Morgunblaðið - 17.06.1964, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.06.1964, Blaðsíða 1
I 51 nrgangur 134. tbl. — Miðvikudagur 17. júní 1964 Prentsmiðja Morgunblaðsín* Meðfylgjandl mynd (síma- mynd AP) var tekin þegar Krúsjeff kom í síðdegisboð dönsku ríkisstjórnarinnar í dag. Þar tóku á móti honum Jens Otto Kragh, forsætisráð- herra og Per Hækkerup, ut- anríkisráðherra. \ annað hundrað biðu bana Nýju Delhi, 16. júnL NTB—AP ( Hyderabad V-Pakistan 16. ' júní. — (AP) — Á ANNAÐ hundrað maiins biðu bana og hundruð særð- ust a£ völdum ofviðris er gekk yfir Tharparkar hérað um helgina. Butler til Moskvu *> — I boði Sovétstjórnarinnar London, 16. júní — (AP-NTB) RICHARD Butler, utanríkis- ráðherra Bretlands, tilkynnti í dag, að hann muni í næsta' mánuði fara í fimm daga heimsókn til Sovétríkjanna í boði sovézku ríkisstjórnarinn ar. Er ætlunin að hann ræði við ýmsa sovézka ráðamenn, þar á meðal Nikita Krúsjeff, forsætisráðherra og Andrei Gromyko, utanríkisráðherra. Butler skýrði frá þessu í um- ræðum í neðri málstofunni í dag Gæzíulið S.Þ. verði á Kýpur í 3 mán. enn Forsætisráðherrar Grikklands og Tyrklands væntanlegir til Washington New York, 16. júnL — (NTB) — U THANT, framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur nú lagt þau tilmæli fyr- ir Öryggisráðið, að það fram- lengi starfstíma gæzluliðs samtakanna á Kýpur um þrjá mánuði, til 27. september n.k. Segir í skýrslu hans, sem til- mælunum fylgir, að bezt þætti sér, að framlengd yrði dvöl liðsins um óákveðinn tíma en honum sé ljóst, að vegna fjárhagshliðar málsins, sé það ekki hugsanlegt. Þá var tilkynnt í Washington í gærkveldi, að væntanlegir séu þangað forsætisráðherrar Grikk- lands og Tyrklands, George Pap- andreu og.Ism'et Inonu. Kemur Inonu þangað 21. júní og hyggst verða á brott áður en Papan- dreou kemur þann 24. júní. — Báðir ræða við Johnson forseta um ástandið á Kýpur. Frá Kýpur berast þær fregnir að komið hafi til átaka í gær milli tyrkneskra manna þar. og grískra. Hafi skothríð staðið í þrjár klukkustundir og einkan- lega átzt við íbúar þorpanna Uoutros og Xerovounos. um utanríkismál. Hann hefur ekki fyrr farið til Sovétríkjanna og hvorki hitt Gromyko né Krús- jefff frá því hann tók við em- bætti utanríkisráðherra. NTB- fréttastofan hefur eftir áreiðan- legum heimildum, að Butler fari til Moskvu 27. júlí — og að með- al mála, er hann ræði við Sovét- menn, verði ástandið í Laos, en Bretar og Rússar skipuðu í sam- einingu formannssæti Genfarráð- stefnunnar um Laos-málið árið 1962. Butler, sem er nýkominn til London frá Genf, þar sem hann sat fund efnahagsmálaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, skýrði einn ig frá því að brezka stjórnin hefði ákveðið að auka aðstoð við vanþróuð ríki. rúsjeff í Hðfn Léitist á honum brúnin er á daginn leið Kaupmannahöfn, 16. júní. NTB. • Danmerkurheimsókn Nikita Krúsjeff forsætisráffherra Sovét- ríkjanna hófst kl. 9 í morgun, er skip hans „Basykiria” lagffi upp aff Löngulínu, skammt frá stytt- unni af hafmeynni litlu. Veffur’ var hlýtt en nokkuff skýjaff. • Jens Ottó Kragh, forsætisráff- herra Danmerkur, frú hans, Per Hækkerup, utanríkisráffherra, og fleiri ráffamenn tóku á móti gest unum og nokkur þúsund manna höfffu safnazt saman á hafnar- bakkanum — aff því er virtist meira af forvitni en ánægju yfir heimsókninni. Tók fóikið Krús- jeff meff heldur kaldri kurteisi, þó var nokkrum sinnum hrópað ,Jiúrra” og — og kveðju Ninu Krúsjeff var vei fagnaff. Sjálfur var sovézki forsætisráffherrann heldur dapur í bragði framan af en er á daginn leið léttist á hon- um brúnin. Auk eiginkonu Krúsjeffs eru dætur þeiyra þrjár með í för- inni, Júlia Gontar, Helena og Rade Adzjubei, tengdasonur hans Adzjubei ritstjóri „Izvest- ija“,' Pavel Satjukoy, ritstjóri „Pravda“, Andrei Groníyko, utanríkisráðherra og margir aðr- ir háttsettir embættismenn, — m. a. nokkrir helztu landbúnaðar sérfræðingur Sovétríkjanna, því það mun vera hvað mest áhuga- mál Krúsjeffs að kynnast dönsk- um landbúnaði. Er Krúsjeff sté á land var hleypt af fallbyssuskotum og lúðrasveitir léku. Að ioknum kveðjuávörpum var ekið til Royal Hotel, þar sem gestirnir 'búa en síðan í hádegsverð borg- arstjórnar Kaupmannahafnar í Ráðhúsinu. Síðdegis heimsótti Krúsjeff þinghúsiff og ræddi við þingmenn, sótti síðdegisboð dönsku ríkisstjórnarinnar og í kvöld jiélt Jens Otto Kragh gest- unum samsæti. í síðdegsboði ríkisstjórnarinn- ar sagði Krúsjeff, að hann hefði alls ekki í hyggjú að ræða við dönsku stjórnina vandamál, er vörðuðu hermál eða herbúnað. — Varð þar með ástæðulaus sá ótti er utanríkisráðherrann, Per Hækkerup, lét í ljós við blaða- menn í gær um að hann tæki að ræða Kekkonen-tillöguna um að gera Norðurlöndin að kjarnorku vopnalausu svæði. A öðru leyti drap Krúsjeff ekki á nein sérstök mál, er al- þjóðaviðskipti varða, í ræðum sín um í dag — kvað þó einsýnt, að svo fagrar borgir, sem Kaup- Frahald á blss. 15 Bolshoi - ballettinum vísað frá V.-Þýzkal. Bonn, 16. iúní NTB SJÓRN V- Þýzkalands hefur gefið hinum fræga Bolshoi- ballet frá Moskvu skipun um að binda þegar í stað enda á sýningarferð sína um landið og hverfa þaðan hið skjótasta. Talsmaður utanríkisráðuneytis ins, sem frá þessu skýrði í kvöld, sagði ástæðuna þá, að þegar ballettinn hefði fengið vegabréfs áritun til V-í>ýzkalands, hefði af hálfu Sovétstjórnarinnar ver- ið sagt, að hann mundi halda sýn ingar í V-Berlín dagana 24.-25. júní. Nú ætlaði stjórn ballettsins á hinn bóginn ekki að standa við þau skilyrði, á þeirri forsendu, að Sovétstjórnin viðurkenndi ekki, að V-Berlín væri hluti V- Þýzkalands. Úr því svo væri, teldi v-þýzka stjórnin ekki á- stæðu til að heimila ballettinum áframhaldandi dvöl í V-Þýzka- landi. Jarðskjálflinn í Japan: Manntjón furðu lítið miðað við styrkleika jarðskjálftans Mældist 7.7 stig á Richter-skala Tókíó, 16. júní — (AP) — SNARPUR jarðskjálfti olli gífurlegu tjóni í mið- og norð- urhluta Japans í morgun. — Þegar síðast fréttist var vit- að, að 23 hefðu farizt, u.þ.b. 130 særzt og nokkurra var saknað — og telst það næsta ótrúlega lítið mannfall miðað við styrkleika jarðskjálftans. Mældist hann 7.7 stig á Richt- er skalanum, sem er ekki miklu veikara en jarðskjálfti sá, er árið 1923 olli sem mestu tjóni í Tókíó og Yokohama og varð hátt á annað hundr- að þúsund manns að bana. Þaff var hafnarborgin Niigata, sem verst varff úti í jarffskjálft- arnun nú. Er hún u.þ.b. 250 km. norffvestur frá Tokio og telur nærfellt 300 þús. íbúa. Talið er, að þriðjungux beunar sé í rúst, — brýr. hús og önnur mannvirhi hrundu þar unnvörpum, sprung ur mynduffust í götur, flóðbylgja skall þar á land og eldar brut- ust út og ollu gifurlegu tjóni. Á einum stað hrundi barnaskóli og grófust undir honum 16 börn. Tókst aff bjarga þeim flestum, furöulega litið meiddum. Sam- göngur til borgarinnar rofnuðu og vegna skriðufalla lögðust járn brautarferðir niffur á stóru svæffi. Fyrstu fregnir sem frá Niigata bárust hermdu, að felmtur heíði Framhald á bls. 15

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.