Vísir - 19.09.1914, Blaðsíða 1

Vísir - 19.09.1914, Blaðsíða 1
II VÍSIR Stærsta, besta og ódýrasta blað á íslenska tungu. Um 500 tölublöð um árið. Verð innanlands: Einstök blöð 3 au. Mánuður 6C au Arst].kr.l,75. Arg.kr.7.oo. Erl. kr. 9,oo eða 2l/2 doll. VISIR kemur út kl. 7'/2 árde0_. hvern virkan d*g.—Skrif- stofa og afgreiðsla Austur- str.14. Opin kl. 7 árd. til 8 síðd. Sími 400.—Ritstjóri : GunnarSigurÖ88on(fráS' ™ læk). Til viðt venjul. kl.2-3i ■'! London 17. sept., kl. 7,30 e. h. Frá Bordeaux er opinberlega símai ai afturlið fjandmannanna bafi háð varnarorustu 14. og 15. þ. m. á allri berlínunni og bafi meginher- ir Þjóðverja komið því til hjálpar. Frá aðalherstöðvum Frakka bafa ekki komið neinar nýjar ítarlegar fregnir viðvíkjandi þessari viðureign, en það er ekkert merkilegt við þá þögn, úr því um fleiri daga orustu er að gera. Her Frakka hefuí hvergi látið undan. Fregnriti Daily News fullyrðir að Kluck hershöfðingi hafi verið umkringdur af nýju liði að vestan. Flotamálastjórnin tilkynnir að það hafi verið köfunarbáturinn E. 9, sem sökti þýska beitinum Hela í Helgolandsflóanum. Central News. Kluck hershöfðingi er sagöur fyrirliði vestasta (hægra) fylk- ingararms Þjóðverja næSt París. Laugard. 19. sept. 1914. Iláflóö árd. kl. 449; síöd. kl. 5,9. Nýtt tungl. Afmæli á morgun: Kristjana Havsteen ekkjufrú. Stefania Copland húsfrú. Emanuel Cortes prentari. Gísli Þorkelsson múrari. GuSni Oddsson trjesmiöur. Páll Ó. Lárusson, trjesmiöur. Vigfús Einarsson fulltrúi. G-amla Bié. E#!íi?æi (Vonda stjúpan.) Leikrit í 3 þáttum. itór-fögur og afar spenn- andi myad. — Áhrifamikill leikur. Leikinn af góðkunnum dönskum leikurum og þar á meöal SANNOM-SYSTRUNUM i LandsbankanBtn uppi. — Opin kl. 5—7. Talsími 409. — P. Bryxij ólfssou, Konungl. hirðljósmyndari. Talsími 76. Mynda9tofa opin kl. 9—6 (sunnudaga xi—3^2). Stæíst og margreynd hin besta á landinu. — Litur myndanna eft- ir ósk. Ífl-CBFÉ EB BESI. SÍMI 349. Hartvig1 Nielseu. Sj © vátry g'ging' fyrir stridshættn hjá H. TH. A. THOMSEN. Bkrifstofa Umsjónarmanns áfengiskaupa, Grundarstíg 7, opin kl. 3—5. Sími 287. Rrí mpellloiH. Hversvegna hörfa Þjóðverjar í Frakklandi? T i m e s frá 10. þ. m. segir, að ekki sjeu fullkunnar enn ástæður þess, að Þjóðverjar tóku að hörfa aftur í Frakklandi 6. þ. m. Áður höfðu þeir haft mjög mikinn fram- gang og vafalaust gert sjer bestu vonir um að geta brotist í gegn- um fylkingar bandamanna og síð- an sótt að þeim á tvo vegu og haft ráð þeirra i hendi sjer. En þessi von hefur brugðist. Bandamenn ljetu undan síga, en Þjóðverjar konxust ekki á bak þeirn. f annan stað hafa Rússar barið svo harðlega á Austurrikismönn- um, að þeir virðast mjög að þrot- um komnir. Að minsta kosti fá þeir einir ekki reist rönd við fram- sókn Rússa. Þýskalandi er opinn voöi fyrir dyrunx, því að þótt Þjóð- verjar liafi rekið Rússa af höndum sjer i Austur-Prússlandi, þá vofa Rússar yfir landi þeirra úr arinari átt: sunnan úr löndum Austurrík- is. Þjóðverjum var því nauðugur einn kostur, að senda liö tafarlaust austur til liðs við Austurríkismenn. Þessvegna neyöast þeir til aö fækka liöi sínu í Belgíu og Frakk- landi, og af því leiðir aftur, að þeir verða aö hörfa undan austur á bóginn. Að vísu er ekki alveg víst, að „afturhvarf" Þjóðverja stafi af liðsending astur, en það er mjög sennilegt. í fyrstu hafa þeir ætl- að að vinna svo hvatlega á Frökk- um, að þeir gætu bráðlega snúið miklu liöi austur gegn Rússum, en ]>ótt þeir hafi sýnt hina niestu hreysti og harðneskju, þá hefur þeim orðið þetta ofurefli. Alla þessa daga hefur verið bar- ist af mikilli grimd og mannfall allmikið á báða bóga. Sumstaðar hafa Þjóðverjar haldið velli, hvergi unnið á, en víða orðið að hörfa aftur. Borgin V e r d u n var þó í mikilli hættu. segir T i m e s 10. þ. m. og gerðu Þjóðverjar af- ar harðar árásir á hana, en blaðið býst þó við, að lxorgin muni stand- ast þangað til bandamenn geti leyst lir ia úr umsátri, enda er hún rammlega víggirt. Sennilegt er, að Þjóðverjar hafi nú fækkað svo liði sínu á vestur- slóðum, að þeir láti sjer nægja að halda þar i horfinu og jafnvel láta undan síga austur að landamær- um sínum eða þangað, sem þeir geta bestum vörnum við komið. Strllsiistlir. 1. Stríðsæsing. Éf segja má og það meö rjettu, að skeytin frá einurn málsaðila i striðinu sjeu einhliða, þá eru blöð- in það ekki síður, að minsta kosti þau er hingað berast. Auðsjáanlega er blaðamenskan öll í raun og veru hjá þjóðunum, er að ófriðnum standa, ekki annað en einn þátturinn i styrjöldinni og han einn sá mikilsverðasti. Blöðin heyja stríðið inn á við, stríðið við að lialda þjóðinni saman og at- hyglinni vakandi á því, hvað frarn er að fara og hvað í húfi er. Það er vandi, að stjórna stór- þjóðum, stór vandi að hitta ein- mitt á að slá á hina rjettu strengi ] og beita hinunx áhrifamestu með- 1 ulum til þess að sannfæra þjóð- Nýja Bié HASKALEGr RITVILLA. Fallegur amerískur sjón- leikur. Aðalhlutverkið leik- ur hinn alþekti leikari MAURICE COSTELLO. IKéKREPFAN. Mjög skemtilegur gam- anleikur um skóhvarf og ráðagóðan ungan mann. IfrSSBfiE-LIEKIIII 6181. IIETIRSSBI. Heiag* kl. 6—7 «. k. — Sími 394. fiflllIltSSMllBSTOFl iu mniawn I.ækjargötu 14 B («ppi á lofti) er venj«l«g* opin 11-3 virka daga. ina um að stríðið sje rjettmætt — því að á þvi ríður lifið, að þjóðia tráá því, að hún sje að berj- ast fyrir rjettu máli. — Og nú á tímum getur verið fullerfitt að sannfæra upplýstar þjóðir Norður- álfunnar um að þær hver í sínu lagi e i g i r j e 11 i n n einar, en mótstöðumaðurinn engan skerf af honum. Og það er svo hætt við, að ef boginn er spentur of hátt í byrjun, að hann bresti og trú þjóðarinnar fari át í veður og vind. Það, sem við lærum af þessum útlendu blöðum sem berast frá Englandi og Þýskalandi, virðist vera það, að meðulin til þess að halda uppi áliMganum gagovart styrjöldinni sjeu nokkuð gróf, bor- íh saman við þsér málsbætur, sem þjóðirnar hafa þó í raun og veru hver i sínú lagi til þess að heyja stríðið. En það er nú einu sinni svo, að það dugar ekki að tala til skyn- seminnar hjá. fjöldanum, það verð- ur að vekja tilfinningarnar — hreint og beint að æsa menn upp til fjandskapar. Og af þessum æsingum eru t. d. .þýsk og ensk blöð alveg full. Taumlaus rógur um mótstöðu þjóðina og henni ekki lagt annað til en illar hvatir. Hlutlausum mönnum hlýtur að finnast nóg urn ,að- sjá mentuðustu þjóðir heims.- ins láta svona, að þær skuli engin önnur ráö hafa en að geysast svona þvert um hug sjer. Ósjálfrátt finst manni nefnilega að ekki þúrfi nema herslumuninn til þess að þær skammist sin, fall- ist í faðma og biðji hver aðra fyr- irgefxxingar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.