Morgunblaðið - 07.07.1983, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1983
Tvö ódýr mörk færðu
Breiðabliki sigur
FYRSTU deildar lið Breiðabliks lenti (miklu basli meö liö Víkverja sem
leikur í 4. deild, er liðin léku í bikarkeppni KSÍ. Breiðablik sigraöi (
leiknum 2—1, en í hélfleik hafði lið Víkverja forystuna 1—0. Isíðari
hálfleiknum néðu Blikarnir svo aö skora tvö heppnismörk og sigra (
leiknum.
Leikmenn Breiöabliks áttu öllu
meira í fyrri hálfleiknum en tókst
ekki aö skora. Víkverjar skoruöu
hins vegar á 15. mínútu. Þá var
dæmd vítaspyrna á Breiðablik og
var það frekar strangur dómur. Al-
bert Jónsson skoraöi úr vítinu af
öryggi. Leikmenn Víkverja sýndu
aldrei neina minnimáttarkennd í
leik sinum og uppskáru i samræmi
við þaö. Sóttu oft af krafti og
sköpuöu sér ágæt tækifæri í fyrri
hálfleiknum.
í síöari hálfleik tókst Blikunum
aö jafna metin á 65. mínútu. Og
var markiö af ódýrari geröinni. Eft-
ir langt innkast mistókst varnar-
mönnum Víkverja aö hreinsa frá á
einstaklega klaufalegan hátt. Bolt-
inn barst fyrir markiö og Siguröur
Grétarsson, sem var á markteig,
gat afgreitt boltann í netið af stuttu
færi.
Viö aö jafna leikinn fór mesta
spennan af leikmönnum Breiöa-
bliks og þeir fóru aó sækja meira
og áttu hættuleg tækifæri. En þó
tóku þeir leikinn aldrei í sínar
hendur því að hinir leikglööu Vík-
verjar sýndu góö tilþrif og reyndu
alltaf aó byggja upp og spila sam-
an. Og tókst þaö furöuvel.
Á 76. mínútu síöari hálfleiksins
skoruóu Blikarnir síöara mark sitt.
Eftir mikla pressu á mark Víkverja
náöi einn Blikanna aö gefa á Sæ-
var Jónsson, sem var rangstæöur,
góöa tvo metra fyrir innan vörn
Víkverja. Undirritaöur var í ein-
staklega góöri aöstööu til aö
Víkverji
—UBK
dæma um þetta atriði, og þaö fór
ekkert á milli mála aó um rang-
stööu var aó ræöa. Þarna yflrsást
línuveröinum illilega.
Þetta mark nægöi Breióablikl til
sigurs í leiknum. Bæöi liöin áttu
nokkur hættuleg tækifæri þaö sem
eftir liföi leiksins en ekkl uröu
mörkin fleiri. Áhorfendur á leiknum
voru 293. — ÞR
Sigurður Grétarsson jafnaði leik-
inn fyrir Breiðablik í gær gegn
Víkverja og tók mesta skrekkinn
úr fylgismönnum félagsins.
Knattspyrna)
Evrópukeppni meistaraliöa
EVRÓPUMEISTARAR Hamburger sitja hjá í fyrstu
umferð meistarakeppnínnar, þar sem Albanía sendi
ekki liö í keppnina. Annars lítur drátturinn þannig út:
AS Rome — IFK Gautaborg
Athlone Town — Standard Liege
Ajax — Olympiakos Pierus
Fenerbahce — Bohemians Prag
Rapid Vienna — Nantes
CSKA Sofia — Omonia Nikosíu
Odense BK — Liverpool
Benfica — Lienfield
Dynamo Berlin — Jeunesse Esch
Partizan Belgrad — Viking Stavangri
Kuusysi Lahti — Dinamo Bucharest
Dundee United — Hamrun Spartans
Dynamo Minsk — Grasshoppers
Raba Vesos — Víkingur
Lech Poznan — Athletico Bilbao
UEFA-keppnin
Þessi liö leika saman í UEFA-keppninni:
Aston Villa — Vitoria Setubal, Portúgal
Sparta Prag — Real Madrid
Antwerpen — Zurich
Sparta Rotterdam — Coleraine, N-írl.
Banik Ostrava — B 1903 Danm.
Memphis Vienna — Aríx Bonnevoui, Lux.
Sporting Lisbon — Sevilla
Eindhoven — Ferencvaros
Kaiserslautern — Watford
Red Star — Hellas Verona, Ítalíu
Groningen — Athletico Madrid
Larissa, Grikkl. — Honved
Widzew Lodz — Elfsborg, Sviþjóö
Carl Zeiss Jena — ÍBV
Spartak Moskvu — AJK Helsínki
Lens — AA Ghent
Anderlecht — Bryne
Nottingham Forest — Vorwarts
Celtic — Árhus
Dynamo Kiev — Laval
Werder Bremen — Malmö FF
Drogheda, irl. — Tottenham
Feyenoord — St. Mirren
Bordeaux — Lokomotive Leipzig
Radnicki Nis — St. Gall, Sviss
Bayern Múnchen — Anorthosis Famagusta, Kýpur
Studentesc Búkarest — Sturm Graz, Austurríki
Locomotive Plovdiv, Búlg. — Salonika, Grikkl.
Stuttgart — Levski Spartak
Craiova — Hajduk Split
Trabzonpor — Inter Milan
Bratislava — Rabat Ajax, Möltu
Evrópukeppnin í knattspyrnu:
Evrópubikarmeistarar
Aberdeen leika gegn IA
DREGID var í Evrópukeppnunum
þremur í knattspyrnu í Genf í
g»r. Heppnin var meö Akurnes-
ingum — þeir lentu gegn Evrópu-
meisturum bikarhafa, Aberdeen
fré Skotlandi, en varla er hægt aö
segja að heppnin hafi veriö með
hinum íslensku liðunum.
Vestmanneyingar fengu Carl
Zeiss Jena fré Austur-Þýskalandi,
• Bjarni Sigurösson markvöröur
ÍA og félagar hans eru marg-
reyndir ( Evrópukeppninni (
knattspyrnu. Nú leika þeir gegn
sjélfum Evrópubikarmeisturun-
um Aberdeen.
og íslandsmeistarar Víkings
mæta ungversku meisturunum
Raba Vesos Eto Gyoer. Fyrsta
umferð Evrópukeppnanna veröur
leikin 14. og 28. september í
haust.
Lítið var um að stórlið lentu
saman, enda haföi UEFA komið
því þannig fyrir að þau lentu ekki
saman í fyrstu umferöinni. Einn
athyglisverður leikur er þó, leikur
AS Roma fré Ítalíu og IFK Gauta-
borg, Svíþjóð. Tvö lið sem hafa
gert þaö gott undanfarið.
Þaö var ekki sérlega gott hljóð
í Eyjamönnum í gær er þeir fréttu
hvaöa móthverja þeir hefðu feng-
iö í Evrópukeppninni. Þeir töluöu
jafnvel um að fara að stofna sér-
stakt vinéttufélag viö lönd A-Evr-
ópu, en þeir hafa undantekn-
ingarlaust dregist á móti liðum
þaðan á undanförnum érum og
þaö þykir langt frá þv( að vera
spennandi að þurfa aö sækja þau
lönd '
Þá var hljóöið í Víkingum lítiö
betra. Þeir töluðu þó um að þaö
væri ekkert annaö að gera en að
sætta sig við mótherjana. Þeir
hefðu verið heppnir í fyrra er þeir
fengu spönsku meistarana og í
drætti sem þessum gæti þessi
staða alltaf komið upp og ekkert
við því að gera.
Forráöamenn IA voru hinsveg-
ar ánægðir með sína mótherja
enda sýndi lið Aberdeen það á
síðasta ári að um stórliö er að
ræða. Liðið leikur skemmtilega
og ákveöna sóknarknattspyrnu
og hefur innan sinna vébanda
frábæra knattspyrnumenn.
Það er ákveðiö aö fyrri leikur
liöanna veröi hér heima og þá
mjög líklega 14. september. Lið
Aberdeen var kjöriö annað besta
liö Evrópu á síðasta keppnistíma-
bili af (þróttafréttamönnum víös
veoar um heim.
— ÞR
Evrópukeppni bikarhafa
DRÁTTURINN lítur þannig út í Evrópukeppni bikar-
hafa; í forkeppni leika Swansea og Magdeburg:
ÍA — Aberdeen
Innsbruck — 1. FC Köln
Sigurvegari úr forriöli — Barcelona
Juventus — Lechia Gdansk
Famagusta, Kýpur — Beveren
Dinamo Zagreb — Porto
Mersin Idmanyurdu — Spartak Varna
Manchester United — Dukla Prag
Servette — Avenir Beggen, Lux.
Nec Nijmegen — Brann
Rangers — La Valetta, Möltu
AIK Apenu — Ujpesti Dosza
Sligo Rovers — Kaha Valkeakoski
Nyköbing — Shakhtor Donetsk, Sovét.
Hammarly — Tirana
Paris St. Germain — Glentoran