Skyndisölutíðindi - 29.08.1934, Blaðsíða 1
Ritstjórn oa útg.
í Haraldarbúð
Afgreiðsla
í Haraldarbúð
Sími 1340
Reykjavík, miðvikudaginn 29. ógúst 1934
Sími 1340
1. t b
3kyndisölur.
Orðið skyndisala er tiltölulega ungt í íslensku máli. Það var
fyrst notað í auglýsingu frá versl. Haralds Árnasonar í Reykja-
vík, en prófessor Guðmundur Finnbogason mun hafa átt uppá-
stunguna að því, að nota það í staðinn fyrir orðið útsala, sem
er bœði leiðinlegra og óskýrara.
Samkvœmt íslenskum lögum er nú aðeins leyfilegt að halda
skyndisölur vissa tíma ársins, eða frá janúarbyrjun og fram í
miðjan mars og einnig frá júlíbyrjun og til 5. september.
Skyndisölutíðindi vilja gjarnan flytja almenningi fréttir af sem
flestum skyndisölum, en í þessu eintaki munum vér þó sérstak-
lega skýra frá hinni merku skyndisölu sem hefst í fyrra-
málið — fimtudaginn 30. ágúst — í Haraldarbúð.
Skyndisalan mun standa yfir til 5. september þ. á., og^er
öllum lesendum vorum ráðlagt að nota sér nú vel þau fjöl-
mörgu tœkifœri sem þar munu gefast til að gera sannarleg
kjarakaup á nytsamlegum varningi.
Austurstrœti 22 I lorolclQrbuð Reykjavik
Blaðið hefir sannfrétt, að skyndisalan sem hefst í fyrra-
málið hjá Haraidi, verði alveg sérlega fjölbreytt og að
mýmörg tœkifœri verði þar til að gera reifarakaup.
Auk þess sem það mun ákveðið, að afsláttur sé gefinn
af öllum vörum í Haraldarbúð, þá verða margskonar vöru-
tegundir seldar fyrir alt að hálfvirði og aðrar með svo stór-
feldum fríðindum að slikt er fáheyrt.
Til að skýra lesendum sem gleggst frá skyndisölunni, þá œtl-
ar blaðið að skýra nánar frá henni á nœstu 3 síðum og
birta nokkrar myndir til frekari skýringar.