Bæjarpósturinn - 25.07.1924, Blaðsíða 1
Fréttir frá
Hæni
BÆJARPOSTURINN
ÚTGEFAKDI: SIG. ARHGRÍHSSON
| Verð 10 au.
eintakið
1. árg.
Seyðisfirði, 25. júlí 1924.
1. tbl.
Bæjarbúar.
Altaf er eitthvað að gerast í
heiminum er í frásögur þykir fær-
andi, eða snertir oss beinlínis að
meira eða minna leyti, eða menn
annarsvegar þyrstir að heyra, þó
að óviðkomandi sé beinlínis.
Síðan að Fréttastofa Blaðamanna-
félags íslands í Rvík komst á lagg-
irnar, er ætíð meira um slíkar
fréttir, og eru enda ábyggilegri.
Fréttirnar vilja menn auðvitað
geta fengið sem nýjastar, og með
Bæjarpóstinum er reynt að koma
því til leiðar.
Hann flytur fréttirnar sem glæ-
nýjastar, og einnig smá auglýsing-
ar, sem þörf kann að þykja að
birta milli útkomudaga Hœnis.
Verðið getur ekki minna verið
en 10 aura, ef hugsanlegt er, að
útgáfan eigi að geta borið sig, því
sjálf skeytin, auk prentunar, kosta
all-mikíð, en sem velviljaðir menn
hafa styrkt hingað til, frá því um
þingtíma í vetur, og þakkast hér
með fyrir.
Bœjarpósturinn mun koma út
sem oftast annanhvern dag, fyrst
um sinn.
í von um að það megi takast,
fer hann nú á stjá í fyrsta sinn
og býður góöan dag. Útg.
Símfregnir.
Rvík 18/t. FB.
Lundúnafundurinn.
MacDonald setti Li’.ndúnafund-
inn með ræðu. Taldi hann nauð-
synlegt, ef tillögur sérfræðinga-
nefndarinnar yröu samþyktar, að
séð yrði um, að þær væru fram-
kvæmdar að fullu. Brýndi hann
fyrir fundinum, að taka málið frá
íjárhagslegu en ekki pólitisku
sjónarmiði, og sagði að Þjóðverj-
ar gætu ekki fengu skaðabótalán
sitt fyr cn lánveitendur yrðu þess
fullvissir, að trygging væri fyrir
greiðslunni, og sú trygging feng-
ist aðeins með fullu samkomulagi
fundarins. Hann lagði einnig til,
að innbyrðisskuldir bandamanna
yrðu ekki ræddar á fundinum.
Vatnsflöö f Kfna.
Afskaplegt manntjón hefir orð-
ið af vatnsflóði í Kína. Hefir heill
bær með 75000 íbúum sópastburtu.
Enskur togari, Earl Kitchener,
tekinn í landhelgi við Vestmann-
eyjar í gær, fullur af fiski.
Síldarafli togara góður.
Rvík lð/7. FB.
Gull úr kvikasilfrí.
Þýzkum prófessor, Miethe, hefir