FLE blaðið - 01.01.2010, Side 25

FLE blaðið - 01.01.2010, Side 25
gutla ég aðeins í golfinu eins og fleiri endurskoðendur, þótt árangurinn láti á sér standa" bætir hann við. Ólafur kvæntist um tvítugt, skólasystur sinni frá 7 ára aldri að norðan, Guðrúnu Ólafsdóttur en þau voru líka samferða í Versló. Þau eiga þrjár dætur en engin þeirra hefur fetað í fótspor föður síns í starfsvali. Reyndar vinnur ein þeirra á endurskoðunarstofu um þessar mundir. „Þeim leist ekki á starfið því ég var svo lítið heima. Þá var unnið miklu meira og myrkranna á milli á álagstímum" segir hann og hristir höfuðið. Konan varð því heimavinnandi fyrstu árin eftir að dæturnar fæddust. Skemmtilegustu verkefnin „Mér fannst gaman að vera í hasar og nýjum hlutum" segir Ólafur og hlær við. „Meðal annars vinna við umbreytingar á fyrirtækjum, sameiningu og skiptingu eða hvers konar breytingar sem urðu til þess að bæta reksturinn og efla þau. Fyrsta sameiningin sem ég kom að var á árinu 1961 en þá var lítið um sameiningu fyrirtækja. Sú eftirminnilegasta er sennilega sameining Bæjarútgerðar Reykjavíkur og ísbjarnarins hf sem varð Grandi hf." bætir hann við. Síðan þá var hann mikið við endurskoðun og hlutfallslega mikið í sérverkefnum eins og sameiningu fyrirtækja. Þá vann hann mikið í skattamálum og var meðal annars skattrannsóknarstjóri í 8 ár. Skattamál „Það var dálítið sérstakt að koma í opinbera stofnun en góð reynsla í sjálfu sér" segir hann og rifjar upp að hann hafi mikið unnið að skattamálum fyrir fjármálaráðuneytið, verið ráðgefandi og í nefndum vegna undirbúnings frumvarpa um skattamál og slíkt. „Skattrannsóknarstjóraembættið var erilsamt m.a. vegna ágangs fjölmiðla sem stöðugt leituðu upplýsinga um gang mála, en skattamál og endurskoðunarmál voru mikið í deiglunni á þessum tíma" segir hann hálfafsakandi. Fljótlega eftir að hann hætti hjá skattinum varð hann formaður FLE eða á árunum 1977 - 1979. Svo í kringum 1980 urðu miklar breytingar á skattalöggjöfinni sem hann vann að. Verðbólga hafði verið mikil og þá voru verðbólgumælingar tekin inn í reikningsskil og skattalög í fyrsta sinn auk annarra grundvallarbreytinga á lögum um tekjuskatt og eingarskatt. Svo kom staðgreiðslan og virðisaukaskatturinn nokkrum árum síðar. Ólafur var iðinn við uppfræðslu á þessum tíma, hélt erindi á ráðstefnum bæði hjá endurskoðendum og ýmsum félagasamtökum. Lífið ein tilviljun Árið 1975 stofnaði hann Endurskoðun hf. sem síðar varð KPMG hf. ásamt Guðna Gústafssyni og Flelga V. Jónssyni. „Við höfðum þekkst þrír, Guðni vann með mér hjá Birni og Ara en var kominn með eigin stofu en Helgi var borgarendurskoðandi og hafði ákveðið að hætta svo það varð úr að við ákváðum að stofna fyrirtæki saman" útskýrir hann. Fyrirtækið þróaðist býsna hratt og örugglega en þeir félagar voru heppnir með kúnnahóp. Til þeirra var leitað með stórt verkefni á þess tíma mælikvarða þegar flugfélögin voru sameinuð í Flugleiðum sem varð viðskiptavinur þeirra. „Á þeim tíma máttu endurskoðendur Ólafur Nilsson á fljúgandi ferð. ekki auglýsa, eingöngu setja litla tilkynningu um opnun á endurskoðunarstofum í blöðin. Ég veit ekki af hverju það var, en þá máttu margar stéttir ekki auglýsa. Þá var það fyrst og fremst orðsporið sem skapaði verkefni og það traust sem menn áunnu sér virkaði best á þessum markaði. Menn báru mikla virðingu fyrir hver öðrum og voru ekki að sækja mikið á verkefni annarra á þessum tíma. Þá voru endurskoðunarstofurnar líka að stækka mikið og gátu því tekist á við stærri verkefni sem einyrkjar áttu erfiðara með að sinna" segir hann að lokum. Vel metin og virðuleg stétt „Viðhorf samfélagsins til endurskoðenda á þessum upphafsárum var jákvætt. Þá voru nokkrar stórar stofur sem að stóðu vel metnir og virðulegir menn sem fólk hafði traust á. Þá var lagður grunnur að þessu trausti sem síðan hefur fylgt stéttinni" segir hann hugsi. „Umræðan um endurskoðendur var á þessum tíma ekki í þeim mæli sem hún er í dag. Þá voru ársreikningar ekki lagðir fram opinberlega og stundum ekki heldur á aðalfundum félaganna heldur voru þeir voru aðeins lesnir upp. Ársreikningar þóttu helst til mikil trúnaðarmál á þeim tíma" segir hann og brosir við. „Eftirlit var fyrst og fremst af hálfu skattsins og ekkert fjármálaeftirlit og heldur enginn fjármálamarkaður." Stéttin beitti sér fyrir því að reikningsskil væru gerð meira opinber en áður. „Við sóttum hugmyndir og fyrirmyndir erlendis frá og reyndum að breyta málum hér heima í þá átt sem gerðist á erlendum mörkuðum" segir hann ákafur. Ólafur var lengi formaður reikningsskilanefndar FLE og á þeim tíma sem verðbólgureikningsskilin voru innleidd gaf félagið út heilmikla handbók sem ætluð var félagsmönnum til að ná meira samræmi í gerð reikningsskila hér á landi, en áður hafði verið. Ekki nógu háværir Talið berst að þeim gífurlegu breytingum sem hafa orðið á síðustu áratugum. Vinnubrögðin hafa gjörbreyst og tæknin bæði í reikningshaldi og endurskoðun hefur breyst. Reikningsskil voru almennt ekki birt opinberlega eins og áður segir, þau voru FLE blaðið janúar 2010 *25

x

FLE blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.