Lögrétta

Tölublað

Lögrétta - 07.07.1915, Blaðsíða 3

Lögrétta - 07.07.1915, Blaðsíða 3
LÖGRJETTA iii hensen 18 og sjera Jón Árnason 9, en sjera Sig. Guömundsson ekkert. 867 atkv. voru alls greidd og er sjera M. J. löglega kosinn. Hafnarvörður. Samþ. var nýlega á bæjarstjórnarfundi, aö skipa sjer- stakan mann til umsjónar meö höfn- inni og skyldi hann hafa í árslaun 3000 kr. Fyrsta áriö eiga þó launin aö eins aö vera 2000 kr. Stúdentar 1915. í þetta sinn uröu stúdentarnir, sem útskrifuöust frá Mentaskólanum, 31, karlar og kon- ur, og hafa fengiö þessar einkunnir: Áslaug Zoega 66 stig, Ásta Jóns- dóttir 70 st., Björn Þórólfsson 73 st., Daníel Fjeldsted 61 st., Eggert Ein- arsson 67 st., Friögeir Björnsson 59 st., Friörika Halldórsdóttir 57 st., Guðni Hjörleifsson 66 st., Gunnar Halldórsson 57 st., Halldór Kolbeins 68 st., Helgi Tómásson 70 st., Ingi- björg Guðmundsdóttir 69 st., Jón Árnason 60 st., Jón Kjartansson 54 st., Jón Ólafsson 65 st., Katrin Thor- oddsen 59 st., Kjartan Ólafsson 57 st., Kristín Bjarnadóttir 72 st., Krist- inn Ármannsson 81 st., Lárus Arn- órsson 70 st., Níels Pálsson 85 st., Ólafía Einarsdóttir 61 st., Óli Ketils- son 72 st., Páll Jónsson 65 st., Sig- urður Leví 58 st., Sveinn Ögmunds- son 57 st., Þórunn Hafstein 67 st., Þorvaldur Árnason 56 st. Utanskóla: Benedikt Árnason 52 sí., Freysteinn Gunnarsson 65 st., Trausti Ólafsson 71 st. Níels Pálsson hefur fengiö hæsta einkunn, sem gefist hefur frá því aö nýja reglugerðin komst á. Hjeraðssamkoma var haldin á Breiöumýri í Bárðardal 19. júní og voru þar um 1600 manns. Þar voru ræðuhöld, íþróttakappleikar, iönaðar- sýning, söngur og hornablástur, og er látið vel af samkomunni. Flutningabíll á í sumar að fara um akbrautina milli Húsavíkur og Breiðumýrar. Rafmagnsstöð til lýsingar kvaö eiga aö koma upp í sumar á Húsavík. Ensk herskip segja Akureyrar- blöðin að sjest hafi í vor norður hjá Grímsey. Tíðin hefur stööugt verið hin besta hjer sunnanlands. Leiðrjetting. í 29. tbl. Lögrjettu þ. á., þar sem getið er um Þjóðfje- lagsfræði Einars Arnórssonar, sem Ungmennafjelag íslands hefur gefið út, er sagt að bókin muni ekki verða seld sjerstaklega, en þetta er misskilningur. Þjóðfjelagsfræðin fæst í flestum bókaverslunum í Reykjavík og nokk- urum úti um land, en þar sem upp- lagið er lítið, fram yfir það, sem gengur til kaupenda „Skinfaxa", þá er vissara að draga ekki að fá sjer bókina, áður en hún verður uppseld. Leiðrjetting. I grein minni í „Lög- rjettu“ 22. nr. þ. á., „Deyr svo marg- ur að einginn bjargar", hef jeg tek- ið eftir tveimur villum. Hin fyrri er prentvilla, eða ef til vill ritvilla hjá mjer, þar sem sagt er að til orða hafi komið á alþingi 1907 að læknir yrði settur í Hrútafjörð, en það er ekki rjett, þvi það var 1897. Hin villan stafar af ógætni minni, það að hr. landlæknir G. Björnsson segir i 6. nr. Lögr. þ. á. að þeir, sem hefðu mælst til að hann semdi lækn- ingabók, vildu spara sjer sem oftast ómak og fyrirhöfn er ekki rjett, en á að vera ómak og k o s t n a ð, að leita læknis, og því á að falla burt í grein minni, að hann nefni ekki peningaútgjöld. Kjörseyri 10. júní 1915- Finnur Jónsson. Þing'iii álafundir. Hjer í Reykjavik var þingmála- fundur haldinn síðastl. sunnudag, 4. þ. m., í Barnaskólaportinu, og var úann fjölsóttur. Magnús Einarsson dýralæknir var fundarstjóri. Fyrst töluðu þingmenn bæjarins, Jón Magnússon bæjarfógeti og Sveinn Björnsson lögmaöur, en síðan Sig. Eggerz fyrv. ráðherra, E. Arnórsson ráðherra, Bjarni frá Vogi alþm. og Gísli Sveinsson lögmaður. Urðu um- ræður snarpar um stjórnarskrár- staðfestinguna, einkum milli S. E. og E. A., en önnur mál voru ekki borin fram. Þrjár tillögur komu fram, og var fyrst borin upp til atkv. svo- hljóðandi tillaga frá B. J. frá Vogi: „Fundurinn skorar á alþingi að lýsa yfir því, að : ef í staðfestingar- skilyrðum stjórnarskrárinnar 19. júní þ. á. sje vikið frá skilyrðum alþingis 1914, eða ef nokkur maður nokkru sinni vilji halda því fram, að Dönum hafi með þeim verið gef- ið nokkurt fyrirheit eða blandað þar inn í sem þriðja málsaðila, þá sje það að óvilja alþingis og geti eigi skuld- bundið ísland.“ J. M. gerði skop að tillögunni, S. E. var óánægður með hana og Sv. B. rjeð flutningsmanni til að taka hana aftur. En hann vildi fá hana borna upp og var hún svo feld með mjög miklum atkv.mun, hafði fengið, að sögn, eitthvað 30—40 atkv., en mörg hundruð manns voru þarna saman komin. Þá var borin upp svohljóðandi til- laga frá G. Sv.: „Fundurinn lýsir þakklæti sínu til ráðherra Einars Arnórssonar og þeirra manna, sem bjargað hafa stjórnarskrármálinu og fánamálinu.“ Þessi tillaga var samþykt með mjög miklum atkvæðamun, að eins örfá atkvæði á móti, eitthvað 10—20, að því er þeir segja, sem atkv. töldu. En með þeirri samþykt taldi fund- arstjóri fallna till., sem fram hafði komið frá S. E., svohljóðandi: „Fundurinn vítir meðferð ráðherra á stjórnarskrármálinu og mótmælir skilmálunum fyrir staðfestingunni.“ Ósigur þeirra, sem andæft hafa stj.skr.staðfestingunni, var þarna svo fullkominn, sem fremst mátti verða. Auðvitað greiddu Heimastjórnar- n.enn till. G. Sv. atkv. og svo Sjálf- stæðismenn þeir, sem þrímenning- unum fylgja. En „ef“-a-tillaga B. J. fór alveg með hina, svo að þeir, eins og rjett var af þeim, geymdu hend- urnar í vösunum. Þeir munu hafa hugsað sem svo, að úr því að jafn- vel B. J. væri farinn að efast um málstað þeirra, þá væri rjettara að athuga málið betur áður en þeir greiddu atkv., og væntanlega eru þeir nú ánægðir, og sannfærðir um, að þeir hafi gert rjett í þessu. I Hafnarfirði var þingmálafundur haldinn siðastl. sunnudagskvöld. Þangað fóru nokkrir menn hjeðan úr Reykjavík, þar á meðal ráðherra og Sveinn Björnsson alþm. og fengu þeir málfrelsi á fundinum. Þótti auð- sjeð, að þingmenn kjördæmisins vildu sem mest draga á langinn umræður um stjórnarskr.staðfestinguna, því fvrst voru hjeraðsmálin tekin fyrir. Síðan urðu þó miklar umræður um stjórnarskrármálið og stóðu fram yf- ir miðnætti. En er ekki virtist annað eftir en atkvæðagreiðslan, þá fundu þeir upp á því, að fresta fundinum tii næsta kvölds. Urðu þá enn um- ræður um málið, og töluðu ýmsir, auk þingmannanna, en að lokum var samþykt með 30 atkv. gegn 13 svo- hljóðandi till. frá Sigf. Bergmann kaupmanni: „Um leið og fundurinn lýsir fullu trausti á þingmönnum kjördæmisins, felur hann þeim að ráða fram úr því, fyrir kjördæmisins hönd, hvernig al- þing skuli taka staðfestingarskilyrði stjórnarskrárinnaf.“ Þessa till. virðist eðlilegast að skilja svo sem kjósendurnir ætli þingmönn- um kjördæmisins að fallast á skoð- anir mótstöðumanna sinna þegar á al- þing korni, þótt þeir ekki gerðu það á fundinum. — Þó var feld með 27 atkv. gegn 19 svohljóðandi tillaga frá Þórði Edilonssyni lækni: „Með því að fundurinn lítur svo á, að staðfesting stjórnarskrárinnar sje fengin að óskertum landsrjettindum vorum, lýsir hann ánægju sinni yfir staðfestingunni, og sömuleiðis yfir löggilding fánans.“ Á Akranesi var þingmálafundur haldinn á mánudaginn og töluðu þeir þar m. a. ráðherra E. Arnórsson og fyrv. ráðherra Sig. Eggerz. Samþykt var með 21 atkv. gegn 4 traustsyfir- lýsing til ráðherra og þökk til hans og annara þeirra, sem unnið hefðu að þvi að bjarga stjórnarskrármálinu. Einnig voru þeir Ingólfs-þingmenn- irnir harðlega víttir í fundarsamþykt- inni fyrir birtingu þrímenninga-til- boðanna. Þingm. kjördæmisins, Hj. Snorras., sýndi sig ekki á fundinum. Stórstúkuþingid var haldið hjer í Reykjavík dagana 26. til 30. júní s. k. Það hófst með guðsþjónustu í Fríkirkjunni kl. 12 á hád. og prjedikaði sjera Ólafur frí- kirkjuprestur Ólafsson vel og sköru- lega. Gengu framkvæmdarnefnd Stórstúkunnar, embættismenn henn- ar, fulltrúar og aðrir. Templarar í skrúðgöngu til kirkjunnar og var hinn nýi íslenski fáni borinn fyrir fylkingunni. Kl. 134 var svo þingið, sett að fjölda Templara viðstöddum. 26 full- trúar mættu á þinginu; slæmar og óreglulegar skipaferðir hindruðu menn frá að mæta. Æðsti maður Reglunnar um allan heim, Edv. Wavrinsky rikisþingmað- ur í stokkhólmi, ætlaði að mæta á þinginu, en gat það ekki sökum veik- inda. — Hann sendi Stórstúkunni brjef og stóra mynd af sjer. Þessir voru kosnir í stjórn Regl- unnar hjer á landi til næstu tveggja ára: Stór-Templar Guðm. Guð- mundsson, skáld; Stór-Kanslari Þorv. Þorvarðsson, prentsmiðjustj.; Stór-Vara-Templar Ottó N. Þorláks- son, skipstjóri; Stór-Gæslum. Ung- Templara Sigurjón Jónsson, málari, Stór-Gæslumaður kosninga Sigurður Eiríksson, regluboði;, Stór-Ritari Jón Árnason, prentari; Stór-Gjald- keri Jóh. Ögm. Oddson kaupm.; Stór- Kapilán Pjetur Halldórsson, bóksali og Fyrv. Stór-Templar Indriði Ein- arsson, skrifstofustjóri. Umboðsmað- ur Alþjóða-Æðsta-Templars var kjörinn Guðm. landlæknir Björnsson. Fulltrúi til að mæta á alþjóðaþing- inu í Minneapolis, Minnisota 1917, var kosinn Einar Hjörleifsson skáld og varafulltrúi Indriði Einarsson. Ýms mál voruræd d á þinginu og þeim ráðið til lykta: Úrskurðaðir reikningar embættismanna fyrir síð- astl. tímabil, feldir úrskurðir um á- frýjunarmál, rædd unglingareglumál, hvernig því starfi skuli hagað fram- vegis, rætt um bannlögin og fram- kvæmd þeirra, um siðbækur Regl- unnar, gerðar fjárhagsáætlanir fyrir næsta tímabil. o. fl. Þing þetta var fremur rólegt og hafði að ýmsu leyti frábrugðinn blæ hinum þingunum, sem áður hafa ver- ið haldin. Eins og venja er til, þa hjeldu Templarar hjer samsæti, í sambandi við stórstúkuþingið, og tóku nálægt 50 manns þátt í því. Voru þar haldn- ar 20 ræður bæði af körlum og kon- um og var þar sungið mikið og vel. Fyrir minni íslands talaði Einar skáld Hjörleifsson, minni Reglunnar Þórður J. Thoroddsen, minni bann- laganna Guðm. landlæknir Björnsson, minni alþjóða Æ.-T. Indriði Einars- son, minni kvenna Brynl. Tobíasson, minni karla Þórdís ljósmóðir Símon- ardóttir á Eyrarbakka, og svo hjelt Þorst. Jónsson á Grund á Akranesi eina af skemtiræðum sínum og kom öllum til að hlæja. Samsætið var hið skemtilegasta. Næsta þing, 1917, verður haldið í Hafnarfirði. Adalfundur Sláturfjelags Suðurlands 1915. var 28.—30. júní Mættir voru allir stjórnarmenn (nema Hj. Snorrason) og framkvæmdarnefnd, auk þess endurskoð. Egg. Ben., eftirlitsmaður Lár. Helg. og Pjetur Þórðarson hreppstj. i Hjörsey, varastjórnarm. fyrir Mýras. (sem einn deildarstjóra sýnir þann áhuga, að sækja og sitja reglulega alla aðalfundi fjel. og taka þátt í störfum þeirra). Fyrir Borg- arfj.s. sótti fundinn varastjórnarm. Jón Hannesson í Deildartungu. 1. Reikningar ársins 1914 lesnir, skýrðir, ræddir og síðan samþ. í e. hl. 2. Deildarstjórafundargerðir lesnar og tillögur út af þeim teknar til um- ræðu. 3. Frkvn. hafði, þá er Þorkell heit- inn Hreinsson dó af byltu við bygg- ing kælihússins, sent ekkju hans 100 kr. frá fjelaginu. Nú var samþ. eftir tilllögu frá Þjórsárbrúarf. að fjel. sendi henni aðrar 100 kr. sem hlut- tekningarvott. 4. Eftir till. sama fundar samþ. að slátur sje selt með garnmör að eins. 5. Eftir till. Borgarnessfundar samþ. lítilsháttar breyting á flokkun dilkakjöts. 6. Slátrun í Vík leyfð með sömu kjörum, nema hvað felt var burt skilyrði um að læknisstimplunin sje borguð af Skaftfellingum einum. Ilún verður nú á fjel. kostnað. 7. Samþ. var að formaður, í sam- 204 201 „svo að jeg hygg, að storminum sloti kl. 12.“ —• „Það gleður mig, herra, því við höfum fullnóg af honum,“ svaraði 1. laut- inantinn. — „Sjáið þjer Drayd?“ — „Nei, herra, það er aftur orðið svo þyknmikið á hljeborða; vjer höfum ekki sjeð hana síðustu tíu mínúturnar.“ — „Guði sje lof fyrir það,“ hugsaði jeg, „því að þeir munu aldrei sjá hana aftur. Hvað var dýpið mik- ið síðast?“ — „Fjórtán faðmar, herra!“— „Jeg hygg, að vjer komumst fram hjá taglinu á ströndinni á miklu minna dýpi,“ mælti jeg, „en þegar vjer erum lausir við það, höfum vjer nægilegt svigrúm.“ Þar eð kafteinninn er nokkurs konar goðasvar á hættunnar stundu, hentu skip- verjar hvert orð, er jeg talaði; af því sem þeir fengu út úr orðum mínum, hugðu þeir, að þeir væru ekki í stórkostlegri hættu. En eigi að síður gekk sjófræðingur- inn eftir þiljunum, eins og í leiðslu út af hinni yfirvofandi hættu. Það var eigi að undra, aumingja maðurinn. Það er eigi að búast við því, að sá, sem á konu og börn, sem treysta á forsjá hans, geti án sárra tilfinninga hugsað til viðskilnaðarins. Sjó- maður ætti aldrei að giftast, en geri hann það, ætt hjónaband hans, til hags fyrir herþjónustuna, að vera ógæfusamlegt, því það gerði hann áhyggjuminni. Hvað hugs- anir mínar snerti, er hægt að skýra frá þeim í fám orðum: Þær hnigu allar að hjegómlegleika mannlegra óska. Hvort sem jeg hefði hætt við hið eina mark og mið, er jeg hafði fyrir augum, hver sem gæfa mín hefði orðið, hefði jeg lifað, hvort sem jeg hefði gifst Minnie á kom- andi tíma, eða hvað sem hefði fyrir mig komið, hvort heldur gott eða ilt, eða hvað annað, gæti drottinn breytt þessu á svip- stundu. í öðrum heimi ætti hvorki gifting nje hjónabönd sjer stað; þar væri auður, metorð, ættgöfgi og alt annað jarðneskt einskis virði; alt sem jeg hefði að gera, væri því að deyja serr maður og gera skyldu mína til hins ýtrasta, treystandi miskunsömum guði að fyrirgefa mjer syndir mínar og yfirsjónir; með þessari heimspeki var jeg búinn við því, er verða vildi. Um nónbilið birti aftur upp á hljeborða, en Dryad var ekki sýnileg og var mjer sagt frá því; jeg vissi alt of vel um afdrif hennar, því að það voru því nær þrjár stundir liðnar síðan vjer höfðum sjeð hana; hún hafði nægan tima til að vera komin í land og brotna í spón. Eigi að síður beindi jeg sjónpípu minni i þá átt og sagði kaldur: „Jeg hygg, að hún hafi komist fyrir taglið og komist af; það var hið besta, sem hún gat gert.“ Þvi næst spurði jeg sjófræðinginn, hvort hann hefði dregið upp sjóúrið og fór svo ofan i ká- etu. Jeg var ekki búinn að aðgæta sjóupp- dráttinn mínútu lengur, er varðoffíserinn kom ofan og sagði, að oss hefði borið inn á 12 faðma dýpi. „Það er gott, herra Hawkins; vjer kom- umst bráðum grynnra; látið mig vita, ef einhver breyting verður á dýpinu.“ Þegar hann hafði lokað dyrunum, fór jeg að reikna út, hvenær fallið mundi breytast móti oss, og fann jeg að það hafði breytst fyrir stundu, að minsta kosti; þess fyr er það afstaðið, hugsaði jeg, og kast- aði frá mjer ritblýinu. „Herra Kross óskar að tala við yður, herra,“ sagði vörðurinn og opnaði káetu- dyrnar. — „Segið honum að koma inn,“ svaraði jeg. „Hvað er á höndum, Kross?“ — -Jeg var að tala um það við I. lautin- antinn að setja upp nýtt stag, því fram- stagið er orðið töluvert núið, það er að segja, ef þjer álitið, að það komi að nokkru haldi ?“ — „Komi að haldi; hvað meinið þjer með því ?“ — „Þó enginn geti sjeð það á yður, herra, líður ekki langt um, ef marka skal svipinn á sjófræöingnum, og er hann engin skræfa, að vjer komumst allir inn í annan heim. Jeg hef svo oft slagað ur mig vissulega, kaft. Green, því jeg ber enga óvild til majórsins og breytni hans hefur verið mjer óskiljanleg." Eftir að hann hafði spurt um sár mitt og látið í ljósi þá von, að mjer batnaði skjótt, fór kaft. Green burtu, en jeg tók eftir því, að hann gaf ofurstanum engan gaum, nema kastaði kaldri kveðju á hann, um leið og hann fór út, og furðaði mig það þá, að ofursti Delmar kvaðst álíta það ráðlegt fyrir sig, er hann hugsaði sig betur um, að fara burtu um tíma. „Jeg felst á það með yður,“ svaraði jeg, þvi jeg vildi verða laus við hann; það greip mig svo undarlega, að hann skyldi þegar fara að tala um burtför, er majór Stapleton var lifandi og von var um, að honum batnaði, þar sem hann hafði áður neitað að fara, er hann hjelt hann dauð- an. Jeg varð þvi glaður mjög, er hann einni eða tveim stundum síðar kvaddi og hjelt til Lundúna, eftir því sem hann sagði. 38. kapítuli. Mjer batnaði skjótt, þvi eftir tæpan hálfan mánuð gat jeg setið i sófanum. Fregátan var albúin, bæði að reiða, vatni og vistum og sögð ferðbúin eftir mánuð, þvi að oss vantaði enn um 40 menn. Jeg sá oftlega kaft. Green, þvi hann heimsótti mig að kalla daglega, og einu sinni, þegar við áttum tal um hólmgönguna, gerði jeg hina sömu athugasemd og áður, er Delmar ofursti beitti hrakyrðunum yfir likama hr. Stapletons. „Já,“ svaraði kaft. Green, „jeg áleit það skyldu mína að segja honum orð Delmars ofursta. Hann komst í mikla geðs- hræringu og svaraði: „Hinn mesta fant; talaði hann svo? Þá er djöfullinn betri, en þeir, er hann freistar, en eigi að síður er- um við báðir, hvor á annars valdi. Jeg verð fyrst að láta mjer batna og síðan að taka til framkvæmda. Það er einhver leyndar- dómur við þetta; árásin var svo ástæðu- laus,ásetningurinn svo skýlaus. „Hafið þjer nokkra ástæðu til að ætla.að Delmar ofursti sje óvinur yðar, kaft. Keene? Því vissulega virtist hann að gera alt, er hann gat í hólm- stefnunni, mótstöðumanni yðar í hag.“ Jeg hef alls enga ástæðu til að ætla, að hann hafi orsök til að vera óvinur minn, en eigi að síður get jeg ekki annað en haft grun um, að hann sje það af einhverri or- sök, eða mjer óvitanlegri orsök.“ Þegar kaft. Green var farinn, reyndi jeg með öllu móti að ráða þá gátu, hvers vegna ofursti Delmar væri mjer óvinveittur. Jeg vissi vel, að hann var álitinn erfingi hefð- armeynnar Delmar, en þótt hún eftirskildi mjer nokkur þúsund, var það sannarlega ekki næg ástæða til þess, að sækjast eftir lífi mínu. Lávarður Verselý hafði ekekrt eftir að skilja! jeg gat að engri fullnægj- andi ágiskun komist. Þá fór jeg að hugsa um, hvort jeg ætti að skrifa lávarði Ver- sely og skýra honum frá öllu, en jeg rjeð af að gera það ekki. Byrjuninni til hólm- göngunnar hafði verið lýst í blöðunum og hefði hann lesið hana, mundi hann hafa skrifað og spurt um atvikin. Það hafði móðir mín gert og ásetti jeg mjer að svara brjefi hennar, er til þessa hafði legið á borðinu. Jeg sendi eftir skáborðinu mínu, og þegar þjónninn kom með það, hjekk lyklakippan í skránni., Þetta þótti mjðr kynlegt, þar sem jeg hafði lokað þvi, áð- ur en jeg gekk á hólminn við majór Stap- leton og hafði eigi sent eftir þvi síðan. Þjónninn gat ekkert sagt um þetta annað en það, að það hefði verið svona, er hann kom að þvi; þó mintist hann þess, eftir litla stund, að læknirinn hefði beðið um penna og blek, til þess að skrifa lækninga- blað og að ofurstinn hefði tekið lyklana og fært honum hið umbeðna. Þetta var látið gott heita og eigi minst á það framar. Flotaráðið skifti sjer ekkert af því, er fram hafði farið, þó öllum væri það kunnugt. Jeg hafði ekki sett sjálfan mig á sjúkra-

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.