Kvennapósturinn í Kópavogi - 26.04.1994, Blaðsíða 1
I
(JQjE
l.TBL. l.ÁRG. 1994.
NNAPOSTURINN
í KÓPAVOGI
KVENNALISTINN
í BÆJARSTJÓRN
•Xvennalistinn er stjórnmála- og baráttuafl í íslenskum stjórnmálum.
Hann hefur haslað sér völl meðal annarra stjórnmálaafla og markað
sér þar sérstöðu. íslenskir stjórnmálaflokkar hafa, enn sem komið er,
lítið rúm fyrir konur. Próflkjör virðast ekki hafa aukið möguleika
kvenna til stjórnmálaþáttöku, þvert á móti. Með tilkomu þeirra
hefur jafnvel hið fræga „kvennasæti" flokkanna tapast. Látið er í
veðri vaka að hagsmunir karla og kvenna séu hinir sömu. Það er ekki
rétt. Veruleiki karls og konu er ólíkur á margan hátt þótt bæði séu í
sömu þjóðfélagsstétt og hafi sömu menntun. Líf manna markast svo
mjög af kynferði þeirra að það hlýtur að vera grundvallaratriði í
lýðræðisþjóðfélagi að tryggja báðum kynjum sömu tækifæri til
menntunar, valda og áhrifa. Pólitísk stefna Kvennalistans er því sú
að sjónarmið kvenna fái notið sín í jafn ríkum mæli og sjónarmið
karla.
ÁCvennalistinn í Kópavogi býður nú fram í annað sinn. Fyrir
fjórum árum komst engin kona af listanum í bæjarstjórn. Tæpast
leikur á tveim tungum að málefni kvenna, barna og aldraðra hafa
ekki verið efst á blaði hjá bæjarstjórninni á kjörtímabilinu. Nú er Ar
fjölskyldunnar. Einmitt þá er sérstaklega brýnt að konur komist til
valda í bænum.
KJÓSUM ÞVÍ
KVENNAIJSTANN J
• JAFNRÉTTISMÁL •
VIÐ VILJUM:
• að gerð verði könnun á stöðu
karla og kvenna í bænum,
• að stofnað verði embætti
jafnréttisfulltrúa,
• að launakerfi bæjarins verði
endurskoðað,
• að Kópavogsbær hafi forgöngu
um að störf heimavinnandi
húsmæðra verði að fullu metin
til launa er þær koma út aftur
á vinnumarkaðinn.
KVENFRELSI
TIL FARSÆLDARI