - ERINDI JÓNU DÓRU KARLSDÓTTUR, NÝRRI DÖGUN, Á RÁÐSTEFNU UM FRÉTTAFLUTNING FJÖLMIÐLA AF HARMRÆNUM ATBURÐUM. Hlutur fjölmiðla þegar kemur að frásögnum varðandi slys og náttúruhamfarir er nijög veigamikill. Ábyrgð þeirra er stór. Hlutverk þeirra er að flytja fréttir og segja rétt og satt frá staðreyndum, miðla upplýsingum sem að gagni kunna að koma fyrir þann sem móttekur. Ósköp virðist þetta allt einfalt og sjálfsagt, þegar hlutverki fjölmiðla er lýst þessum almennu orðum. En þegar að framkvœmdinni kemur er margt að athuga og ýmislegt sem gaumgœfa þarf. Hvað er rétt og hvað er rangt? Eru heimildamenn tráverðugir? Hvað er frétt og hvað er ekkifrétt? Hver úrskurðar um það? Er almenna reglan sú að hvaðeina sem fjölmiðlar telja að fréttaþyrstir neytendur vilja lesa, sjá og heyra, eigi að koma áframfœri við þá? Eða eru einhverjar skorður? Og hver setur þœr og eftir hvaða reglum? Hvenœr er frétt frétt og hvenœr er hún ekkifrétt? MYND- OG NAFNBIRTING Ljóst er að íslenskir fjölmiðlar hafa þá meginrelgu að hnýsast al- mennt ekki í einkalíf fólks, nema að fengnu samþykki þess. Gula pressan víða úti í heimi hirðir ekk- ert um slíkar siðareglur og er ekk- ert heilagt í þessum efnum. Parna skilur á milli hinna svokölluðu ábyrgu fjölmiðla og hinna sem segja einfaldlega; selji það blaðið þá er rétt að greina frá því, hvort heldur umrædd frásögn kunni að vera sönn eða login. En vissulega eru þarna grá svæði. Ákveðnir málaflokkar og tilvik, sem eru háð mati hverju sinni. Öll þekkjum við til að mynda um- ræðuna sem átt hefur sér stað varð- andi mynd- og nafnbirtingar af meintum sakamönnum. Megin- reglan hefur verið sú af hálfu ís- lenskra fjölmiðla að fara mjög var- lega í þeim efnum - ekki eingöngu með hliðsjón af viðkomandi ein- staklingi, hinum meinta sakaman- ni, heldur og ekki síður af tillitsse- mi við ættingja hans og vini, þá sem alsaklausir eru. Nákvæmlega sama á við þegar komið er að viðkvæmum frásögn- um af slysum og náttúruhamförum. Þar eru það ekki síst þeir sem nærri standa, eru í nánum skyldleika við hinn slasaða eða látna, sem þörf er á að vernda. HVORT VEGUR RYNGRA? Og þá kemur í raun að hinni stóru spurningu: Hvort vegur þyngra í hugum fréttamanna, sam- keppnin um að segja fréttirnar eins nákvæmlega og eins fljótt og nokk- ur kostur er til að metta frétta- þyrstan almenning eða hitt að laga sig að ákaflega erfiðum aðstæðum þess fólks sem um sárt á að binda, aðstandendum þeirra slösuðu og látnu. Þarna, enn og aftur, þarf að hafa kalt höfuð og heitt hjarta, kalda skynsemi að leiðarljósi en jafnframt samúð og kærleika með í för. Ég sagði áðan að fjölmiðlun er- lendis, t.d. í Bretlandi og Banda- ríkjunum væri sumpart mjög misk- unnarlaus og gróðafíknin öllu öðru yfirsterkari. Því er það að mann- legar tilfinningar og samúð með einstaklingum er oft víðs fjarri. Svoleiðis fjölmiðlun viljum við ekki sjá hérlendis. Ekki síður er nauðsynlegt að hafa aðgát í nær- veru sálar hér á landi vegna smæð- ar okkar þjóðfélags. Við erum aðeins um 270 þúsund manns sem byggjum þetta land, eins og smá- þorp úti í hinum stóra heimi. Hér þekkja allir alla og návígið mikið. Það er að mínu áliti enn frekari undirstrikun þess, að fjölmiðlar fari með gætni og varúð, þegar kemur að viðkvæmum frásögnum er lúta að lífi og dauða fólks. Það er til dæmis mörgum í minni þegar hörmulegt slys varð í Banda- ríkjunum fyrir nokkrum árum þeg- ar farþegaflugvél brotlenti á ísi lagðri á í miðri stórborg. Banda- rísku sjónvarpsstöðvarnar voru með beinar útsendingar af björg- unaraðgerðum og í miðri útsend- ingu háði margt fólk sitt dauðastríð og varð undan að láta. Vilja íslend- ingar slíka fjölmiðlun inn í stofu til sín, þar sem meðbræður þeirra, jafnvel ættingjar og vinir, sem 19

x

Ný Dögun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.