Fréttabréf miðnefndar Samtaka herstöðvaandstæðinga - 01.03.1977, Blaðsíða 1
SAMTÖK HERSTÖÐVAANDSTÆÐINGA
Til starfs,- og svæöahópa.
Miönefnd hefur ákveöið aö beita sér fyrir baráttusamkomu í
-íavik 30. mars n.k. til aö minnast inngöngu Islands í
Atlantshafsbandalagið og vekja athygli á baráttumálum okkar.
Undirbuningsnefnd er aö h^fja störfi Hugmyndir um dagskhárl ' _
á þessari samkomu eru þegriar mep þökkurii. Þegar nær henni dregur
veröur leitað til hverfahöpa i Reykjavxk og nágrenni eftir
aöstoð við að tryggja glæsilega aðsóknl
Þá hefur miðnefnd ákveðið að efna til ráðstefnu um erlent fjár~
magn og s.tóriðjuframkvæmdir á Islandi, Þar yrðu helstu þættir
þessara mála reifaðir i framsöguerindum og tengdir við herstöðva-’
máliö og önnur sjálfstæðisraál þjóðarinnar. Undirbúningsnefnd
hefur verið kosin og er miðað við að ráðstefnan verði haldin í
Reykjavík 12. mars. Mikilvægt er að þeir sem vilja taka þátt i
ráðstefnunni láti skrifstofu okkar vita sem fyrst. Nánar veröur
skýrt frá efni og skipulagi ráðstefnunnar siðar.
Akveöið hefur verið að gefa út vandað tölublað af Dagfara i
stóru upplagi 30. mars. Ritnefnd er að hefja störf og eru féla^ar
hvattir til aö senda skrifstofu samtakanna efni og verður þaö
birt eftir þvi sem rúm leyfir.
Aliveðið hefur verið að beina þvi til allra starfshópa aö þeir
taki sér fyrir hendur á næstu vikum að endurbæta spjaldskrár
samtakanna. Nauðsynlegt er að fara vandlega yfir þær spjaldskrár
sem til eru og leiðrétta villur sem þar kunna að vera. Til þess
þarf að hafa samband við alla þá sem ekld er full vissa um, hvort
þeir búi á sama stað og greint er frá i spjaldskrá, hvort um börn
kunni aö vera að ræða (fáein dæmi frá Keflavikurgöngu) og hvort
o’dii sé vist að viðkomandi vilji hafa nafn sitt i skránni. I
annan stað er mikilvægt að hverfahóparnir reyni að fjölga félögum
hvor á sinu svæði með þvi að snúa sér til fólks sem liklegt er að
vilji vera með.
Þá minnum við á ritaskrána sem áður hefur veriö send út, Meira
efnl, sem að gagni getur komið i námsstarfi er i undirbúningio
Loks hvetur miðnefnd hópana til að hafa samband við skrifstofu
sajntakanna og koma á framfæri hugrayndum og gagnrýni.
Meö baráttukveðjum
Miðnefnd.