Kvöldblaðið - 17.11.1923, Blaðsíða 1
tt
FYRSTA KVÖLDBLAÐ ÍSLANDS — - MINSTA DAGBLAÐ ÍSLANDS
1. ár.
Reykjavík 17. nóvember 1923.
1. tbl.
Fylgt óp hlaði.
Það þykir hlýða, þegar nýtt blaö
heldur af stað, að fylgja því úr
hlaði með nokkrum orðum, og
svo mun gert hér.
Kvöldblaðið hefur göngu sína
með þessu blaði og ætlar að
þreyfa fyrir sér, hvort eigi muni
gerlegt að bæta við fjórða dag-
blaðinu í höfuðborginni — fyrsta
Jcvöldblaði Islandsj og felur íram-
tíð sína velvilja höfuðborgarbúa.
Kvöldblaðið ætlar aðallega að
flytja fréttir, einkum bœjarfréttir,
erlendar nýjungar og annan fróð-
leik. Þó lítið sé, ætlar það að
kosta kapps um að verða bezta
/réfta-blað bæjarins.
Kvöldblaðið mun einnig flytja
alt, sem vakið getur ómengaðann
hlátur lesendanna:
Kvöldblaðið mun að öllu verða
laust við pólitískan flokkadrátt; og
lítil afskifti hafa af stjórnpoúlum.
En taki það eitthvað af stærstu
velferðamálum bæjarins til athug-
unar, rpun það gera það algerlega
hlutdrægnislaust og án tillits til
nokkurs stjórnmálaflokks.
. Kvöldblaðið æskir stuðnings og
leiðbeiningar hjá sem flestum, —
En þess eru menn beðnir að gæta,
að rúmið leyfir eigi langar gieinar,
aðeins stuttar og gagnorðar. Sér-
staklega verða fréttáklausur og
nýungar velþegnar.
Rvöldblaðið kemur út kl. 7 s. d.
hvern dag.
Skal hér svo staðar numið.
Erlendar fs éttir.
Frá París. Undanfarið hefir
það vakið afarmikla eftirtekt í
París, að fjöldi barna á aldrinum
6—12 ára hafa gert ítrekaðar
sjálfsmorðstilraunir. Hefir nú ný-
lega sannast hverjar ástæður væru.
Ríkissjóðurinn franski greiðir 25
' franka hverjum þeim, sem bj irgar
einu mannslífi frá druknun. Höfðu
svo tveir lögregluþjónar tekið sam-
: an ráð sín og fengið fjölda smá-
! barna til að kasta sér í „Seinen"
: [Fljót, sem rennur gegnum borgina],
1 og borguðu þeir hyerju barni 2
franka í þóknun. Björguðu þeir
svo börnunum og fóru með þau
á næstu lögreglustöð og fengu
i greidd björgunarlaunin 25 franka