Morgunblaðið - 08.12.1965, Blaðsíða 1
52. árgangiir.
281. tbl. — Miðvikudagnr 8. desember 1965
Frentsmiðja Morgunblaðsins.
SKARDSBÓK KEMDR TIL ÍSLANDS
íslenzkir bankar gefa
þjóðinni þetta
stórmerka handrit
SKARÐSBÓK kemur heim.
Á fundi með fréttamönnum í
gær tilkynnti Jóhannes Nor-
dal, bankastjóri, formaður
bankastjórnar Seðlabankans,
að íslenzkir bankar hefðu tek-
íð sig saman og keypt Skarðs-
bók, eina skinnhandritið sem
til var í einkaeign, svo kunn-
ugt sé. Handritið var selt á
uppboði hjá Sotheby & Co. í
Lundúnum þriðjudaginn 30.
nóv. sl. og var slegið á 36 þús-
wnd sterlingspund, eða sem
avarar 4 milljónum 320 þús-
und krónum íslenzkum. Marg
ir hafa velt því fyrir sér, hver
kaupandinn mundi hafa ver-
ið — nú þarf ekki lengur að
fara í grafgötur um það: þetta
ómetanlega forníslenzka hand
rit er orðin eign íslenzku
þjóðarinnar.
Á fundinum í gær var við-
sladdur menntamálaráðherra,
dr. Gylfi Þ. Gíslason, og las
Jóhannes Nordal upp bréf
tem Seðlabanki íslands hefur
sent ráðherranum, þar sem
segir m.a.: „Oss hefur nú
verið falið af framangreind-
nm bönkum (þ.e. Seðlabanka
fslands, Landsbanka íslands,
Útvegsbanka íslands, Búnað-
arbanka íslands, Fram-
kvæmdabanka íslands, Verzl-
unarbanka íslands h.f., Iðnað-
arbanka íslands h.f. og Sam-
gengur að
óskum
I Houston, 7. des. — AP — NTB.
FERÐ þeirra Frank Bormans
og James Lovell í geimfarinu
Gemini 7 hefur gengi'ð svo
i vel til þessa, að hún er talin
með bezt heppnuðu geimferð-
1 um Bandaríkjamanna, að því
er sagt var í Houston í dag.
Er Gemini 7 var statt yfir
Kyrrahafi í 44. hring sínum
umhverfis jörðu, breytti Bor-
man braut þess, en það er
einn liðurinn í undirbúningn-
um að stefnumótinu við
Gemini 6, sem skjóta á út í
geiminn á mánudag. Vísinda-
menn eru nú svo bjartsýnir,
að þeir telja hugsanlegt að
Gemini 6 verði skotið á braut
sóiarhring á undan áaetlun,
eða á mánudag, en þó er þetta
ekki að fullu ákveðið.
Bá'ðir geimfararnir voru
við beztu heilsu í dag, utan
hvað Loveil virtist eilitið hás,
en það er talið stafa frá
súrefninu í geimferðabúning
hans fremur en kvefi.
vinnubanka fslands h.f.) að
tilkynna yður, - hæstvirtur
menntamálaráðherra, að þeir
vilji færa Skarðsbók íslenzku
þjóðinni að gjöf. Væntum vér
þess, að þér viljið við henni
taka fyrir hönd ríkisstjórnar
íslands“. Síðan segir í bréfinu
að Skarðsbók sé nú til varð-
veizlu hjá Hambrosbanka í
Lundúnum og er ætlunin að
athuga, hvort ekki sé rétt að
fram fari nokkur viðgerð á
handritinu, áður en það verð-
ur flutt hingað til lands.
Framhaild á Ws. 2.
Jóhannes Nordal, bankastjóri, afhendir Gylfa Þ. Gíslasyni,
menntamálaráðherra gjafabréf Skarðsbókar fyrir hönd bank-
anna. — Ljósm. Mbl.: Sv. >.
Leystir
úrbanni
— eftir níu aldir
Lstanbul, 7. des. — AP.
GRÍSK-KAÞÓLSKA kirkjan
leysti í dag við hátiðlega at-
höfn rómversk-kaþólskan páfa
úr banni því, sem hann var
settur i fyrir meira en níu
öldum. — Samtímis fór fmm
önnur athöfn í Páfagarði í
Róm, og var þar leystur úr
banni grísk-kaþólskur patrí-
ark, sem banmfærður var sama
ár og páfinn, 1054.
Litið er á .atburði þessa sem
mikilvægt skref í áttina til
bættrar samibúðar grísk-ka-
þólsku og rómversk-kaþólsku
kirkjunnar. 1054 bannfærðu
þeir hvor annan Leó páfi IX
og patríarkinn af Konstamtin-
ópel, Michael Caerularius.
Jóhann Hafstein um Alúmínmálið á fundi Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í gær.
Oska ad gamlir og merkir draumar
rætist á næstu mánuðum
A AÐALFUNDI fulitrúaráðs
Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
í gær, flutti Jóhann Hafstein,
iðnaðarmálaráðherra, ræðu um
stóriðju- og stórvirkjunarmál. 1
ræðu sinni kvaðst iðnaðarmála-
ráðherra gera ráð fyrir að hægt
yrði að undirskrifa samninga um
alúmínbræðslu við Straumsvík
fljótlega eftir áramót og síðan
yrðu þeir lagðir fyrir Alþingi til
umræðu og staðfeitingar. Gera
Jóhann Hafstein flytur ræðu
sína í gærkveldi.
mætti ráð fyrir, að framkvæmdir
við Búrfellsvirkjun hefjist á
næsta sumri og framkvæmdir við
alúmínbræðslu i Straumsvík 12
til 18 mánuðum eftir að fram-
kvæmdir hæfust við Búrfell. —
Mætti þá búast við að báðum
þessum framkvæmdum lyki síð-
ari hluta árs 1968 eða í byrjun
árs 1969.
Jóhann Hafstein hóf mál sitt
með því að rifja upp sögu stór-
iðjumála. Hann sagði, að Bjarni
Benediktsson, þáverandi iðnaðar-
málaráðherra, hefði skipað nefnd
árið 1961, sem köiluð var stór-
iðjunefnd og taka skyldi upp við
ræður og athuganir á stóriðju,
alúmínbræðslu eða öðru. Nefndin
hóf könnun á þessum málum, og
þá sérstaklega stóriðju í sam-
bandi við stórvirkjun. Fyrst voru
norskir sérfræðingar fengnir til
ráðuneytis og var niðurstaða
þeirra sú, að alúmínbræðsla væri
heppilegust stóriðja fyrir íslend-
inga. Voru þá teknar upp við-
ræður við ýmsa aðila, Frakka,
Bandaríkjamenn og hið sviss-
neska alúmínfyrirtæki og kom
fljótlega í ljós, að þeir síðast-
nefndu voru líklegastir til sam-
vinnu. í nóvember 1964 gaf stór-
iðjunefnd ríkisstjórninni ítarlega
skýrslu um samningaviðræður
við Svisslendinga, og um síðustu
áramót fengu alþingismenn
skýrslu þessa afhenta. í janúar-
mánuði síðastliðnum var leitað
eftir samvinnu við stjórnarand-
stöðuna og var þingmannanefnd
með aðild þriggja flokka sett á
laggirnar, en í maí sl. tóku full-
trúar Alþýðubandalagsins einnig
sæti í nefndinni. Kvaðst iðnaðar-
málaráðherra telja,-að það hefði
orðið málinu til góðs að fá full-
trúa stjórnarandstöðunnar til
starfa í nefndinni. Til þess að
forðast misskiining væri þó rétt
að taka fram, að fulltrúar Al-
þýðubandalagsins hefðu lagt á
það áherzlu, að þótt þeir tækju
sæti í nefndinni væru þeir ekki
sammála fyrirhuguðum stóriðju-
framkvæmdum. Hinsvegar er af-
staða Framsóknarflokksins ekki
alveg ljós. Hann lagði frá önd-
verðu áherzlu á staðsetningu og
hvar virkjað yrði.
Engu skal spáð um endanlega
afstöðu þess flokks. I skýrslu
stjórnarinnar i maí kom fram
það sem máli skipti og fram
hafði komið í viðræðunum og var
það ítarlega rætt á Alþingi og
i blöðunum. Landsfundur Sjálf-
stæðisflokksins tók eindregna af-
stöðu tii málsins í stjórnmála-
ályktun sinni, og nokkru áður
hafði miðstjórn Alþýðuflokksins
einnig tekið eindregna afstöðu til
málsins.
Skömmu eftir að þingi iauig»
síðastliðið vor lá fyrir uppkast
að aðalsamningi við svissneska
fyrirtækið, og hefur síða.n verið
unnið sleitulaust að málunum.
Einn aðalsamningur.
Um verður að ræða einn aðal-
samning mil'li Swiss Aluiminium
og íslenzku ríkisstjórnarin.nar og
verður hann iagður fyrir Alþingi
og lögfestur, ef meirihluti er fyr-
ir hendi.
Þessi samningur markar réttar^
stöðu hins svissneska fyrirtækia
til þess að reka hér alúmin-
bræðslu, en dótturfyrirtæki þess,
Framhald á bls. 8
De Gaulle verður
aftur í framboði
Talið að hann muni nú hljóta um 60 °Jo
atkvæða en Mitterand 40 °]o
París, 7. des. — AP-NTB
TALSMAÐUR de Gaulle,
Frakklandsforseta, greindi
frá því í kvöld, að forsetinn
hefði ákveðið að taka þátt í
endurkosningunum 19. des-
ember nk. Hinsvegar var gef
ið í skyn, að forsetinn myndi
enga yfirlýsingu gefa um
málið í kvöld, eins og áður
hafði verið tilkynnt, heldur
mun upplýsingamálaráðherra
frönsku stjórnarinnar, Alain
Peyrefitte, tilkynna opinber
lega um framboð de Gaulle
á vikulegum blaðamanna-
fundi sínum á morgun, að
undangengnum ríkisráðs-
fundi. — Skoðanakönnun,
sem fram fór fyrir kosning-
arnar sl. sunnudag, sýndi að
kæmi til endurkosningar
myndi de Gaulle hljóta um
60% atkvæða, en Francois
Mitterand, frambjóðandi
vinstrimanna, sem studdur
er af kommúnistum, myndi
hljóta 40%.
De Gaulle kom til Parísar
með þyrlu í dag frá sveitasetri
Framh. á bls. 3
f