Morgunblaðið - 25.02.1975, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 25.02.1975, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGÚR 25. FEBRÚAR 1975 Islandsmótið í knatt- spyrnu hefst 18. maí « Þessa dagana er verið að raða niður knattspyrnuleikjum sumarsins og ég vona að um næstu helgi liggi fyrir uppkast að mótaskránni, sem sfðan verður send út til félaganna, sagði Helgi Daníelsson formaður Mótanefdar K.S.l. er við spurðum hann frétta af störfum Mótanefndar. Helgi sagði að þátttakan í lands- mótunum í sumar væri meiri en í fyrra og nokkur ný félög bættust í hópinn. Stefnt verður að þvl að keppnin I 1. og 2. deild hefjist síðari hluta maí, eða um hvíta- sunnuna, sem er 18. maí, og ljúki um mánaðamótin ágúst- sept. Helgi sagði, að búið væri að draga töfluröð i 1. umferð: Nýliðarnir í deildinni, FH, leika á móti Fram á heimavelli, en Vestmannaeyingar fá Víkverja í heimsókn. íslandsmeistararnir frá Akranesi fá sina gömlu erki- 'jendur, KR-inga, til Akraness, en Keflvíkingar leika við Bikar- meistara Vals á Laugardalsvellin- um. I 2. deild mætast í fyrstu umferð Armann og Breiðablik á Armannsvellinum. Selfyssingar mæta nýliðunum í deildinni, Vík- ingi frá Ólafsvík á heimavelli. Þróttur leikur við Völsunga frá Húsvik á Þróttarvellinum við Theódór Guðmundsson: Knattspyrnuþjálfaraspjall FIMLEIKASAMBAND Islands mun gangast fyrir dómaranámskeiði laugardagínn 1. og sunnudaginn 2. marz n.k. Er það framhald námskeiða sem sambandið gekkst fyrir ( janúar og febrúar s.l. Aðrir sem sótt hafa dómara- eða kennaranámskeið f fimleikastig- anum hafa einnig rétt tíl þátttöku. Kennarar verða norskir: Björn Lorentzen og Marit Kalland. Upplýsingar veitir skrifstofa Fim- leikasambandsins og Þórir Kjartansson fþróttakennari. Þátttaka tilkynnist til sömu aðila. tR-ingar eru nú komnir I gang með hin vinsælu vfðavangshlaup sfn fyrir börn og unglinga: Hljómskála- og Breiðholtshlaup. Þrjú Hljómskálahlaup hafa þegar farið fram, og á næstunni munu svo fara fram þrjú Breiðholts- hlaup. Þátttaka I Hljómskála- hlaupinu hefur verið með mikl- um ágætum. 19. janúar þegar fyrsta hlaupið fór fram mættu 66 til leiks og 16. febrúar þegar hlaupið var öðru sinni mætti 61 til leiks. Þriðja hlaupið fór svo fram s.l. sunnudag. í hlaupum þessum er keppt I mörgum aldurflokkum bæði pilta og stúlkna. I fyrsta hlaupinu var ágætur árangur enda veður þá með betra móti. Bezta tima stúlknanna i þeirri keppni fékk Anna Haraldsdóttir, f. 1959, en hún hljóp á 2,56 mín. Þá vakti árangur Thelmu Björnsdóttur, f. 1964 sérstaka athygli, en hún hljóp á 3,30 mín. Af piltunum náði Gunnar Þ. Sigurðsson bezta tímanum, 2,23 min., en hann keppti í aldurs- flokki f. 1959. Þá náðu þeir Magnús Haraldsson og Atli Þór Þorvaldsson athyglisverðum árangri. Magnús f. 1961 hljóp á 2,47 mín og Atli f. 1962 hljóp á 2,52 min. I hlaupinu 16. febrúar náðist enn betri árangur en í fyrsta hlaupinu, þótt aðstæður væru þá reyndar verri. Nanna Sigurdórs- dóttir, f. 1965 vakti mesta athygli I telpnaflokki, en hún hljöp á 3,29 mín og i piltaflokknum var það Guðjón Ragnarsson sem stóð sig tiltölulega bezt. Hann er f. 1964 og hljóp á 2,57 mín. Bæði Nanna og Guðjón settu met í sínum aldursflokki, og hljóp Nanna á tæplega mínútu betri tima en jafnöldrur hennar. Beztum tíma i stúlknaflokki náði hins vegar Anna Haralds- dóttir, f. 1959, en hún hljóp á 2,52 mín. Hafsteinn Óskarsson náði beztum tíma i piltaflokknum, hljóp á 2,27 mín., en Hafsteinn er fæddur 1959. MIG langar að ræða nokkuð um þjálfaramál okkar islenskra knattspyrnumanna. Nú er svo komið að aðeins einn Islendingur er talinn nógu hæfur til að þjálfa 1. deildar lið. Að vísu eru tveir íslenskir með annað 1. deildar lið og tel ég það lofsverða nýjung sem ég vona að sé spor I rétta átt. Ég held að í framtíðinni verði tveir menn sem þjálfa og stjórna okkar bestu liðum. Fyrir nokkr- um árum voru eingöngu fslenskir þjálfarar með öll okkar lið. Hvað hefur gerst?? Það sem gerst hef- ur er það að nú telst ekkert lið hafa möguleika nema ráða er- lendan þjálfara. Þetta væri gott og blessað ef á þessum ráðningum væru ekki nokkrir stórir gallar. Alvarlegast tel ég vera að félögin munu borga um tvær og hálfa milljón í laun og kostnað við hvern þjálfara. Þetta er allt of mikið og verður að teljast óverj- andi á sama tima og íslensk þjálfaramál eru látin sitja á hak- anum. Félögin hafa því enga peninga til að sinna unglingastarfinu. Má í því sambandi nefna að menn eru Veðjað íEng- landi LÍFLEGT hefur verið að undanförnu hjá enskum veðmöngurum, þar sem nú dregur að úrslitum bæði í ensku 1. deildar keppninni og I ensku bikarkeppninni i knattspyrnu. Veðja flestir i sigur Leeds United I bikar- keppninni og á. sigur Liverpool I ensku 1. deildar keppninni. Staða veðmálanna er annars þessi: Bikarkeppnin: Leeds United 3:1, Ipswich Town 4:1, West Ham United, Middlesbrough og Arsenal 7:1, Birmingham City 8:1, Carlisle United 9:1, Leicester City 20:1 og Fulham 28:1. Deildarkeppnin: Liverpool 7:2, Everton 4:1, Leeds 7:1, Ipswich 8:1, Derby County 9:1, Stoke City 10:1 og 14:1 á önnur lið. Dómaranámskeið ráðnir til að þjálfa yngri flokkana aðeins vegna þess að lítið eða ekk- ert þarf að borga þeim fyrir. Ekk- ert er spurt um menntun, hæfi- leika eða reynslu. Fyrir fjórum árum var stofnað hér í Stór-Reykjavík eins og það var orðað, félag sem hlaut nafnið Knattspyrnuþjálfarafélag Is- lands. Aðal markmið félagsins er að auka áhuga á knattspyrnu- þjálfun og stuðla að því að allir þeir er við þjálfun fást hafi hlotið undirstöðumenntun. Ég hef fylgst með störfum félagsins frá stofnun þess og tel að það hafi farið vel af stað. Allir okkar helstu þjálfarar voru i stjórn eða stofnfélagarar og verkefnin voru óþrjótandi. Sið- an hefur það komið í ljós að félag- ið hefur átt í miklum erfiðleikum. Þó hafa verið haldin 4 til 5 þjálfaranámskeið og gefin út fréttabréf. Aðal vandamálið er það að knattspyrnufélögin hafa sýnt félaginu algert áhugaleysi ef ekki beina óvild. Eins og sést á því að þau hvorki styðja það né virða. Af þessari afstöðu leiðir svo að menn geta þjálfað hjá félögunum án þess að vera í þjálfarafélaginu og fara þess vegna á mis við þá fræðslu sem þar fer fram. Hér með skora ég á forystumenn knattspyrnufélag- anna að taka þjálfaramálin föst- um tökum. Væru ekki knatt- spyrnuráðin heppileg til að koma á framfæri tillögum um úrbætur? Að lokum vil ég svo þakka Knattspyrnusambandinu fyrir þann stuðning og velvilja sem það hefur sýnt Knattspyrnuþjálfara- félaginu en miklu meira þarf til að koma þessum málum f lag. Reykjavfk 20. febrúar 1975 Theódór Guðmundsson Fríður IR-hópur ÞÓTT íslandsmótinu f körfuknatt- leik kvenna sé ekki lokið enn, þá er Ijóst orðið, að þar munu ÍR- stúlkurnar ganga með sigur af hólmi og verða þær þvi bæði íslands- og Reykjavfkurmeistarar í ár. Mynd þessa af stúlkunum tók Sveinn Þormóðsson fyrir skömmu og heldur fyrirliði liðs- ins, Guðrún Ólafsdóttir, á verð- launagrip fyrir unninn sigur f Reykjavfkurmótinu, bikar, sem Morgunblaðið gaf til þeirrar keppni. Nöfn stúlknanna eru, talið frá vinstri: Sólrún Ástvaldsdóttir, Olga Bjarnadðttir, Lfna Gunnars- dóttir, Ásta Garðarsdóttir, Guðrún Ólafsdóttir, fyrirliði, Hall- dóra Kristjánsdóttir, Anna Edvardsdóttir, Vilborg Gunn- laugsdóttir, Friðný Jóhannesdótt- ir og loks Einar Ólafsson. þjálfari liðsins. Sæviðarsund og fjórði leikurinn i umferðinni verður milli Hauka frá Hafnarfirði og þess liðs sem kemur til með að taka sæti Akur- eyringa f deildinni. Eins og kunn- ugt er hafa Akureyringar dregið þátttöku sína til baka, þar sem liðin þaðan, KA og Þór, hafa ákveðið að hætta áralöngu sam- starfi og senda lið til keppninnar sitt i hvoru Iagi. Enn leggur ekki fyrir hvort liðið tekur sætið í deildinni, eða þá að þriðju aðil- inn, Reynir frá Arskógsströnd, kemur til með að hljóta það, en þetta ætti að liggja fyrir á næst- unni. I 3. deil verður riðlaskipting að venju og verða riðlarnir að öllum likindum 7 að þessu sinni, en i riðlana er skipt eftir landshlut- um. Þá sagði Helgi að ný reglugerð varðandi yngri flokkana hefði verið samþykkt á siðasta þingi K.S.l. og stækka riðlarnir hér á Suðurlandi nokkuð, þar sem 11 lið skipa nú sterkasta riðilinn. Úti á landi verður keppnin með svip- uðum hætti og áður, sömuleiðis verður kvennamótið meó sama fyrirkomulagi og á s.l. ári. Helgi sagði að leikir landsmót- anna i sumar yrðu væntanlega hátt í 700 og væri þvi mikið verk að raða þeim öllum niður, þannig að sem flestir mættu sæmilega vel við una. En þá, sem bíða óþolinmóðir eftir að sjá knattspyrnu, má hugga með því, að senn fer Meistarakeppni KSI að byrja og fyrsti leikurinn í þeirri keppni, milli Islandsmeistaranna frá Akranesi og Bikarmeistara Vals, fer fram á Akranesi innan skamms. Ekki var okkur kunnugt um nöfn ungu hlauparanna sem efri myndin er af, en vfst er að þeir draga ekki af sér og einbeytnin skfn úr svip þeirra. Kempuna á neðri myndinni kannast vfst flestir við Guðmundur Þórarínsson, þjálfari ÍR, og stjórnandi vfðavangshlaupa félagsins. AGÆT ÞATTTAKAIINGA F0LKSINS í HLJÓMSKÁLAHLAUPIM ÍR-INGA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.