Nýja dagblaðið - 28.10.1933, Blaðsíða 1

Nýja dagblaðið - 28.10.1933, Blaðsíða 1
I. ár. Reykjavík, laugardaginn 28. október 1933. 1. bl. Óeirdir i Gydmgalandi. Arabar mótmæla innflatningi G-yðinga með allsherjarverkfalli. ÍDAG Sólaruppkoraa kl. 7,59. Sólarlag kl. 16,23. Héflóð árdegis kl. 1,15. ' Háflóð síðdegis kl. 13,45. Veðurspá: Norðan- og norðvestan kaldi, bjartviðri. Ljósatími hjóla og bifreiða 17,15-7,10 Sttfn, skrifstofur o. fL: Landsbókasafnið opið kl. 1-7 og 8-10 pjóðskjalasafnið ....... opið l-ó pjóðminjasafnið lokað. Náttúrugripasafnið lokað. Alþýðubókasafnið .... opið 10-10 Listasafn Einars Jónssonar lokað. Landsbankinn ......... opinn 10-1 Búnaðarbankinn ........ opinn 10-1 Útvegsbankinn ......... opinn 10-1 Útibú Landsbankans á Klappar- stíg .................. opið 2-7 Pósthúsið: Bréfapóstst. opin 9-6 Bögglapóststofan .... opin 10-5 Landsíminn ............. opinn 9-9 Búnaðarfél. Skrifst.t. 10-12 og 1-4 Fiskifél. .. Skrifst.t. 10-12 og IV2-Í Samband íslenzkra Saminnufélaga opið ............... 9-12 og 1-6 Skipaútg. ríkisins opin 9-12 og 1-6 Eimskipafél. íslands .... opið 9-6 Skrifst. bæjarins opnar 9-12 og 1-4 Skrifst. iögreglustj. opin 10-12 og 1-4 Skrifst lögmanns opin 10-12 og 1-4 Skrifst. tollstjóra opin 10-12 og 1-4 Hafnarskrifstofan opiíi 9-12 og 1-6 Skrifstofur ríkisstjórnarinnar opnar 10-12 og 1-4 Lögregluvarðstofan opin allan sól- arhringinn. Heimsóknartiml sjúkrahúsa: Landsspítalinn ............ kl. 3-4 Landakotsspítalinn ............ 3-5 Laugarnesspítali ...... kl. Í2V2-2 Vífilstaðahælið 12^-iy2 og 3%-4i/2 Kleppur .................... kl. 1-5 Næturlæknir: Halldór Stefánsson, Lækjarg. 4, sími 2234. Næturvörður i Lyfjabúðinni Ið- unn og Reykjavíkurapóteki. Samgttngur og póstierðir: Dr. Alexandrine til Leith og Kaup- roannahafnar kl. 8 síðd. Póstbílaferðir til Hafnarfjarðar, Sandgerðis, Grindavikur, Reyni- valla og Vatnsleysu i Biskups- tungum. Skemmtanlr og samkomur: Gamla bíó sýnir í kvöld kl. 9: Maritsa greifafrú, söngleik eftir Emmerich Kalmans. Nýja bíó sýnir í kvöld kl. 9: í nótt eða aldrei. Iðnó: Dansleikur Sjómannafélags- ins kl. 8y%. Aukafundur í bæjarstjóminni kl. 5 í Kaupþingssalnum. — Lög- reglumálin á dagskrá. Dagskrá Útvarpslns: Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,00 End- urtekning frétta. 12,20 Hádegisút- varp. 15,00 Veðurfregnir. 18,45 Barnatími (þuríður Sigurðardótt- ir). 19,10 Veðurfregnir. 19,20 Til- kynningar. Tónleikar. 19,35 Tón- leikar. Orgel-sóló (Eggert Gilfer). 20,00 Klukkusláttur. Fréttir. 20,30 Franskt kvöld. (Franska félagið — AÍliance Fmncaise). — Danslög til kl. 24. London kl. 17,00 27./10. FÚ. Viðsjár hafa undanfarið ver- ið milli Araba og Gyðinga í Palestínu, út af auknum inn- flutningi hinna síðarnefndu þangað, einkum eftir að farið var að þröngva kosti þeirra í ýmsum Miðevrópulöndum. Fyrir nokkuru urðu úr þessu óeirðir í Jerúsalem, og í dag hafa orðið skærur út af því í Jaffa. Arabar þar hófu í dag Nýja dagblaðið frétti seint í gærkvöldi, að Guðmundur Hlíð- dal landsímastjóri væri búinn að segja sig úr stjóm síldar- verksmiðju ríkisins, en þar hefir hann átt sæti síðan í fyrravor. Blaðið hringdi þegar heim til Guðmundar Hlíðdal, til að fá nánari staðfestingu á fregn þessari, ef sönn væri. En hann var ekki heima, og ómögulegt að ná tali af honum. Af því að blaðinu var kunn- ugt um, að formaður verk- smiðjustjómarinnar, Þormóð- ur Eyjólfsson konsúll á Siglu- firði, væri staddur í bænum, var þegar gerð tilraun til að hitta hann að máli, og tókst að ná tali af honum í síma. Já, það er rétt, segir Þor- móður, Eyjólfsson, að Guðm. Olðgleg vinsala á Geithálsi. Nýja dagblaðið hafði í gær- kvöldi tal af Bimi Blöndal löggæzlumanni, sem skýrði frá því, að hann hefði í fyrra- kvöld farið upp að Geithálsi til þess að athuga um hvort ólög- leg vínsala mundi, fara þar fram. Kvaðst Bjöm Blöndal hafa sent sýslumanninum í Hafnarfirði 3 kærur í vor og sumar, þar sem hann hefði óskað eftir, að Sigvaldi Jónas- son á Geithálsi yrði tekinn og yfirheyrður, bæði sökum þess að hann hefði haft veitingahús- ið opið eftir lögákveðinn lok- unartíma og hefði auk þess selt áfengi. Geitháls er sem kunnugt er í lögsagnarum- dæmi sýslumannsins í Gull- bringu- og Kjósarsýslu, og hafði hann nokkmm sinnum reynt að ná tali af Sigvalda, en ekki tekizt, hefði h&nn þvl allsherjarverkfall í mótmæla- skyni gegn innflutningi Gýð- inga, og reyndu að ganga fylktu liði um borgina, þótt lögreglan hefði bannað kröfu- göngur. Sló svo lögreglunni og verkfallsmönnum saman á göt- unum, og skaut lögreglan á múginn, og særðust 100 Ara- bar, en nokkurir féllu í viður- eigninni. Nú er allt orðið kyrrt í borginni aftur. Hlíðdal hefir sagt sig úr verk- smiðjustjóminni. Hann sagði mér það sjálfur í morgun, þeg- ar ég ætlaði að boða hann á fund í stjórninni. Vitið þér um ástæðuna? Ég veit það eitt, segir Þor- móður, að Hlíðdal hefir tvisv- ar áður viljað losna úr verk- smiðjustjórninni, í fyrrahaust og aftur í vor, en lét þó til- leiðast að sitja áfram. Stjóm síldarverksmiðjunnar er samkvæmt lögum frá 1932 skipuð 3 mönnum. Eru þeir skipaðir af atvinnumálaráðu- neytinu. Auk Þormóðs á nú sæti í stjórninni Loftur Bjama- son útgerðarmaður í Hafnar- firði, sem skipaður var í stað Sveins Benediktssonar, eftir deilumar á Siglufirði í fyrra- sumar. gefið Blöndal leyfi til þess að leita hjá Sigvalda. f skýrslu, sem Bjöm Blöndal sendi sýslumanni er það tekið fram, að Sigvaldi Jónasson hafi á tímanum frá 1 maí til 3. ág. tekið út í Áfengisverzluninni 221 flöskur fyrir kr. 1553,00 og í ágúst og september fyrir um kr. 500,00. Úttektin í hvert skipti hefir verið 10-15 flöskur. í gærkvöldi þegar ég kom að Geithálsi, segir Blöndal, voru þar nokkrir bílar fyrir og 11 manns við kaffidrykkju og var þá komið fram yfir lok- unartíma. Á annað hundrað tómar flöskur fundust í kjall- aranum, sem sýna, að allmikið hefir verið drukkið á Geithálsi. Tók ég Sigvalda með mér og lét hann í hegningarhúsið, lýk- ur Blöndal máli sínu. Var Sigvaldi yfirheyrður í gærkvöldi, kvaðst hann hafa keypt vínið fyrir aðra, en neit- aði að gefa upp nöfn þeirra. Var hann síðan úrskurðaður í gæzluvarðhald. Guðmundur Hlíðdal hefir í gær sagt sig úr stjórn síldar- verksmiðju ríkisins. Kosningakæra og réttarhöld í Vestur-Skaftafellsýslu. Viðtal ,við skípaðan setU' dómara, Arnljót Jónsson, lögfræðing. f Vestur-Skaftafellssýslu hef- ir komið fram kæra um kosn- ingakúgun samfara misbeit- ingu á aðstöðu opinbers sýslun- armanns í sambandi við alþing- iskosningarnar 16. júlí sl. Setu- dómari var skipaður til að framkvæma rannsókn út af kæru þessari, og hafa réttar- höld staðið yfir þar eystra undanfarið. Tíðindamaður Nýja dag- blaðsins hafði kl. að ganga 4 í gær tal af Arnljóti Jónssyni lögfræðingi, sem er rannsókn- ardómari í málinu og er ný- kominn að austan. Fer við- talið hér á eftir: Hvenær kom kæran fram? 7. ágúst s. 1. minnir mig, svarar rannsóknardómarinn. Hver er kærandi og hver er kærður? Kærandi er Magnús Jóns- son í Skagnesi í Mýrdal, en kærður er Jón Brynjólfsson verkstjóri í Vík. Hversvegna var setudómari skipaður? Eftir ósk héraðsdómarans eins og venjlegt er. Hvenær byrjuðu réttarhöld- in, og hve lengi stóðu þau, og hvar? Réttarhöldin hófust 12. þ. m. og stóðu til 18. Þau fóru fram í Vík í Mýrdal og í Litla Hvammi. Hversu margir voru yfir- heyrðir? 12 alls. Var búið að taka málið fyrir áður en þér voruð skipaður? Já, það hafði verið tekið fyr- ir í rétti einu sinni af hinum reglulega héraðsdómara. Á hvaða grein hegningarlag- anna er kæran byggð? Á 114 gr. Hvemig hljóðar sú grein? Rannsóknardómarinn flettir upp í hegningarlögunum, og bendir á greinina. Hún hljóðar svo: „Raski nokkur kosningafreLsi manna með ofbeldi eða hótun- um um ofbeldi, annaðhvort á þann hátt að rneina manni að neyta kosningarréttar síns til Alþingis eða neyða mann til að greiða atkvæði svo eða svo, þá er kosningar fara fram til Al- þingis eða kaupi atkvæði manns, þá varðar það fang- elsi“. Hvað líður rannsókninni nú? Hefir málshöfðun verið ákveð- in? Rannsókninni er lokið, og ég er að láta taka „akt“ af mál- inu til að senda dómsmálaráðu- neytinu. Ráðuneytið ákveður eins og venjulega, hvort mál skuh höfða eða. ekki. Hafið þér enn með máhð að gera? Já. Eru fleiri upplýsingar í sam- bandi við málið? Frá kærðum og héraðsdóm- aranum komu fram kærur á hendur kæranda. Hvernig haldið þér, að máhð muni fara? Um það get ég ekkert látið uppi að svo stöddu. Voruð það annars ekki þér, sem rannsökuðuð Höskuldar- máhn í vetur? Jú, ég rannsakaði það mál. Er búið að dæma í því? Nei, ég veik sæti í málinu. Fleiri upplýsingar höfum vér ekki fengið hjá rannsókn- ardómaranum, en vér höfum gert ráðstafanir til að fá af- rit af kæru Magnúsar Jóns- sonar og fleiri skjölum, sem þetta mál snerta, og munum geta gefið lesendum kost á, að kynnast því nánar nú á næst- unni. Héraðsdómari í Vestur- Skaptafellssýslu er eins og kunnugt er Gísli Sveinsson sýslum., frambjóðandi Sjálf- stæðisflokksins í sýslunni á s. 1. vori. Ritskoðun í Austurrikí. Stjórnin bannar sölu á þýzkum blödum. Berlín kl. 11,45 27./10. FÚ. Skrifstofa ríkiskanslarans í Wien hefir gefið út hsta yfir 16 þýzk blöð, sem bönnuð hafa verið í Austurríki til eins árs, frá 25. október að telja. Meðal þessara blaða eru Simplisissi- mus, Miinchener IUustrierte og Acht Uhr Abendblatt. Er 2000 shillinga sekt, eða allt að þriggja mánaða fangelsi við því lagt að þessu blöð séu seld í Austurríki,

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.