Morgunblaðið - 05.06.1983, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 05.06.1983, Blaðsíða 8
8 Leikmenn liðs Knattspyrnufélagsins Víkings í 1. deild keppnistíma- bilið 1983. Aftasta röð frá vinstri: Sverrir Herbertsson, Þórður Marels- son, Ragnar Gíslason, Sigurður Aðalsteinsson, Páll Asgrímsson, Gylfi Rútsson, Unnsteinn Kárason og Magnús Þorvaldsson. Miðröð: Eiríkur Helgason, formaður knattspyrnudeildar Víkings, Asgeir Armannsson, stjórnarmaður, Stefán Halldórsson, Gunnar Gunnarsson, Ólafur Ólafs- son, Einar Einarsson, Diðrik Ólafsson, liðsstjóri og Jón Ólafsson, liðs- stjóri. Fremsta röð: Heimir Karlsson, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Ómar Torfasopn, Ögmundur Kristinsson, Jean Paul Colonval, þjálfari, Jón Otti Jónsson, Jóhann Þorvarðarson, Oskar Tómasson og Andri Mar- teinsson. * ' - - ■ ,r ' - -' Hélt að Youri væri ekki með réttu ráði þegar hann bað mig að leika miðvörð segir Stefán Halldórsson, sem nú vill ekki fyrir nok- kurn mun skipta Stefán Halldórsson, miðvörður Víkings, er tvímælalaust einn af beztu knattspyrnumönnum sem Víkingur hefur alið. Hann hefur lengi staðið í baráttunni — aðeins sextán ára gamall varð hann bikar- meistari með Víkingi. Var varamað- ur þegar Víkingur sigraði Breiða- blik í úrslitum bikarkeppni KSÍ árið 1971. Síðan hefur mikið vatn runn- ið til sjávar — Stefán varð einn af marksæknustu miðherjum is- lenskrar knattspyrnu og árið 1976 lá leiðin í atvinnumennsku — hjá Royale Union í Belgíu og síðan lék hann með Krístiansand i Svíþjóð. Það var því ekki að ástæðulausu að Vikingar fögnuðu komu Stefáns þegar hann hóf að leika með Vík- ingi á ný í fyrra. Menn litu björtum augum til sumarsins — og marka Stefáns. En það fór á annan veg. Stefán var gerður að miðverði liðs- ins og Víkingur varði íslandsmeist- aratitil sinn. En hver var ástæðan að Stefán fór í miðvarðarstöðuna? „Það er nokkuð sérkennilegur aðdragandij* sagði Stefán í samtali við blaðamann. „Víkingur átti að leika sinn annan leik í Reykjavíkur- mótinu í fyrra og þegar ég mætti, þá spurði Youri Sedov mig hvort ég vildi ekki leika stöðu „sweepers.“ „Ég veit þú getur það“ sagðu Youri. Ég hélt, að Youri væri ekki með réttu ráði. Sagðist aldrei hafa leikið þessa stöðu og mér litist ekkert á það. En Youri sat við sinn keip — hann lagði hart að mér og ég lét til leiðast og sagði það á hans ábyrgð ef illa færi. Hann féllst á það — og ég fór í stöðu „sweeper" og þetta hefur gengið stórslysalaust. Nú finnst mér mjög gaman að leika þessa stöðu og vildi undir engum kringumstæðum skipta“ — Og þú varðst íslandsmeistari í fyrsta sinn, eftir öll árin í barátt- unni. „Já — það var stórkostleg til- finning. Þegar ég hóf að leika með Víkingi í fyrravor, þá hvarflaði það ekki að mér að við næðum að verja titilinn. Ég raunar vissi ekkert hvernig til tækist — að vinna tvö ár í röð hafði aðeins gert tvivegis eftir að tvöföld umferð var tekin upp. Skagamenn unnu tvöfalt 1974-75 og Valur 1966-67. Það þarf því mik- ið til. En Víkingur er i dag mesta í- þróttaveldi á íslandi og félagið hafði eflst ótrúlega mikið frá því ég fór í atvinnumennsku 1976. Þá kom mér á óvart hve leikmenn voru tekn- ískir og höfðu næmt auga fyrir spili þegar ég hóf æfingar í fyrravor með Víkingi. Liðið small mjög vel sam- an — það voru engir stjörnuleik- menn. Við unnum sem ein heild og allir vorum við staðráðnir í því að gera okkar bezta. Það tókst — við urðum íslandsmeistarar en þú mátt ekki gleyma því, að ég hafði áður orðið Islandsmeistari. Það var í handknattleik — þá auðvitað með Víkingi" — Nú hefur þú verið orðaður við landslið, vegna góðrar frammi- stöðu. „Ég hugsa ekki mikið um það — en að sjálfsögðu mundi ég ekki segja nei ef mér byðist að leika með íslenska landsliðinu. Það yrði ákaf- lega gaman og þá ekki síst, þar sem ég hef leikið landsleiki í handknatt- leik. Það yrði gaman að geta státað af landsleikjum í báðum þessum í- þróttagreinum“ — Þú fórst í atvinnumennsku ár- ið 1976. „Já ég fór til Royale Union í Bel- gíu — og atvinnumennskan er strangur skóli, sem bæði hefur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.