Morgunblaðið - 18.02.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.02.2000, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA Collymore sektaður STAN Collymore var sektaður um tveggja vikna laun og áminntur af knattspyrnustjóra sínum hjá Leicester, Martin O’Neill. Colly- more missti stjórn á sér í gleðskap nokkurra leikmanna í æfíngabúðum liðsins á La Manga snemma í vikunni og sprautaði úr slökkvi- tæki. Varð atvikið til þess að liðið var allt sent heim eftir sólarhringsveru á Spáni. Collymore er gert að greiða 3,5 milljónir króna í sekt fyrir uppátækið og einnig gert að vinna sjálfboðavinnu fyrir samfélagið. Rúmlega 80.000 króna skemmdir á hótelinu verða greiddar af Leicester. „Collymore verður áfram í liði okkar,“ sagði O’NeilI, knattspymustjóri í gær. „Ég tel að hann verðskuldi annað tækifæri og hann fær það svo sannarlega. Ég ætla hins vegar ekki að taka upp hanskann fyrir Colly- more, dettur það ekki til hugar. Hann er mið- ur sín vegna þessa atviks og má svo sannar- lega vera það.“ " iiiiiiiiTr^irrwffrrTTrTTTnrr'TBnninn Ragnar þjálf- ari Hauka Með Geurgi Larin sértil aðstoðar RAGNAR Hermannsson var í gærkvöld ráðinn þjálfari 1. deildar- liðs Hauka í handknattleik kvenna. Honum til aðstoðar verður Rússinn Geurgi Larin, sem hefur verið yfirþjálfari yngri flokka karla hjá Haukum í vetur. Þeirtaka við af Judit Ezstergál aðal- þjálfara og Svövu Ýr Baldvinsdóttur aðstoðarþjálfara sem hættu störfum í vikunni. Ragnar hefur talsverða reynslu af þjálfun kvennaliða en hann hefur stýrt Val undanfarin tvö ár og þar áður kvennaliðum Fylkis og KR. í vetur hefur hann hins vegar verið í fríi frá meistaraflokksþjálf- un. Geurgi Larin kom til Hauka í haust en hann er geysilega reyndur þjálfari og stjórnaði kvennalandsliði Rússa þegar það varð Ólympíu- meistari í Seoul fyrir tólf árum. „Ég hef séð nokkra leiki með Haukunum í vetur og þar er reynd- ur og góður mannskapur á ferð, en einhverra hluta vegna hefur liðið leikið illa. Það er okkar hlutverk að hjálpa því inn á réttar brautir, fá leikmenn til að sýna það sem í þeim býr, og það á að vera hægt að snúa dæminu við. Liðið er í áttunda sæti en deildin er það jöfn að við eigum möguleika á því eins og önnur lið að fara alla leið í úrslitakeppninni,“ sagði Ragnar í samtali við Morgun- blaðið í gærkvöld. Ragnar sagði að reynsla Larins ætti örugglega eftir að koma að góð- um notum. „Við munum vinna mikið saman, ég hef áður unnið með rúss- neskum þjálfara, Boris Akbashev, og Larin er með svipaða reynslu að baki, hefur þjálfað í meii-a en fjöru- tíu ár,“ sagði Ragnar Hermannsson. Veney frá Njarðvík NJARÐVIKINGAR hafa ákveðið að láta Keith Veney, bandarískan leikmann liðsins, fara. Veney, sem er 25 ára bakvörður, er fjórði er- lendi leikmaðurinn sem fer frá Njarðvík í vetur, en hann hugðist fara af landi brott í gær. Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Njarðvík- inga, sagði að leikmaðurinn hefði ekki staðið undir væntingum, hefði reynst alltof þungur, seinn og ekki fallið inn í leik liðsins. Hann sagði í biðstöðu hvort liðið fengi til sín annan erlendan leikmann fyrir lok tímabilsins. Friðrik sagði að vetur- inn hefði reynst erfiður að þessu leyti en það sem héldi liðinu saman væri samheldnin. Gunnar Þorvarðarson, formað- ur körfuknattleiksdeildar Njarð- víkur, sagði að kostnaður vegna komu erlendra leikmanna í vetur væri umtalsverður, 30 þúsund krónur fyrir keppnisleyfi í hvert skipti, 40-80 þúsund krónur í fargjald á hvern leikmann, laun og uppsagnarákvæði í eina til tvær vikur. Reuters Vaia Flosadóttir horfir ánægð á stigatöf luna eftir að hún fór yfir 4,37 metra í Stokkhólmi í gær. Gott afmælisstökk hjá Völu Önnur í Stokkhólmi með 4,37 metra og er komin í níunda sæti á heimslistanum VALA Flosadóttir náði sínum besta árangri á þessu ári í stangar- stökki þegar hún stökk 4,37 metra á stórmóti, Globen Galan, í Stokkhólmi í gærkvöld. Vala varð önnur, stökk jafnhátt og sigur- vegarinn, Anzhela Balakhonova frá Úkraínu, og komst með þessu í níunda sætið á heimslistanum í greininni í ár. Eg er mjög ánægð með mín stökk í kvöld en ég á eftir að gera enn betur. Stöngin sem ég notaði í síðari stökkin var full mjúk en ég fæ nýja stöng, sem á að vera mjög góð, á næstu dögum og með hana fer ég til Gent,“ sagði Vala við Morgunblaðið eftir mótið. Hún hélt með þessu upp á 22 ára afmælið sitt, sem var á mið- vikudag. Vala á góðar minningar frá Globen en þar varð hún Evrópu- meistari á sínum tíma. Vala fór auðveldlega yfir byrjunar- hæðina, 4,06 metra, og einnig yfir næstu hæð, sem var 4,22. Eftir að hún fór yfir 4,37 metra í annarri til- raun reyndi Vala beint við 4,47 metra, nýtt íslands- og Norðurlandamet, og átti þrjár góðar tilraunir við þá hæð. Vala fór þarna í þriðja skipti í ár yf- ir Ólympíulágmarkið, sem er 4,30 metrar, en hún stökk þá hæð á fyrsta móti tímabilsins og síðan 4,31 metra, og var í 13.-15. sæti heimslistans í ár fyrir mótið í gærkvöld. Doris Auer frá Austurríki, Yvonne Buschbaum frá Þýskalandi og Janine Whitlock frá Bretlandi urðu í næstu sætum en þær stukku allar 4,22 metra. Þetta var síðasta mót Völu fyrir EM, sem fram fer um aðra helgi. Hún mun æfa í Malmö, ásamt Guðrúnu Arnardóttur, fram að mótinu í Gent. ÞRÍR NÝLIÐAR í LANDSLIÐSHÓPI FRIÐRIKSINGA / B4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.