Morgunblaðið - 05.08.1917, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.08.1917, Blaðsíða 1
Sunnud. 4. árgangr 5. ágúst 1917 HORfiUNBLAÐID 271. tölnblað Ritstiórnarsimi nr. 500 Blö Reykjavtknr Biograph-Theater Talslmi 475 Granit-iðnaöur i Milíord. MassachuBettB U. S. A. Mjög fræöandi mynd. Trygg’ur vinur. AfbraKÖgfögnr og hngnæm mynd. Sýnir skærur milli Indiána og hvítra landnema i Ameriku. Hiónaband F ATT YS. Fatty »þann feita< J?ekhja allir. Hann er án efa einhvor hinn skemtilegasti skripaleikari sem hér liefir sézt, — og mynd þessi er fram úr hófi okemtileg. Bifreið fer til Þingvalla í dag Nokkrir menn geta íengið far. Uppl. i Lltlu búðinui. Erl. símfregnir ' Opinber tilkynning frá brezku utan- ríkisstjórninni i London. LoDdon, ódagsett. Merkasti atburður vikunnar sem leið, er sá, að bandamenn hófu aftur . sókn í nánd við Ypres. Að morgni hins 31. júlí gerðu Bretar áhlaup með aðstoð Frakka að vestan og sóttu fram á fimtán mílna svæði frá La Bassée og Lys til Steenstraete -og Yser. Hafa bandamenn nú náð báðum þeim stöðum á sitt vald. — Bandamenn náðu alls staðar þeim - takmörkum er þeir höfðu sett sér. Mjög áköf orusta var háð rétt norð- an við Ypres. Er þar land óslétt . og skógi vaxið. Óvinirnir biðu mikið manntjón. Hafa nú verið taldir 5000 handteknir menn, þar á meðal 95 liðsforingjar. Nokkrar fallbyssur voru og teknar en ná- kvæmar tölur eru eigi komnar. — Þrettán þýzkar herdeildir tóku í móti áhlaupinu og bandteknir menn eru lir öllum tvífylkjum Þjóðverja á þessu svæði. Þar sem bandamenn sóttu . lengst fram, komust þeir milli 4 og 5 þús. metra fram. Hervirki þau, er stórskotahríð vor gerði, bæði á undan orustunni og eins og meðan hún stóð, eru alveg hræðileg. Þjóð- verjar sendu mikið lið fram til gagn- áhlaupa á hinar nýju stöðvar vorar, en vér héldum öllum þeim aðal- stöðvum, er vér höfðum tekið á hæð- unum milli St. Julien og Westhoek. ísafoldarprentsmiðja Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen Veður eru alt af óhagstæð. í stormi og þoku hafa flugmenn vorir sýnt ágætlega yfirburði sína og haft sigur í viðureignum við þýzka flugmenn. Rúmenar héldu áfram sókn sinni í áttina til Kedsi Vasarheli og hand- tóku um 5000 menn og náðu mörg- um stórum fallbyssum og öðrum minni. Hafa Rúmenar náð sér ágætlega eftir ófarirnar í fyrra og hrekja nú Austurríkismenn i hérað- inu fyrir norðan og vestan Focsani og ætla sér sennilega að ná Oitnz- skarði. í Moldavia létu Rússar bil- bng á sér finna og mistu Kimpolung. A rússnesku vigstöðvunum er enn undanhald. Hafa Rússar höifað yfir Zbrucz og óvinirnir ráðist inn í Rússland. Samvinna Frakka við Bieta var framúrskarandi, bæði stórskotaliðsins og fótgönguliðsins. Þeir ætluðu sér að taka Steenstraete en fórn miklu lengra og tóku og héldu Dixschoote. Alla vikuna var öflug stórskotahríð á allri annari herlinu Frakka, sérstak- lega hjá Braye og Hurtebise. Þar gerðu Þjóðverjar tvo áhlaup, en biðu ósigur og varð mannfall þeirra mik- ið. Þar á eftir gerðu Frakkar fót- gönguliðsáhlaup milli Hurtebiae og Labovelle og sóttu fram á öllum stöðum; einnig hjá Chevrigny og Cherny. Þar tóku þeir fanga og bjuggust við i hinum nýju stöðvum. Þjóðverjum misheppnaðist, er þeir reyndu að taka aftur mistar skot- grafir hjá Meuse og 304. hæðinni. Einnig mistókst þeim skyndiáhlaup á Hartmannsweiler. Ameríksku hermennirnir, sem nú er verið að æfa í Frakklandi, eru sagðir jafnokar hinna béztu her- mannai og fer þeim þó fram, og njóta þeir þar reynslu bandamanna. Hjá ítölum hafa verið stórskotaliðs- orustur og útvarðaskærur og hefir á- hlaupum Austurríkismanna verið drengilega hrundið hvarvetna. í Albaníu fóru, ítalir yfir Vojussa- áoa og gersigruðu þar útverði Búlg- ar. A Balkan hefir aðallega verið stórskotahríð og loftorustur. Hafa brezkir flugmenn skotið ákaflega á Demirhissar, Rupel og aðrar stcðv- ar. Undanhald Serba hefir verið varið með framúrskarandi viðnámi aftur- liðsins og viðurkenna Þjóðverjar að þeir hafi beðið mikið tjón. Korniloff hefir tekið við af Brusil- off og það er álitið að hann muni grípa til öflugra ráða til þess að hefta óregluna í her Rússa. í Egyptalandi hafa aðeins verið framvarðaliðsskæiur. í Mesopotamia hefir engin breyting orðið. í Austur- Afríku snarpar orustur og hafa Þjóð- verjar verið hraktir með miklu mann- tjóni frá Engunga, sextiu og tvær milur sunnan við Iringa og Tulvias, 55 milum sunnan við MaheDge. ----------------------- Erl. símfregnir. Frá fréttaritara ísafoldar og Morgunbl. Khöfn 4. ágúst. Kadettaflokkurinn i Rnss- landi hefir aftnr tekið við stjórnartaumununa. í»jóðverjar hata gert ár- angurslaus gagnáhlaup 1 Flandern. Denis Cochin heflr sagt af sér. Finska landsþingið hefir verið rofið. Herir Miðríkjanna hafa tekið Czernovitz. Frá alþingi. Nýungar. 1. llkittaka landssjóðs í verðhakkun. Frá minni hlnta bjargráðanefndar er komið álit um frv. Jörundar Brynj- ólfssonar til heimildarlaga fyrir lands- stjórnina til þess að selja ýmsar nauð- synjavörur undir verði, og að gjalda verðhækkunina eftir því, sem lög þessi greina. Nefndarálitið er á þessa leið: Bjargráðanefnd var fengið frum- varp þetta til meðferðar. Eftir nokkrar umræður klofnaði nefndin og urðum vér þrír, er vildum styðja grundvallarhugsun frumvarpsins, að láta almenningi hallærishjálp í té með þeim hætti að selja vörur undir verði. Oss þótti þó flutningsmaður hafa tekið óþarflega djúpt i árinni, enda taldist svo til, að frv. hans mundi kosta 8 miljónir. En hitt duldist oss eigi, að brýna nauðsyn ber til að hlaupa undir bagga með nauð- staddri alþýðu manna. Þótti oss nú auðveldast til framkvæmda að velja úr nokkrar vörutegundir, er seldar væru undir verði. Leist oss sem hentast mundi að velja til þess mjöl og brauð, kol og stein- olíu. Þar er nauðsynin rikust og þar kemur jafnast niður. Tillögur frv. um, hverjum veita skyldi hjálpina, teljum við tveir með öllu óframkvæmanlegar, og teljum það yfir höfuð eigi svara kostnaði að undanskilja neina. Hitt er sjálfsagt, að skattur með nokkr- um hætti gæti vegið upp þá lin- kind, er fáeinir efnamenn i landinu kynnu að fá ófyrirsynju eftir til- lögum vorum. Oss þótti þessi hjálp við almenn- ing þó eigi vera einhlít, og töld- Afgreiðsinsími nr. 500 Tlt/JTt BÍÓ Erflastóia. Ljómandi fallegur 'sjónleikur. Leikinn af Vitagraph Co. Aðalhlutverk leikur hin fagra leikkona, Anita Steward. Petta kvenfólk, Gamanleikur Konráð R. Konráðsöon læknir Þingholtsstræti 21. Sími 575. Heima 10—12 og 6—7. I fjarveru minni (frá 5. til 12. þ. m.) er rannsókuastofan Iokuö, Gísli Guðmnndsson. um nauðsyn bera til að sjá með nokkrum hætti við atvinnubresti. Þótti oss þar tiltækilegast að heim- ila stjórninni að láta vinna ýms nauðsynjaverk fyr en ella mundi. Þótt þessar ráðstafanir kynni að hafa tveggja til þriggja *miljóna kostnað í för með sér, þá teljum vér rétt að taka til þess láo, svo hernaðargjöld þessi jafnist niður á mörg ár og helzt fleiri en eina kynslóð. Eru nú sliks dæmi hjá öllum siðuðum þjóðum, því að svo er nú rétt á litið, að hlutlausar þjóðir séu einnig i stríðinu, þar sem ætíð er á þær sótt, þótt þær sæki á engan og geti nauðulega varist. Og þar sem menn koma margir í krappan dans af svo ósjálf- ráðum ástæðum sem ófriði, þá er tillaga vor um lán til einstakra manna, að það teljist eigi sveitar- skuld, svo sjálfsögð, að eigi þarf að skýra. Alþingi, 2. ágúst 1917. Einar Arnórsson Bjarni Jónsson formaður ritari og frams.m. Jörundur Brynjólfsson. A fundi fjárveitinganefndar Nd. Alþingis í dag var samþykt sú yfir- lýsing með 6 atkv. gegn einu, að nefndin getur eigi fallist á fjár- hagsatriðið i umræddu frumvarpi né i breytingartillögum á þskj. 259. Alþingi, 2. ágúst 1917. Pétur Jónsson. Bjarni Jónsson frá Vogi_ Frumvarpið er nú svolátandi í þeiiri mynd, sem framantalinn minni hluti hefir fengið þvi: Frumvarp til laga um hluttöku landssjóðs i verðhækkun á ýmsum nauðsynjavörum o. fl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.