Morgunblaðið - 24.12.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1982
31
Egilsstaðir:
Kveikt á jólatré
frá Eiðsvöllum
KgilsstöAum, 19. deuember.
SÚ VENJA hefur myndast að vinabær Egilsstaða í Noregi, Eiðsvellir, hefur
sent Egilsstaðabúum myndarlegt jólatré fyrir hver jól. I»rátt fyrir kafaldsbyl
og vonskuveður var kveikt á jólatrénu í dag að aflokinni brautskráningu
nýstúdenta í Egilsstaöakirkju — en tréð stendur við kirkjuna.
Formaður Norræna félagsins á
Egilsstöðum, Ólafur Guðmunds-
son, afhenti tréð, en oddviti Eg-
ilsstaðahrepps, Sveinn Þórarins-
son, tók við trénu fyrir hönd Eg-
ilsstaðabúa og tendraði síðan ljós
þess.
Skemmtiatriði sem vera áttu við
athöfn þessa féllu niður vegna
veðurs, jólasveina urðu veður-
tepptir — en björgunarsveitar-
menn létu sig hafa það að skjóta
upp flugeldum og blysum þrátt
fyrir óveðrið.
Nú næstu daga kemur út mynd-
arleg bók um vinabæjakeðju Eg-
ilsstaða, um 250 bls. að stærð í
venjulegu bókarbroti, en vinabæir
Egilsstaða eru: Eiðsvellir í Noregi,
Skara í Svíþjóð, Soro í Danmörku
og Suolahti í Finnlandi.
— Ólafur.
Piltur og stúlka
í Skagafirði
Leikfélag Skagafjarðar frumsýndi fyrir nokkru leikritið
Pilt og stúlku í Varmahlíð. Meðfylgjandi mynd Alberts
Geirssonar er frá frumsýningunni.
Skreytingar í Bolungarvík
Síöustu dagana fyrir jólafrí notuðu nemendur, kennarar
og foreldrar til að skreyta skólahúsið, og voru myndir
sniðnar í hvern glugga. Meðfylgjandi myndir segja meira
en orð.
Gunnar.
atztc'
l.jósm. Mbl. Kjartan AAalskdnsson.
Vel heppnaðir jólatónleikar
Seyðisfirði, 15. desember.
í gærkvöldi voru haldnir í
Seyðisfjarðarkirkju jólatónleik-
ar Tónlistarskóla Seyðisfjarðar
að viðstöddu fjölmenni. Efn-
isskrá tónleikanna var mjög fjöl-
breytt og komu flestir nemendur
skólans fram eða á milli 50—60
manns. Nemendur léku verk á
flautu, píanó, orgel, gítar, slag-
verk, auk þess söng barnakór
jólalög. Einnig komu fram tvær
hljómsveitir og fluttu nokkur
lög.
Það hefur verið venja undan-
farin ár, að nemendur skólans
hafi efnt til jólatónleika í des-
ember og hefur þar komið fram
þverskurður af starfi skólans á
fyrri önn hans. t lok námstíma-
bilsins hefur svo verið efnt til
lokatónleika, svonefndra vortón-
leika skólans.
í vetur stunda á milli 60—70
nemendur nám við skólann, á
aldrinum 5 ára til 14 ára auk
nokkurra eldri nemenda.
Skólinn hefur haft aðsetur sitt
frá haustinu 1979 í Steinholti en
það húsnæði er í eigu Tónlistar-
félags Seyðisfjarðar og var
endursmíðað að verulegu leyti í
sinni upphaflegu mynd og því
verki að mestu lokið 1979.
Aðstaða til kennslu er með
ágætum og vel að skólanum bú-
ið. Skólastjóri Tónlistarskóla
Seyðisfjarðar er Gylfi Gunn-
arsson og kennari með honum er
Sigurbjörg I. Helgadóttir.
Fréttaritari.
Lögreglumenn og starfsmenn Flugfélagsins Ernis.
Ljósmynd Mbl. l 'lfar.
Lögreglufélag Vestfjarða heiðrar starfsmenn
flugfélagsins Ernis fyrir frábær björgunarstörf
ísadrAi, 21. dt‘s,‘mlxT.
Jónas Eyjólfsson, formaður Lögreglufélags Vestfjarða, afhendir Herði
Guðmundssyni, flugmanni og framkvæmdastjóra Ernis, viðurkenn-
ingarskjal fyrir frábær björgunarstörf. i.jósmvnd mi.i. i nar
Lögreglufélag Vestfjarða boðaði
til fundar sl. laugardag til þess að
veita í fyrsta skipti viðurkenningu
samkvæmt verölauna- og viður-
kenningarreglugerð LV. I ræðu,
sem formaður félagsins, Jónas Eyj-
ólfsson, flutti við það tækifæri,
sagði hann, að í þessu þjóðfélagi
meðalmennskunnar færu miklir
hæfileikar til spillis, þar sem ekk-
ert væri gert til þess að ná fram því
bezta í einstaklingum. Með það
sjónarmið í huga, að hvetja ein-
staklinginn til dáða á ýmsum svið-
um væri reglugerðin sett.
í reglugerðinni er gert ráð
fyrir að veita viðurkenningu
fyrir björgunarafrek, umferðar-
fræðslu, störf í þágu lögreglunn-
ar og íþróttaafrek á öllu svæði
lögreglufélagsins, en innan þess
eru kaupstaðirnir Isafjörður og
Bolungarvík, Vestur- og Norð-
ur-ísafjarðarsýslur og Barða-
strandarsýsla.
Fyrstir til að hljóta viður-
kenningu eru starfsmenn flugfé-
lagsins Ernis á ísafirði fyrir
björgunarafrek. Fáum er ef til
vill betur kunnugt um sjúkra- og
neyðarflugþjónustu flugfélags-
ins Ernis en vestfirzkum lög-
reglumönnum, því oftast kemur
það í þeirra hlut, að flytja við-
komandi sjúklinga á hina ýmsu
flugvelli, sem lent er á. Nefndi
Jónas nokkur dæmi um atvik,
þegar flugmenn Ernis komu
slösuðu fólki undir læknishend-
ur í Reykjavík við mjög erfið
skilyrði.
Síðan afhenti hann Herði
Guðmundssyni, flugmanni og
framkvæmdastjóra flugfélags-
ins, viðurkenningarskjal fyrir
frábær störf félagsins í þágu
neyðarþjónustu á Vestfjörðum.
Hörður Guðmundsson þakkaði
fyrir hönd félagsins og sam-
starfsmanna sinna og gat um
gott samstarf milli flugmanna
og lögreglumanna á Vestfjörð-
um.
Torfi Einarsson lögregluvarð-
stjóri flutti ávarp og gat sér-
staklega um frábæra hæfni
Harðar Guðmundssonar, en
Torfi og kona hans voru eitt sinn
að koma heim úr brúðkaupsferð
með Herði, þegar skrúfan á eins
hreyfils vél félagsins losnaði af í
aðflugi að ísafjarðarflugvelli og
þó að vélarolía byrgði allt útsýni
í gegnum fram- og hliðarrúður
flugvélarinnar, tókst Herði að
lenda vélinni á flugvellinum, án
þess að frekari skemmdir yrðu á
flugvélinni og án þess að nokk-
urn sakaði um borð, en þetta
gerðist fvrir nokkrum árum.
- Úlfar.