Framsókn : bændablað - samvinnublað - 22.04.1933, Blaðsíða 1

Framsókn : bændablað - samvinnublað - 22.04.1933, Blaðsíða 1
Pylgt úr hlaði. Stjórnmálabaráttan á að vera háð um það, hvernig eigi að koma til framkvæmdar þeim málum, sem fyrir liggja á hverjum thna. Hún á jafnan að heyjast málefnanna vegna sjálfra. Hún á ekki að heyjast um menn, lieldur málefni. Það er margra manna mál, að nú um hríð hafi um of ver- ið að því starfað, að glepja þjóðinni sýn um þetta. 1 stað þess að snúa sér að lausn vandamálanna króka- laust, málanna vegna sjálfra, nauðsynja alþjóðar vegna, framtíðarinnar vegna, — þá er oft og tíðum vart hægt að þver- fóta á vígvelli stjórnmálanna fyrir mögnuðum afturgöngum. Áður en komizt verður að mál- unum sjálfum, verða á vegin- um eftirhreitur gamalla mála, löngu afgreiddra, sem oft og tíðum standa ekki í hinu minnsta sambandi við lausn þeirra mála, sem nú verður að leysa þ j óðarheildarinnar vegna. Gamlir árekstrar um alit ann- að en nú er uppi, eru gerðir að aðalatriði til að hindra samstarf að því, sem nútíminn krefst. Það er víst, að landsmála- blöðin hafa gert allt of mikið að því, að blása að kolum vær- inga frá aldauðum málum, sem ekki eiga að hafa hin allra minnstu álirif á það t. d. hvern- ig nú verða leyst kreppumál landbúnaðarins. Er það mikill misskilningur mn það, hvert sé hlutverk blaðanna, er þau láta forna drauga og uppvakn- inga villa fólkinu sýn og hafa áhrif á dómgreind þess. Það eru að mörgu ný verk- efni, sem stjórnmálamennirn- ir íslenzku eiga nú að leysa. Þau eru svo vandasöm og lausn þeirra verður svo afleiðinga- rik, að það er ótvíræð skylda blaðanna, að snúast við þessum verkefnum, málefnanna vegna sjálfra, og miða allt við það, að leiða þau til sigurs, — en láta hitt ógert, að bregða um höfuð almennings þoku, sem þyrlast upp af gömlum vígum. Þetta blað, sem nú hefur göngu, á að taka á verkefnun- um, sem nú liggja svo fjölmörg fyrir, eingöngu þeirra vegna sjálfra, eingöngu með það fyr- ir augum, að bera fram til sig- urs þá Iausn málanna, sem far- sælust er talin. Það er margra manna mál, að nú um hríð hafi eigi verið haldið á málstað landbúnað- arins og bændafélaganna, svo sem æskilegast hefði verið. Ganga nú þau tímamót yfir íslenzkan landbúnað, að þess er meiri þörf en nokkuru sinni fyrr, að vel sé haldið á málstað. Á undan er gengin hin mesta framkvæmdaöld. Hefir meira fjármagni verið beint til land- búnaðarins,en nokkurum hafði til hugar komið fyrir fáum ár- um. En í kjölfar þessara miklu og dýru framkvæmda siglir kreppan. Undirstöðu atvinnu- vegarins er að mjög miklu leyti raskað með hinu gífur- lega verðfalli afurðanna. Það er ómögulegt fyrir bændur, að láta atvinnuvegina bera vaxta- byrði framkvæmdaáranna. Blasir nú við hið tvíþætta verkefni: Annarsvegar þarf að gera upp sakirnar um skuldabyrði framkvæmdaáranna; gera skil um skuldirnar, eftir því sem efni standa til, og gera þær til muna léttbærari, — bæði fyr- ir einstaklinginn og bændafé- lögin. Hefir „bændanefndin“ unnið að þvi undanfarið, Hitt verkefnið er enn þýð- ingarmeira, því að það veit að framtíðinni: að gera hinn ís- lenzka landbúnað miklu fjöl- breytilegri og öruggari að bera sig og minna liáðan verðlags- sveiflunum í umheiminum, með því að hann fullnægi bet- ur en áður eigin þörfum og al- þjóðar. Voru stigin spor á hinu ný- afstaðna Búnaðarþingi, til þess að hraða framkvæmdum um þetta síðarnefnda atriði. Þeir, sem að þessu nýja blaði standa, líta svo á, að lausn þessara mála fyrir landbúnað- inn og fyrir alþjóð, sé svo rík, að allt annað eigi að víkja fyr- ir því, að koma í framkvæmd því, sem öruggast er til við- reisnar þessuin höfuðatvinnu- vegi þjóðarinnar. Hefir landbúnaðurinn í þús- und ár verið megin stytta und- ir afkomu og menningu þjóðar- innar, og mun svo enn reynast. Er það fyrsta verkefni þessa nýja blaðs, að ræða málefni landbúnaðarins og bændafé- lagsskaparins meir alhliða en gert hefir verið nú um hríð og láta eigi annað trufla umræð- ur um lausn þessara mála. Það eru nokkrir menn úr hópi Framsóknarmanna, innan Alþingis og utan, sem hafa bundist félagsskap um að gefa út þetta nýja blað, Framsókn. Stjórn félagsins skipa: Þor- steinn Briem, Svafar Guð- mundsson og undirritaður. í lögum félags okkar er mörkuð stefnan: „Tilgangur félagsins er að gefa út viku- og dagblöð til styrktar hags- munamálum bændastéttarinn- ar og samvinnustefnunnar hér á landi.“ Framsókn á að verða blað, sem snýst við málunum, mál- anna vegna sjálfra, og í þvl skyni að leysa þau framtíðar- innar vegna. Þar eru allir þeir velkomnir til þátttöku, eftir því sem rúm leyfir, sem ræða vilja þjóðmálin í samræmi við, eða til skýringar höfuðtilgangi blaðsins. Ýfingar við önnur blöð, eða menn, verða ekki hafnar. Framsókn hefur göngu sína með sumri, og það er tilgang- ur okkar, sem nú fylgjum úr hlaði, að mót sumri verði jafn- an stefnt. Á sumardaginn fyrsta 1933. Tryggvi Þórhallsson. Framsókn. i. Inngangsorð. Öll sönn framsókn er í því fólgin, að leysa lífið úr fjötr- um. Kynslóðin á undan okkur lauk miklum sigri. I nærri heila öld höfðu allir vöskustu og beztu menn þjóðarinnar barizt fyrir því, að hún fengi að ráða eigin málum á stjórnskipuleg- an hátt. Sú barátta hófst 1830 með kröfu Baldvins Einarsson- ar um endurreisn alþingis, og 1848 reisti Jón Sigurðsson kröf- una um fullkomið stjórnarfars- legt sjálfstæði. Undir hans merkjum var barizt til sigurs. 190í fékk þjóðin innlenda stjórn og 1918 varð Island full- valda ríki. Sigrarnir 1903—’04 og 1918 hafa valdið miklu um örlög kynslóðarinnar, sem nú ræður mestu í landinu. Af þeim fékk hún svip sinn og þeir hafa markað henni stefnu. í fögn- uði yfir þeim skipaði unga fólkið sér undir merki fram- sóknarinnar. Það fann á sér hvila skylduna að hefja sókn i menningarmálum, ræktunar- málum, atvinnumálum. Það dreymdi um að leysa lífið úr fjötrum á öllum sviðum. Það gekk furðu hiklaust að því, að láta drauma sína rætast. Eng- in kynslóð, sem lifað hefir á íslandi, hefir átt jafn miklu frelsi að fagna. Engin kynslóð á Islandi hefir lifað með jafn miklu fjöri og þreki. Verður hún svo gæfusöm, að skila jafngóðum arfi sem hún hefir notið mikils? Okkar kynslóð skal aldrei um það sökuð, að hún hefir ætlað sér mikinn hlut. Henni var skylt að dreyma mikla drauma. Henni var skylt, að láta þá drauma rætast. Henni var skylt að sækja fram, leysa lífið úr fjötrum. Henni var skylt að berjast við kuldann, myrkrið, fátælctina, sjúkdóm- ana, vanþekkinguna, ógæfuna. Henni var skylt að reisa sér og niðjum sínum hlý og björt hús, rækta landið, leggja vegi, hyggja brýr, reisa skóla, lækna sjúka, sigrast á fátæktinni, berjast við ógæfuna. Okkar kynslóð skal heldur aldrei sökuð um fögnuð sinn og bjartsýni. Fögnuðurinn og bjartsýnið hefir gefið henni þrek til mikilla sigra. En þess skal ekki dulizt, að í fögnuðin- um hefir ekki verið gætt hófs og í bjartsýninni hefir ekki verið séð nógu langt. Hún hef- ir lika beðið mikla ósigra. Hún hefir leyst lífið hér á Islandi úr fjötriun, en hún hefir líka lagt það í fjötra. Við skulum ekki sakast um þá ósigra, sem við höfum beð- ið. En við skulum viðurkenna þá og skilja þá. Og við skulum taka þeim eins og menn, Við skulum læra af þeim að vinna nýja sigra. II. Skuldirnar við útlönd. Stjórnarfarslega er íslenzka þjóðin fullvalda riki. En er hún fullvalda fjárliagslega? Við árslok 1932 voru skuldir ríkissjóðs við útlönd kr. 35.- 567.285*), skuldir kaupstað- anna kr. 4.940.000, skuldir bankanna við útlönd kr. 19.- 515.578. Ekki er til yfirlit yfir aðrar skuldir við útlönd, yngra en frá árslokum 1930, en þá voru þær rúmlega 13 milljón- ir króna (13.001.642). En þær hafa vaxið síðan, éink- um árið 1931. Skuldir þjóð- arinnar við útlönd hafa því verið a. m. k. 75 milljónir við síðustu áramót.**) Það eru um 700 krónur á hvern mann á landinu og er þá með talið ung- barnið í vöggunni og gamal- mennið í körinni. Það eru 4— 5 þúsund krónur á hvert með- al heimili (6—7 manns). Því miður hefi eg ekki getað aflað mér fullnægjandi upplýs- inga um, hve mikið þjóðin verður að greiða í vöxtu af þessum skuldum. Vaxtakjör hinna erlendu lána eru ærið misjöfn. Sum elztu lán ríkis- sjóðsins eru með 4—4%% vöxt- um, en þau lán nema ekki mjög miklu fé. Af enska láninu frá 1921 verður ríkið að greiða yf- ir 8% í vöxtu, og er á 10. mill- jón króna ógreitt af því. Vext- ir af stærstu skuldinni, enska láninu 1930, eru rúmlega 6%. Ríkið nýtur yfirleitt betri vaxtakjara en aðrir skuldend- ur. Meðalvextir af öllum skuld- um þjóðarinnar við útlönd geta því varla verið lægri en 6^%, og líklega eru þeir eitthvað hærri. Þjóðin verður því að greiða í vöxtu af skuldum sín- um við útlönd allt að 5 milljón- um króna á ári. Það eru um 45 krónur á hvert mannsbarn í landinu og allt að 300 krón- um á meðal heimili. Þetta er sá skattur, sem þjóðin verður að greiða erlendu auðvaldi. Árið 1931 nam verðmæti allr- ar útfluttrar vöru frá landinu *) Auk þessa eru innlendar skuld- ir ríkissjóðs, en þær koma ekki þessu máli við. **) Síðan um áramót hefir dönsk króna lækkað um 15%. Um Ys út- lendu skuldanna er við Danmörku, og hafa þær lækkað um 15%. En enginn veit, hvað sá „gróði“ stend- ur lengi.

x

Framsókn : bændablað - samvinnublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framsókn : bændablað - samvinnublað
https://timarit.is/publication/1320

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.