Morgunblaðið - 02.02.1963, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 02.02.1963, Blaðsíða 24
Eldur í skipi á Breiöafirði Patreksfixði 1. febr. E'tlur kom upp í m.s. Særúnu í nótt, er skipið var :4 itt á Breiðafirði. Kviknaði í farmi of- an þilja, en skipverjum tókst að slökkva á stundarfjórðungi. M.s. Særún frá Bolungarvík er í vöruflutningum milli Reykja- víkur og Vestfjarða. Þegar skipið var statt ^ Breiðafirði um kl. 3 í nótt, á vesturleið, kviknaði i einangrunarplasti, sem geymt var á bátapalli stjórnborðs megin. Skipverjar hófu þegar slökkvi starfið með því að dæla sjó á eld- inn. Gekk greiðlega að sigrast á honum, og tók það ekki nema 15 míniútur. Allt plastið var þá brunnið, og eyðilögðust þama 60 búnt af einangrunarefni, eða 30 rúmmetrar. Harðviðarplankar sem geymdir voru á sama stað, Skemmidust og töluiverðar skemmdir urðu á bátaþilfarinu og björgunarbátum. M.s. Særún kom hingað til Vaitneyrar kl. 9 í morgun, og átti ég tal við skipstjórann. Hann telur, að neisti frá púströri skipsins hafi valdið íkvei'kjunni. Nokkuirt kul vair, þegar eldurinn gaus upp, og var þá hægt að sigla skipinu þannig, að eldinn lagði út af skipinu, en erfiðara hefði e.t.v. verið að ráða niðurlögum eldsins, ef logn hefði verið á . — Trausti. Ljósm. Sv. I Hér strandaði vörubíllinn, sem hinn drukkni piltur stal í Hafnarfirði Enourtekin blóöpróf ti! að sanna faðerni Sýndu mismunandi niðurstöður væri dæmt til þess að eiga, nema hægt væri að benda á annan föður. Maður sá, sem konan lýsti barnsföður hefði útilokast og kvaðst Árni ekki vilja flytja málið fyrr en hann hefði þó fengið það haldreipi að geta snúið sér að öðrum manni á eftir. Bað Árni síðan Blóðbankann að endurtaka blóðprufu þá, sem Rannsóknarstofa Háskólans hafði látið fram fara á aðilunum. Voru allir aðilar fúsir til þess að gangast undir endurtekna blóðprufu. Síðari blóðprufan reyndist ganga í berhögg við þá fyrri, sem útilokaði þann mann, sem konan kvað vera barns föður sinn. Árni tjáði Mbl. í gær að fyrir kæmi að lögfræðingar fengju til sín kvenfólk, sem orðið hefði fyrir því að blóðpróf útilokaði barnsföður þann, sem þær hefðu bent á. Er þetta mál því hið Framh. á bls. 23 „Dagur i lífi Ivans Denisov- ich“ komin hingað Á fimmtudag, 31. jan. kom út í Bretlandi ensk útgáfa bókarinnar „Einn dagur í lifi Ivans Denisovich“, en Morg- unblaðið sagði frá þessari bók 23. jan. sl. og birti þá jafn- framt einn kafla hennar.. Ilöf undur hennar er Alexander Solzhenitsyn, sem sat í fanga búðum Stalíns á sínum tíma. Lýsir hann einum degi úr lifi fanganna, og hefur bókin vak- ið gífurlega athygli í Sovét- ríkjunum, þar sem hún hefur i birzt í tímaritinu „Novy Mir“, og í hinum frjálsa heimi, þar í sem útgefendur hafa keppzt um að Iáta þýða hana og koma henni á markað. Bókin kom til íslands sama dag og hún kom út í Bretlandi og fæst í Bókaverzl Snæbjarnar Jónsson ar & Co. í Hafnarstræti. Bókin I nefnist á ensku „One Day in 1 the Life of Ivan Denisovich“/ og er gefin út af forlagi Vict- l ors Gollancz. ( Miklir flutningar á frystum fiski til USA I MÁLAFERLUM, sem að und- anförnu hafa staðið vegna fað- ernis barns, hefur komið í ljós að fyrri blóðrannsókn, sem úti- lokaði mann frá faðerninu, stang ast á við blóðrannsókn, sem síð- ar var gerð. Mál þetta er ve- fengingarmál og eru málavextir þeir að móðirin hafði gifzt manni, meðan hún gekk með barni, en annar maður hafði gengizt við barninu áður en gifting fór fram. Fyrir fæðingu bamsins skildu hjónin að borði og sæng, en lögskilnaður hafði hinsvegar ekki farið fram er barnið fæddist. Nokkru siðar lézt eiginmaðurinn. Úrskurðaði undirréttur að barnið væri fætt í hjónabandi en konan hafði áð- ur fengið meðlagsúrskurð á bamsföðurinn, en síðar var sá úrskurður úr gildi felldur, er í Ijós kom að barnið var fætt fyr- ir lögskilnað hjónanna. Ströng ákvæði laga kveða svo á, að bam fætt í hjónabandi skuli teljast skilgetið jafnvel þó hjón- in útaf fyrir sig séu sammála um að svo sé ekki. Umrædd kona sneri sér, að undirréttardómi gengnum, til Árna Guðjónssonar hrl. og taldi að kveðinn hefði verið upp yfir sér vegna barnsins rangur dóm- ur. ■ Árni Guðjónsson tjáði Mbl. í gær að konan hefði farið þess á leit að hann tæki undir kröfu stefnanda málsins, þ.e.a.s. dánar- bús eiginmanns hennar. Svaraði Árni henni því til aö það gæti hann ekki gert, og svipt barnið þeim eina föður sem það þó Sæusku- og norsku kennsla í Há- skólanum KENNSLU í sffiu...a og norsku fyrir almenning verður haldið áfram á vormisserinu, og hefst hún sem hér segir: Sænski sendikennarinn, Jan Nilsson, fil. mag. byrjar kennslu mánudaginn 4. febrúar kl. 8.15 e.h. í II. kennslustofu. Norski sendikennarinn, Odd Didriksen cand. mag., byrjar kennslu fimmtudaginn 7. febr- úar kl. 8.15 e.h. í VI. kennslu- stofu. ÓVENJUMIKIÐ hefur verið um flutninga á frystum sjávaraf- urðum til Bandaríkjanna að und- anförnu. Hafa 4153 tonn verið flutt vestur seinnihluta janúar- mánaðar. Lagarfoss hefur verið að losa í Gloucester 968 tonn frá Sölu- miðstöð Hraðfrystihúsanna og 475 tonn frá SÍS. Á leiðinni vestur eru Jökul- fell með 413 tonn frá S. H. og 500 tonn frá SÍS. Langjökull er nýlagður af stað með 1327 tonn frá S. H. og 470 tonn frá SÍS. S. H. hefur alls sent 2708 tonn til Bandaríkjanna af frystum fiski í janúar og SÍS 1445 tonn, eða samtals 4153 tonn. Venjulega er mest um flutn- inga vestur á vetrarvertíðinni. Nú vantar aðeins meiri fisk, því þörf er fyrir hann á Bandaríkja- markaði. SÍS t. d. hefur þegar sent vestur allan fisk, sem unn- inn hefur verið fyrir Banda-' ríkjamarkað, en gert er ráð fyrir því, að Jökulfell verði sent aftur vestur, þegar það kemur. Verðið á frysta fiskinum er hagstæðara á bandarískum mark aði heldur en þeim rússneska. Hins vegar er meiri vinna í frysti húsunum við fiskinn, sem fer á Bandaríkjamarkað, einkum vegna smærri og mismunandi pakkninga. Gosdrykkjum stolið í FYRRINÓTT var brotizt inn í verzlun að Grettisgötu 86. Brotin var rúða og hafði þjófurinn með sér nokkrar flöskur af gosdrykkj 1 um. Drukkinn piltur stelur tveimur bílum UM KL. tvö aðfaranótt föstud. stal drukkin piltur úr Reykja- víik stórum vörubíl í Hafnar- firði. Ók hann um bæinn, og ætlaði síðan að stytta sér leið út á Reykjavíkurvag um trjá- garð. Braut bíllinn bæði girðingu og tré, en lenti að lokum á stkru tré og komst ekki lengra. Piltur inn tók þá á rás og fann sér annan vörubíl. Ók hann á hon- um áleiðis til Reykjavíkur, en var handsamaður hjá EngidaL Voru þar að verki menn, sem áttu heima við sörnu götu og fyrri bíllinn hafði staðið á. Voru þeir að leita að piltinum ásamt lögreglunni. Gdðar síldveiði- horfur í gærkvöldi AÐFARANÓTT föstudags« héldu síldveiðiskipin sig á Skeið arárdýpi. Fengu þar 14 skip alls 9.200 tunnur á dreifðu svæði og í allsæmilegu veiðiveðri. Skipin lönduðu öll í Vestmanna eyjum í gær, en þangað er um 12-15 tíma sigling frá miðunum enda á móti vindi að sækja. Komu þeir inn frá kl. 11 um morguninn og fram eftir degi. Síldin er jafnóðum sett í tog- ara, sem sigla með hana til Þýzkalands. Bv. Freyr fór frá Eyjum í gærmorgun með rúm 300 tonn af síld og 20-30 tonn af ýsu. Bv. Egill Skallagríms- son fór í gærkveldi með um 90 tonn af síld ofan á aflann. Tog- ararnir Þorsteinn Ingólfsson og Neptunus áttu að fara undir nótt ina, og síðan fara Röðull, Skúli Landhelgisbrjótar sektaðir DÓMUR féll í Vestmannaeyj- um í gær í máli fjögurra af fimm togbátaskipstjóra, sem varðskipið Óðinn stóð að ólög- legum veiðum á miðvikudags- morgun. Voru skipstjórarnir á Vestmannaeyjabátunum Ver, Glað og Farsæli og Djúpavogs- bátnum Sævaldi dæmdir í 20 þús. kr. sekt hver. Afli og veiða- færi var gert upptækt. Máld skipstjórans á Unni frá Eyrar- bakka er ekki lokið enn, en hann hefur neitað sakargiftum. i Magnússon og Úranus, þegar þeir hafa verið fylltir. Fiski- mjölsskip kom til Eyja í gær. í gærmorgun fóru 26 skip austur á miðin frá Eyjum, en þau skip höfðu landað síld j fyrradag. Allgóðar veiðihorfur voru þá austur á Skeiðarárdýpi og veður sæmilegt. Síldin stóð fulldjúpt í gærkvöldi, mest á 30 faðma dýpi, en torfa og torfa skauzt upp á 22-24 faðma. Veið- in var á stóru svæði, og kl. 22 voru bátarnir farnir að tilkynna afla. Víðir II. hafði fengið 1000 tunnur, Björn Jónsson 250 tunn- ur í einu kasti af nokkuð stórri síld og millisíld. Ekkert bar þar á smásíld. Halkíon hafði fengið 300 tunnur af sæmilegri síld, Víðir SU 300 tunnur af rusli, en Auðimn lenti í vandræðum með 250 tonna kast, vegna þess að síldin ánetjaðist, en harin mun vera með fremur smáriðna nót. Röðulsmenn á batavegi MORGUNBLÁÐH) spurðist i gær fyrir líðan áihafnaxinnar á bv Röðli. Þeir, sem fóru í Borg arsjúkrabúsið, eru allir á góðum. ibatavegi, og fjórir þeirra eru þegax faimir þaðan. Annar þeirra sem fór í sjúkralhiúsið í Vest- mannaeyjum, er fárinn þaðan, en ihinn er orðinn rólfær pg esr i öruim ba>ba. ».

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.