Kvásir - 07.04.1908, Blaðsíða 1

Kvásir - 07.04.1908, Blaðsíða 1
. Si hcitir hann er svá vitr, at engi spyrr hann þeira hluta, er eigl kann hann órJausn". (Edda). I. árg. Hafnarfirði, 7. apríl 1908. li blað. l^pphajsord. Hugrökk stúlka, CiT(j>Td Q’lrYlER sjáið þér Kvásir kominn á ný; iLrfafe en hvert hann er jafningi hins, vér látum nú ósagt, og það er af því að þessi er veikara kyns. — Og hvort að af mannviti kafnar hann, mun koma bráðurn í ljós;— en, — sá sem húðflettir heimsku lands, á hvívetna skilið hrós. — Hann varðar1 um sakleysi, frelsi og frægð, og fimlega bregður því hjör mót dáðleysi, leti, lýgi, slægð, sem leynist und falskri spjör. — Þótt ofurefli’ hann etji mót, hann aldrei mun vægja þó; hann biðst ekki griða, nó hræðist hót, en heggur með karlmanns ró. — Úr föðurgarði hann leggur leið, og langar að vinna gagn, og treystir á fylgi hvers dáðrakks drengs, það drjúgum eykur hans magn; hann treystir á göfuga gestrisna menn, og góðsöm og trygglynd fljóð. Hann veit að í mörgum æðum enn er ísienzkt og göfugt blóð! i) Að vaVði um e. h. *«• hálda hlifiíkildi. Fyrir fáum árum síðan, sat Margrót Whitby, dóttir bankavarðar eins í smábæ nokkrum í Ameríku, kvöld eitt og svaf í hægindastól föður sins. Hún var ein heima. Alt i einu hrökk hún upp við hægt fótatak úti fyrir dyrun- um. Þó merkilegt væri, komu henni alls ekki þjófar í hug. Þesskonar fólk hafði ekki gjört vart við' sig í bænum í mörg ár. Hún tók lampann og gekk til dyranna og opnaði þær. í sama bili ruddust tveir grímuklæddir menn móti henni og hás rödd hvæsti í eyru hennar: „Ef þú æmtir eða skræmtir minstu vit- und, ertu dauðans herfang! En gjörir þú eins og við skipum þér, skaltu sleppa“- Margrét var hugrökk stúlka, hún hafði fullkomið vald yfir sjálfri sér, þótt hún findi kalda marghlej7pu við enni sér. Hún svaraði þessvegna: „Sleppið mér einungis, og segið hvað ykk- ur þóknast!" Mennirnir töluðu hljóðlega saman, annar varð síðan eftir hjá henni, en hinn fór inn í næstu stofu, og kom að vörmu spori til baka aftur með lyklaknippi. „Hvaða lyklar eru þetta?" spurði hann stúlkuna í bjóðandi róm. „Lyklar föður míns“, svaraði hun. „Eru þeir að kjallaranum og peningaskáp- unum ? “ „Nei, einn þein-a gengur að kjallaratröpp- unum. Lyklarnir að hinum múruðu hvelf- ingum og peningaskápunum, eru hér ekki“. „Hvar eíu þá þeir lyklar?"

x

Kvásir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvásir
https://timarit.is/publication/192

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.